Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Page 6

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Page 6
6 LANDSTJÚRN. gjört mörgum greiðara fyrir, bæði með að fá lán og eins með að koma fje sínu á vöxtu. Á það var minnzt í frjettunum í fyrra, að landsböfðingja og ráðgjafa íslands hefði greint á um skilning á launalögunum 15. okt. 1875. Út af þessu spunnust nokkrar brjefaskriptir milli þeirra. Landshöfðingi áloit, að þá er lögin öðluðust gildi, skyldi hverjum embættismanni fyrir sig í sjálfsvald sett, hvort liann vildi heldur þiggja laun sín eptirleiðis eptir launa-reglum þeim, er staðið hafa að undanförnu, eða eptir lögunum, og taldi þá tilætlun alþingis með þessari reglu, að lögin gjörðu launa- hagi embættismanna þeirra, er nú eru í embættum, livorki betri nje lakari en þeirra, er í embættin koma, eptir að lögin öðlast gildi; skírskotaði hann í því efni til umrœðnanna á alþingi. En ráðgjafinn fann þar eigi slíkan skilning, heldur kvað það sam- hljóða bókstaf laganna, að laun embættismanna hækkuðu með embættisaldri þeirra, þó að þau væri greidd eptir hinum nýju lögum. Samkvæmt þessu voru þeim þá goldin laun sín. Endurskoðun allra þeirra reikninga frá íslandi, sem að undanförnu hafa legið undir endurskoðun erlendis, var nú breytt þannig, að hún skyldi fara fram eptirleiðis hjer á landi, og var landfógetanum gegn 1200 króna árlegri þóknun ætlað að endur- skoða reikninga þessa. Eeikningarnir fyrir 1874 voru samkvæmt þessu íluttir frá 1. roikningarannsóknardeild ríkisins hingað til lands, ásamt fylgiskjölum og nokkrum eldri reikningum. Lagði landshöfðingi og svo fyrir, að dráttur sá, sem að undanförnu hefur verið á endurskoðuninni, yrði afnuminn, en reikningarnir þegar tcknir til skoðunar, er þeir koma frá þeim, er samið liafa. í annan stað brýndi landshöfðingi með umburðarbrjefi 16. maí það fyrir öllum bœjarfógetum, sýslumönnum og umboðsmönnum, að fara nákvæmlega og stranglega eptir reglugörðinni 13. febr. 1873 um gjaldheimtur og reikningsskil, og gaf þeim enn nokkrar reglur þar að lútandi. Samkvæmt tillögum ráðgjafans úrskurðaði konungur 21. febrúar, að skylda sú, sem samkvæmt konungsúrskurði 10. maí 1867 hefur hvílt á jafnaðarsjóðunum, að greiða læknasjóðnum 400 kr. árlega úr hverjum sjóði, skyldi falla niður frá 1. jan- úar 1876.

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.