Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 7
LANDSTJÓRN.
7
Samkvæmt tillögum landshöföingja ákvaö ráðgjafi íslands
26. maí að taka læknasjóðinn undan umsjón stiptsyfirvaldanna
og leggja hann undir stjórn landshöföingja, og jafnframt Jiaö,
að tekjurnar af spítalagjaldi, því er sjóðnum ber, og af jörðutn
hans, verði greiddar beinlínis í jarðabókarsjóðinn, og gjöld þau,
er á læknasjóðnum hvíla, aptur verði greidd úr jarðabókarsjóði.
Breyting þessi öðlaðist gildi 1. júlí, og afhentu stiptsyfirvöldin þá
landshöfðingja sjóðinn.
Samskotasjóður Jóns Eiríkssonar handa prestum í Hóla-
byskupsdœmi var einnig, sökum breytingar þeirrar er orðin var
á stjórn landsins, tekinn undan umsjón háskólagjaldkerans r
Kaupmannahöfn, og lagður undir stjórn landshöfðingja. Sjóð-
urinn átti þá 13400 kr. á vöxtum og 402 kr. í peningum.
Með lögum 15. okt. 1875 hafði alþingi gefið ráðgjafanum
heimild til að selja landsprentsmiðjuna með öllu, er lienni heyrði
til, fyrir eigi minna en 20000 kr. í umboði ráðgjafans seldi
nú landshöfðingi hana 29. des. fyrverandi forstöðumanni hennar,
Einari þórðarsyni, fyrir 21000 kr., og voru eignarumráð hans
yfir henni talin frá 1. jan. 1876, eins og hún hefði þá seld
verið. Kaupinu fylgdu allar eignir prentsmiðjunnar: hús, áhöld,
bókaleifar og útistandandi skuldir, o. fl., en aptur heldur land-
sjóðurinn eptir forlagsrjetti á bókum, þeim er prentsmiðjan átti.
þriðjungur söluverðsins var greiddur þegar er kaupin gjörðust,
en hitt skal gjalda smámsaman, 1000 kr. árlega.
Um opinber gjöld má þess geta, að jafnaðarsjóðsgjaldið
var nú af hverju lausafjár-hundraði í suðuramtinu 40 aurar, í
vesturamtinu 60 aurar, í norður- og austuramtinu 20 aurar.
Meðalverð meðalverða eptir verðlagsskránum var: alinin
í Skaptafellssýslu.............................. 47 a.
- hinum sýslum suðuramtsins..........................57
- Mýra- Snæfellsnes- Hnappadals- og Dalasýslu . . 61
- Barðastrandar- og Strandasýslu.....................59
- ísafjarðarsýslu og kaupstað ......... 63
- Húnavatns- og SkagaQarðarsýslu.....................58
- Eyjafjarðar- og þingeyjarsýslum og Akureyri . . . 55V2 -
- Múlasýslum . .............................. 56
Tollmál mega heita ný á íslandi, í þeim skilningi, sem