Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Side 14

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Side 14
14 LANDSTJÓRN. sje hinum tveimur málunum óskylt og allt annars eðlis, þar sem þau bæði snerta hagfrœði, en þetta menntun og upplýsingu. A siðari árum hafa úr ýmsum áttum, bæði frá lærðum og leik- um, komið kvartanir yíir því, að skólamenntun vor væri að ýmsu leyti ófullkomin. Eaunar hafa skólar þeir, er verið hafa (presta- skólinn og latínuskólinn) haft álit á sjer að mörgu leyti, en bæði er það, að fyrirkomulag þeirra hefur í ýmsu ekki þótt samsvara þörfum þessara tíma, og í annan stað hefur það verið tilfinnan- legt, að skóla- eða menntunarstofnanir hefur alveg vantað í öðr- um greinum, þar sem þessir skólar hafa ekki náð til. Fyrir því þótti alþingi 1875 eigi mega lengur svo búið standa, og eptir tillögum þess skipaði stjórnin nefnd til að rannsaka skóla- málin í heild sinni, svo sem segir í fyrra árs frjettum. Skóla- nefnd þessi sneri sjer þó helzt að skólum þeim, er verið hafa, og samdi frumvörp til reglugjörða fyrir prestaskólann og latínu- skólann. Keglugjörðir nefndarinnar eru að mestu leyti sniðnar eptir hinum eldri reglugjörðum þessara skóla, er báðar voru gefnar út 30. júlí 1850, en auk þess hefur verið, að því er la- tínuskólann snertir, jafnframt höfð nokkur hliðsjón af nýlegum dönskum lagaboðum um sama efni. Hinar helztu breytingar, er nefndin hefur lagt til um presta- skólann, eru þær: að skólatíminn verði lengdur um nær því eitt ár (þrjú ár í stað tveggja), að skólaárið byrji hálfum mánuði fyr en verið hefur (15. sept.) og endi sömuleiðis hálfum mán- uði fyr (14. júní), að skerpt verði eptirlitið með siðferði og reglu- semi stúdenta, og að lítið eitt verði aukið við þær kennslugreinir, er hin eldri reglugjörð getur um, sem einnig sumpart hefur verið gjört þar hin síðari ár. Hinar helztu breytingar, er nefndin hefur lagt til um la- tínuskólann, eru þær, að skólaárið verði fœrt fram um hálfan mánuð, á sama hátt og prestaskólaárið, og að kennslunni í sum- um tungumálum verði hagað nokkuð á annan veg. pamiig hefur hún lagt það til, að í latínu skuli hraðlesa nokkuð meira en áður hefur gjört verið, en aptur minnka iðkanir í latínskum stíl allt að helmingi. Enska og frakkneska tungu ætlast hún til að kenna skuli sem skyldugreinir, en þar á mót skuli þýzka eigi framar vera skyldugrein. J>á skal og nokkuð hreytt til um ein-

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.