Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Page 16

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Page 16
16 LANDSTJÓRN. cr að cngu getandi, og nefnd sú, er við synodus er kennd, og sem meðal annars hefur á hendi það starf, að stinga upp á betri skipun prestakalla og hagfelldari kjörum presta, fær engu til vegar komið. Hinn mikli ójöfnuður og glundur, sem er á skip- un prestakailanna, launahögum presta, og gjöldum landsmanna til presta og kirkna, er af stjórnarinnar hálfu enn látið liggja í þagnargildi. par sem í ráði er, að koma á nýrri skattgjalda- skipun, eins og áður hefur verið um getið, þá nær það að eins til gjalda þeirra, er í landssjóð renna, sem virðist benda til þess, að landssjóðurinn sje fremur hafður í liuga en það, að íirra landsmenn óeðlilegum og ósamkvæmum gjöldum, því að þau mega þeir enn bera á ýmsan hátt, meðan hin forna skipun lielzt á gjöldum til presta og kirkna. Alþingi 1875, er hjó til launa- lögin og læknalögin, ætlaði í fjárlögunum 2000 kr. til uppbótar fátœkustu brauðum, en þau eru talin um 70. Af þeirri fjár- upphæð bœtti landshöfðingi eptir tillögum byskups upp fáein brauð: Stað í Súgandafirði og Stað í Aðaivík með 300 kr. hvort, en Kvíabekk, Presthóla, Svalbarð, Eeynisþing og Berg- staði með 200 kr. hvert. Enn fremur var og nokkrum öðrum prestaköllum veittur nokkurra króna fjárstyrkur eða ölmusa, sem varla er teljandi sjer í lagi. I fyrra var í frjettum þessum minnzt á 2 Mormóna, er hing- að höfðu komið til að boða trú sína. J>eir höfðu vetursetu í Keykjavík, en ljetu eigi mikið á sjer bera. J>ó prjedikuðu þeir þar eitt sinn fyrir fólki úti á víðavangi, með því að ekki fengu þeir húsrúm til þess. Hvorki þá nje endranær varð þeim nokk- uð ágengt, að því er spurzt hefur; og ervoraði, hurfu þeir apt- uf hjeðan vestur um haf til trúarbrœðra sinna í Utah í Norður- ameriku. Mormónavillunni í Vestmannaeyjum varð lítið úr, og Mormónahjón þau, er þar höfðu gengið í borgarlegt hjónaband, köstuðu trú sinni skömmu síðar. Hinn frakkneski, katólski prestur Baudoin, er dvalið hefur nokkur undanfarin ár í Keykjavík, andaðist á kynnisferð í Frakk- landi haustið 1875. Hann hafði, að því er menn hugðu, upp- haflega sezt lijer að, í því skini að boða hjer katólskan trúar- lærdóm. En litlar tilraunir virðist hann hafa gjört til þess, enda ávannst honum ekkert. Annars var hann maður vcl lærð-

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.