Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 17
LANDSTJORN.
17
ur og vel látinn. Enginn hefur komið í stað hans sem katólsk-
ur trúboði.
Sveitarstjórnarskipunin nýja virðist nú að fullu
komin á, en eigi er liún enn svo reynd, að marka megi full-
komlega, hver rjettarbót hún er. J>ó virðist hún í flestu betur
gefast en hinar eldri ákvarðanir, að því leyti sem hún er frjáls-
legri. Yfir sumum atriðum í sveitarstjórnarlögunum hefur þó verið
kvartað, og ýmist þótt óljóst, eða óhagfellt. Tvær slíkar
umkvartanir komu til síðasta alþingis, en þingið vísaði þeim frá
sjer til landshöfðingja; gaf landshöfðingi almenningi nokkrar
skýringar þar að lútandi í brjefl 24. apríl. Einkum hefur verið
kvartað yfir því. að ervitt væri að semja fjárhagsáætlanir hrepp-
anna, og sömuleiðis niðurjöfnunarskrár aukaútsvarsins fyrir far-
daga, og eru það einkum þessi atriði og annað, er stendur í
sambandi við það, sem skýringar iandshöfðingja eru um. |>að
hefur og þótt óljóst, hverjir væri gjaldskyldir til sveitar, en
landshöfðingi hefur skýrt það svo, að það væri allir, sem til þess
væri fœrir, án tillits til stöðu þeirra, tíundar eða annars sjer-
staklegs. j>á hefur það og sums staðar þótt óhagfelld tilhögun,
að ekki skyldi jafnan sýslunefndarmaður úr hverjum hrepp eiga
setu á hverjum sýslunefndarfundi.
Af fundum og aðgjörðum sýslunefnda hafa víðast hvar farið
litlar sögur. þ>ar á mót má af fundaskýrslum amtsráðanna sjá,
hvað þau hafa starfað, en fæst af því er sjerlega markvert eða
sögulegt. Af fjárkláðanum eða vörðum gegn honum höfðu ráðin
þetta ár eigi mikil afskipti. Helzt er þess að geta, að ráðin
stungu upp á vegum, þeim er skyldu vera ijallvegir. Sjerstak-
lega má og geta þess, að amtsráðið í suðuramtinu leyfði sýslu-
nefndinni í Guflbringu- og Kjósarsýslu, eptir ítrekaða beiðni,
að taka lán lianda sýslunni, er nemi 250 tunnum af rúgi, með
því sldlyrði að lánið yrði að fullu endurborgað innan árs-
loka 1878. Um leyfi til lántöku þessarar hafði verið beðið til
að afstýra hallæri í sýslunni, einkum í Vatnsleysustrandar- og
Álptaneshreppum. Sömuleiðis lagði ráðið samþykki sitt á, að
sýslunefndinni í Vestmannaeyjum hafði verið veitt 1000 króna
lán, til að afstýra haflæri þar í eyjunum.
Um sveitastjórn má enn geta þess, að tveimur hreppum
Frjettih frá íslandi. 2