Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Qupperneq 19
LANDSTJÓÍœ.
19
einkum ætluð fyrir brjef og minni sendingar. Nokkrar smá-
breytingar voru gjörðar á póstleiðum og póststöðvum. Káð var
ög gjört fyrir því, að aðalpóststöðvarnar á Austfjörðum skyldi
eptirleiðis verða á Seyðisfirði, en eigi á Djúpavogi, sem hingað
til hefur verið.
Meiri framförum tóku þó póstferðirnar á sjó, því að nú
komust loksins á reglulegar gufuskipsferðir kringum
landið, sem menn hafa svo lengi þráð eptir. Alþingi 1875
hafði í fjárlögunum veitt 15000 kr. árlega til gufuskipsferða
þessara, en þótti fje vanta til þess að standast kostnaðinn allan,
og var þó eigi gjört ráð fyrir honum meiri en 20000 kr. á ári.
Jpingið fór því þess á leit, að ríkissjóðurinn bœtti til það, sein
á vantaði, með því líka að þingið taldi það skyldu hans, sam-
kvæmt stöðulögunum 2. jan. 1871. Stjórnin þýddist raunar eigi
þenna skilning laganna, en varð þó vel við og studdi að því,
að fjeð fengist, með því að það væri að öðru leyti hagfellt að
póstgöngur þessar kœmist á. Mælt er og, að konungur sjálfur
hafi verið þessu máli vel fylgjandi. Fjeð fjckkst því nœgilegt,
og var nú ráðið, að stofna 3 gufuskipsferðir á ári hverju með-
fram ströndum landsins; en sökum þess, að áliðið var orðið vors,
er þessi ráðabreytni var algjörlega komin í kring, gátu strand-
ferðirnar eígi orðið nema tvær í fyrsta sinn. Fyrir strandsigl-
ingaskip var fengið gufuskip, það er kallað er Díana, er fyr
hefur verið herskip, en nú síðast áður póstskip milli íslands og
Danmerkur. Fyrirliði skipsins var Wandel sjóliðsforingi. Skip-
ið lagði í fyrri ferðinni af stað frá Kaupmannahöfn 11. júní, kom
á leiðinni við í Granton á Skotlandi og pórshöfn á Færeyjum,
en tók hjer fyrst land við Seyðisfjörð; þaðan hjelt það eptir
stutta dvöl norður og vestur um land áleiðis til Reykjavíkur;
á þeirri leið kom það við á Raufarhöfn, Akureyri, Skagáströnd,
Ísafirði og Stykkishólmi. Áætlaður komudagur þess til Keykja-
víkur var 30. júní. Frá Reykjavík hjelt það aptur vestur og
norður um Iand 11. júlí, og kom þá við á hinum sömu stöðum,
nema Raufarhöfn; þar gat það ekki legið sökum grynninga.
Frá Seyðisfirði hjelt það aptur til Kaupmannahafnar, og lagðí
þá sem fyr leið sína um pórshöfn og Granton. Síðari ferðin
hófst 11. ágúst, og var henni hagaðá sama hátt sem hinnifyrri að
2*