Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Page 22
22
LANDSTJORN.
s. d. kandidat Stefáni Magnúsi Jónssyni; Undirfeil 15. maí
Hjörleifi Einarssyni, presti í Goðdölum; Staður í Súganda-
firði 27. júlí Einari Vernharðssyni, presti að Stað í Grunnavík;
Goðdalir 1. sept. kandídat Sófóníasi Halldórssyni; Kvía-
bekkur s. d. kandídat Jónasi Bjarnarsyni; Hestþing s. d.
kandídat Janusi Jónssyni; Staður í Aðalvík 9. sept. Páli
Einarssyni Sivertsen, presti í Ögurþingum; Kálfholt 30. nóv.
Guðmundi Jónssyni, presti á Stóruvöllum. — J>ingmúli var
21. marz sameinaður um 3 ár við Hallormsstað, og Hof á
Skagaströnd sömuleiðis um 3 ár við Höskuldsstaði. 12. maí
var endurnýjuð sameining Kj alarnesþinga um2árvið Mos-
fell og Reynivelli. — Aðstoðarprestar urðu: að Melstað
Páll Ólafsson, prestur í Hestþingum, og að Hrafnagili
kandídat Guðmundur Helgason. — Vígðir til presta voru:
Stefán Jónsson og Stefán Magnús Jónsson 21. maí, en Sófónías
Halldórsson, Jónas Bjarnarson, Janus Jónsson og Guðmundur
Helgason 3. september.
Á læknaskipuninni varð talsverð breyting. Forstöðu-
mannsembættið við hinn nýstofnaða læknaskóla í Reykjavík var
21. febr. veitt landlækninum, doktor Jóni Hjaltalín, en honum
jafnframt veitt lausn frá hjeraðslæknisstörfum, þeirn er hann
hefur áður haft. Kennaraembætti við sama skóla var 24. maí
veitt Tómasi Hallgrímssyni, lijeraðslækni í eystra læknishjeraði
suðurumdœmisins. — 21. febr. var 1. læknishjerað (eða Reykja-
víkursókn, Kjósarsýsla og Garðaprestakall í Gullbringusýslu veitt
settum hjeraðslækni Jónasi Jónassen. 14. ágúst voru veitt: 2.
læknishjerað (Gullbringusýsla að undanskildu Garðaprestakalli)
settum hjeraðslækni J>órði Guðmundsen; 3. læknishjerað (Borg-
aríjai'ðar- og Mýrasýsla) settum hjeraðslækni Páli Blöndal; 7.
læknishjerað (Strandasýsla ásamt Garpsdals- og Staðarpresta-
köllum í Barðastrandarsýslu) settum hjeraðslækni Ólaíi Sigvalda-
syni, og honum falið að gegna fyrst um sinn 5. læknishjeraði
(hinum hluta Barðastrandarsýslu að fráskilinni Flatey); 8. læknis-
hjerað (Húnavatnssýsla vestan Blöndu) settum hjeraðslækni Júlí-
usi Halldórssyni; 9. læknishjerað (Húnavatnssýsla austan Blöndu
og Skagafjarðarsýsla að undanskilduin Fells- Barðs- og Knapp-
staðaprestaköllum) settum hjeraðslækni Boga Pjeturssyni, og var