Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Síða 24
24
LANDSTJÓRN.
mál, en 10 sakamál og opinber lögreglumál. Eigi er kunnugt,
að nein þeirra hafi verið sjerlega þýðingarmikil. Mesta eptir-
tekt manna virðast hafa vakið málin um dómsvald lögreglustjór-
ans í Qárkláðamálinu, Jóns ritara Jónssonar. Mál þessi risu af
því, að lögreglustjórinn sektaði yfirkennara Halldór Friðriksson
með smásektum fyrir óhlýðni við nokkrar fyrirskipanir hans í
kláðamálinu. fetta gjörðist fyrst tvisvar, og var í hvorttveggja
skipti skotið fyrir landsyfirrjett, en rjetturinn ónýtti málin í
bæði skiptin með því að dœma, að undirdómarinn (lögreglustjór-
inn) hefði eigi haft dómsvald, og honum hefði eigi verið gefið
það með skipunarbrjefi hans sem lögreglustjóra. En nú gaf
landshöfðingi lögreglustjóranum nýtt skipunarbrjef (15. apr.), þar
sem það var tekið skýrt fram, að hann skyldi hafa dómsvald.
J>á dœmdi lögreglustjórinn enn sama mann fyrir sams konar
brot, en hann skaut því enn til yfirrjettar, og dœmdi yfirrjettur
þá, að það lægi fyrir utan verksvið landshöfðingja, að gefa því-
líkt dómsvald, og hefði því undirdómarinn eigi heldur nú haft
dómsvald. pannig ónýtti rjetturinn málið í þriðja sinn. Önn-
ur mál, er nú voru dœmd í yfirrjetti, vöktu og eptirtekt; það
voru meiðyrðamál Hilmars Finsens landshöfðingja gegn Jóni
Ólafssyni, ritstjóra Gönguhrólfs. Máfin voru 3, og er hjeraðs-
dómanna í þeim öllum getið í frjettunum fyrir 1873 og 75.
Yfirrjettur dœmdi nú, að Jón skyldi greiða sektir: 200 kr. í einu
málinu, 400 kr. í öðru, og 600 kr. í hinu þriðja, auk málskostn-
aðar, og svo meiðyrðin ómerk. — I hæstarjetti voru nú
dœmd meiðyrðamál þeirra J>órðar Jónassens yfirdómsstjóra og
Magnúsar Stephensens yfirdómara gegn Benedikt Sveinssyni,
fyrrum yfirdómara, á þann hátt að Benedikt skyldi greiða 200
kr. sekt í hvoru málinu, auk málskostnaðar, og svo meiðyrðin
ómerk.
Atvinnuvegir.
Veðuráttufar var fyrri hluta ársins fremur stirt, en
síðari hluta ársins ágætt, svo að þá er á allt árið er fitið, má
telja það með meðalárum að veðurgœðum. Frá nýári og fram
í miðjan febrúar var mjög lirakviðrasamt víða, einkum sunnan-