Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Page 26

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Page 26
26 ATVINNUVEGIR. inni hefur verið grasinu til skýlis, meðan það var að vaxa. Sumir hugðu, að í öskunni kynnu að vera einhver, áburðarefni, með því að gras það, er upp úr öskunni spratt, þótti bæði frjóttog kosta- gott. Til þess að fá vissu um þetta, ljet Eiríkur Magnússon, bókvörður í Cambridge, rannsaka öskuefnið á efnafrœðilegan hátt, og reyndist það þá, að í því var örlitið frjófgunarefni, og ekkert það, er á svo stuttum tíma gæti veitt nokkra frjófgun. Var því einsætt, að að öskunni varð eigi annað gagn en skjól fyrir grasrótina, en það gagn varð líka mikið, þar sem askan var eigi of mikil. þJetta kemur og vel lieim við það, að tún eða það land, sem bezt var hreinsað, spratt bezt. Utantúns harð- velli spratt þar næst, en grasvöxtur var þar gisinn. Gisnast og iakast sprottið reyndist gras á mýrlendi, — sem annars staðar var bezt sprottið — en það \drðist hafa komið af því, að sú jörð varð sízt hreinsuð, og öskuskánin hefur verið þar of mikil. Askan hefur þetta ár töluvert rjenað og borizt burt, bæði af vindi og vatnsrensli, en þó sjást enn sums staðar miklar menjar hennar. Á sumum jörðurn, þeim er í eyði lögðust á Efra Jökuldal, hefur aptur verið tekin upp byggð, en sumar eru enn óbyggðar og ó- byggilegar. Jarðabœtur hafa drjúgum aukizt, og hefur víða sjezt vottur um framfarahug og nýja framtakssemi í þessari grein, er lengi hefur verið lítill gaumur gefinn. Einkum hafa menn lagt hug á vatnsveitingar og starfað að þeim, þar sem þeim verður við komið. Voryrkjur gengu raunar tregt, með því að þeli fór seint úr jörð, og margir þurftu venju fremur að sinna fjenaði, sökum illra fjárhalda. En haustyrkjurnar urðu því meiri og margur notaði hina góðu tíð, og það, að jörð var svo lengi þíð, til að vinna að jarðabótum fram á vetur. Fjenaðarhöld á sauðfje urðu víða í lakasta lagi. Farið var sums staðar að brydda á heyskorti um vorið, áður en bat- inn kom, og voru sumir þá komnir á heljarþröm með hey sín, ekki sízt í öskusveitunum, sem vorkunn var; mjög hjálpuðu þó kornbirgðirnar þeim, þær er þeir höfðu fengið að gjöf af Eng- lendingum, og á því komu þeir fram miklu meiri fjenaði en ella mundi hafa orðið. En þó að heytæpt væri víða, björguðust þó flestir, og eigi virðist fóðurskortur hafa valdið því, að fjenaðar-

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.