Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Side 27

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Side 27
ATVINNUVEGIR. 27 liöldin urðu hjá mörgum svo bág sem þau urðu, heldur fremur hitt, að hey var ljett og óhollt frá árinu áður, og að minsta kosti sums staðar jörðin óholl til beitar af langvinnum þyrrk- ingum, þar sem hún var ber. Fje fjell sums staðar um vorið, eigi síður þó feitt væri en magurt, úr einhvers konar doðasótt, og sums staðar úr lungnaveiki. Lökust virðast fjenaðarhöldin hafa vérið í kringum Jökul vestra, en í Austur-Skaptafellssýslu og Suðurmúlasýslu eystra. par á mót er svo að sjá, sem fjen- aðarhöld hafl að tiltölu orðið bezt á kláðasvæðinu syðra, sem þakkað var hinum tíðu böðunum og þar af leiðandi nánari fjár- hirðingu, og sömuleiðis í öskusveitunum eystra, sem þakkað var því, að askan hafði skýlt grasinu í uppvextinum og með því varðveitt fóðurmagn þess. IJar gekk og sauðburður vel og mál- nyta kúpenings var furðanlega mikil, en víða annars staðar var livorttveggja þetta í lakara lagi. Sláturfje reyndist að haustinu vel á hold, en var mörlítið. Fjárkláðinn var enn uppi, og þótt hann eigi fœri geyst og væri nú orðinn hvergi nærri eins skœður og á sínum fyrri árum, gjörði hann nú enn að vanda mikið mein; því að bæði eyddi hann að fje fjársælustu hjeruð, en bakaði einnig öðrurn hjeruðum óreiknandi kostnað, hæði þeim, er sjúkt eða grunað Qe var í, og sömuleiðis þeim, er þurftu að verja sig lionum. Allar þær skoðanir, baðanir og verðir, er af honurn liafa leitt, hafa gjört mörgum œrið tilfmnanlegt tjón; en liitt er þó verra, að af honum hefur víða leitt ósamlyndi og úlfúð milli hjeraða og einstakra manna, málaþras milli sumra, óhlýðni við yfirvöld, stríð við hœndur o. s. frv. Frá því er sagt í fyrra árs frjett- um, að lögreglustjóranum í kláðamálinu, Jóni Jónssyni ritara, tókst með niðurskurði, er hlutaðeigendur samþykktu, að hreinsa þann hluta kláðasvæðisins, er mönnum lengst stóð ótti af, en það voru suðurhjeruðin í Gullbringusýslu. Með valdi varð þó að skera hjá tveim fjáreigöndum, er fjc áttu síðast eptir, og risu af því nokkur málaferli, að eigi þótti rjett að öllu farið. Nú varð eptir þetta þessum hjeruðum eigi lengur um kennt, og hugðu nú margir, að kláðinn mundi þegar á förum; en eigi varð sú raunin á. Eptir nýár varð enn vart við kláðavott í Ölvusi, Grímsnesi, Ivjós og einkum í Borgarfirði. Alls staðar

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.