Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 32

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 32
32 ATVINNUVEGIR. arsson. Allir þessir ritlingar þóttu góðir og þarfir, liver í sinni röð. Aflabrögð úr sjó voru víðast fremur góð, og sums stað- ar afbragðs góð. í Faxaflóa, sem lengi var talinn ein aðal- veiðistöð landsins, brást nú þar á mót fiskiafli því nær gjör- samlega allar vertíðir. A vetrarvertíðiuni voru þar lengst af stirðar gæftir, enda var enginn fiskur fyrir. Á vorvertíðinni aflaðist þar lítið eitt, en aptur því nær ekkert um sumarið og haustið. í veiðistöðvunum austanfjalls syðra aflaðist að mun betur um vetrarvertíðina, en þó bezt á Eyrarbakka, einkum ýsa. Undir Jökli aflaðist sœmilega um veturinn, þegar róa gaf, og vel um vorið, en aptur lítið um sumarið og liaustið. Yið ísa- ijarðardjúp var lítill fiskiafli um veturinn, en aptur góður um sumarið, og þó endasleppur. í fjörðunum fyrir norðan land aflaðist fremur vcl um veturinn, þegar á sjó varð komizt fyrir hafísnum; um vorið aflaðist þarsumsstaðar afbragðsvel, og aptur um haustið, einkum á Skagafirði og Eyjafirði. Við Austfirði virðast aflabrögðin hafa orðið hvað bezt, eins og opt hefur verið á síðari árum; einkum var þar góður sumar- og haustafli. — Síld aflaðist vel á Eyjafirði, áður en ísinn kom um veturinn, og aptur nokkuð um haustið. Á Austfjörðum var góð síldar- veiði um sumarið. — Hákarlsaflinn virðist hafa heppnazt víðast í betra lagi. — Af selafla hafa litlar sögur farið. — Laxveiði í ám var góð um sumarið, einkum á suðurlandi. Rekar urðu nokkrir með hafísnum fyrir norðan land um veturinn. Trjáreka er þó eigi getið. J>ar á mót rak sums staðar hnísur og höfrunga, einkum á Langanesi, í Kelduhverfi og á Eyjafirði. Sums staðar rak og seli, og eitt bjarndýr náðist eystra, er komið hafði á ísnum. Hval rak og þá á Tjörnesi, og ann- an á Höfðaströnd. Hval rak einnig um haustið í Vestmanna- eyjum. Sökum þess hvað aflabrögðin víða urðu góð og að að öðru leyti ljet vel í ári, þá munu óvíða hafa orðið bjargræðis- vandræði, nema í Vestmannaeyjum og hjeruðunum kringum Faxaflóa. í Vestmannaeyjum hafði lengi verið því nær fiskilaust, og garðrœkt, er þar er stunduð að mun, misheppnazt árið áður; Veturinn 1875—76 voru matarbirgðir þar mjög litlar, en nálega

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.