Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Qupperneq 37
ATVINNUVEGIR.
37
Námur voru nú unnar á tveimur stöðum, kalknáman í
Esjunni og brennisteinsnámurnar í pingeyjarsj'slu. — Doktor
Jón Hjaltalín, er manna fróðastur er um jarðlög landsins, hafði
sannfœrt menn um, að kalk væri í Esjunni, og eptir hvötum
hans tókst Egill kaupmaður Egilsson í Reykjavík á hendur, að
gjöra þar kalknám. Tók hann þar því land á leigu, og byrjaði
að vinna námuna, en hin fyrsta tilraun misheppnaðist. Nú var
aptur gjör ný tilraun, er tókst ágætlega. Stór kalkbrennsluofn
var reistur í Reykjavík, kalldð flutt þangað og brennt, hátt á
annað hundrað tunnur í einu. þegar farið var að reyna kalkið,
gafst það svo vel, að helmingi minna þurfti af því en útlendu
kalki, því er hingað til lands hefur flutzt að undanförnu; svo
var límingarafl þess mikið. Tunnan af því var seld á 6 krónur,
eins og útlent kalk. þ>að þótti líklegt, að náma þessi mundi
vera því nær óþrjótandi, en örðugt var að vinna hana og flytja
kalksteininn til Reykjavíkur. Landshöfðingi veitti, meðfram ept-
ir tillögum alþingis, 400 kr. af fje því til óvísra útgjalda, or
hann hefur til umráða, fyrirtœki þessu til styrktar. Með fyrir-
tœki þessu er stofnuð ný atvinnugrein, er líklegt er að verði til
mikilla nota fyrir land og lýð, þá er fram líða stundir. — Al-
fred Lock, sá er tekið hefur á leigu brennisteinsnámurnar í
pingcyjarsýslu, sendi nú son sinn hingað til að vinna brenni-
steininn í feistareykjanámum; hafði liann þar um sumarið 12
—16 manna við brennisteinsnámið undir forustu Páls Pálssonar
Vatnajökulsfara. Brennisteinninn var fluttur á hestum til Húsa-
víkur, langan veg og erviðan. pangað kom skip um haustið
frá Englandi til að sœkja brennisteininn, og flutti það einnig
nokkuð sláturíje. Skáli var reistur við námurnar handa nokkr-
um mönnum, er halda skyldu áfram náminu um veturinn.
Brennisteinsnám þetta varð mörgum innlendum til hagnaðar,
með því að veita þeim góða atvinnu o. fl.
pess má hjer enn geta, að pingeyingar brúuðu Laxá í
Aðalreykjadal við Brúafossa. Brúin er í tvennu lagi, því að á-
in rennur þar í tveim kvíslum. Hún er gjör úr trje með öflug-
um steinstöplum undir. Annar hluti hennar er 10—12 álnir
að lengd, en hinn 20 álnir; 3 álnir er hún að breidd. Öll brú-
in er talin kosta 5—6 þúsundir króna, er að nokkru leyti voru