Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Side 42

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Side 42
42 MENNTUN. liöfundurinn hafði hugsað sjer það. Bókinni fylgir æliágrip skáldsins. — 5. Skuggsjá og ráðgáta, hugmynd urn guð og verk hans, dregin af tilsvörun hins eiustaka til liins gjör- valla, heimspekilegt kvæði eptir Brynjólf Jónsson frá Minna Núpi. [>ctta kvæði lýsir djúpri og reglubundinni hugsun, sem hvervetna er sjálfri sjer samkvæm í öllu kvæðinu; og hvort sem menn þýðast hinar dulspekilegu hugmyndir höfundarins eða ekki, eru þær þó vottur frábærra vitsmuna og jafnframt stakrar menntunar hjá ólærðum leikmanni. Aptan við kvæði þetta eru prentuð nokkur minni kvæði eptir sama höfund, sum ágæt og öll velkveðin. — 6. För pílagrímsins frá þessum heimi til hins ókomna, eptir Jolin Bunyan, þýdd úr ensku af Ei- ríki Magnússyni í Cambridge. [>að er saga, sem lýsir mann- legu trúar- og siðferðislífi í orðum og athöfnum ímyndaðra manna, og er talin einhver hin bezta líkingasaga trúarlegs efn- is. Hún hefur áunnið sjer lofstír svo inikinn, að hún hefur opt- ar verið gefin út og optar þýdd, en nokkur önnur ensk bók frumritin. [>essi íslenzka útgáfa er vönduð að þýðingu og öllum frágangi, og prýdd litmyndum. Bók þessi hefur áður verið þýdd á íslenzku af Oddi Gíslasyni, og var þá nefnd Krossgangan. — 7. Saga hinna tíu ráðgjafa, úr 1001 nótt, skáldleg saga og þýdd með snilld af Steingrími Thorsteinson. — 8. Smá- sögur, er byskup Pjetur Pjetursson hefur safnað og íslenzkað til ágóða fyrir prestaekknasjóðinn. Sögusafn þetta er vel valið og vel lagað fyrir unglinga, mcð því að sögurnar cru ýmist skemmtandi eða glœðandi góðar tilfinningar. — 9. Saganaf Holta-[>óri, söguþáttur úr fornöld íslands, sem eigi hefuráð- ur verið prentaður. — 10. Beikningsbók Eiríks Briems, 2. útgáfa. þ>cssi reikningsbók, sem hefur áunnið sjer maklegt lof fyrir glöggleika sinn og nákvæmni, þurfti nú aptur að yngjast upp, sökum hins nýja peningareiknings, sem kominn er, síðan hin eldri útgáfa kom út, enda mun hún og hafa verið uppseld. I>essi útgáfa er ekki síður vönduð en hin fyrri. — Á búnaðar- ritlingana er áður minnzt. Af tímaritum má einkum nefna Andvara, tímaritþjóð- vinafjolagsins, 3. árgang, er nú hafði meðferðis ritgjörð um þjóðvinafjelagið eptir Jón Sigurðsson; um rjett íslcnzkrar tungu;

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.