Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Síða 44
44
MENNTUN.
lá skjaldarbólan. Fornleifar þessar virtust vora úr heiðni. í
|>jórsárdal fundust smáplötur úr blýi á þeim stað, sem menn
hyggja að Hjalti Skeggjason hafi búið, og hafa sumir getið til,
að blýplötur þessar liafi verið úr þaki á kirkju hans. — Nátt-
úrusögusafni latínuskólans bœttust nú 2 fuglshamir og egg nokk-
urra fuglategunda úr ýmsum löndum, og sömulciðis nokkrar
steinategundir bæði hjeðan af landi og frá Sandwichseyjum.
A skólana hefur verið minnzt hjer að framan, þar sem
getið var um skólanefndina og stofnun læknaskólans. Skólamál-
in eru þá komin í þá hreyfing, að vænta má af því nokkurra
tíðinda á næstu árum, en að svo komnu er ekkert frekara um
það að segja. Hjer er að eins að geta stuttlega um skóla þá
sem eru. Við háskólann í Kaupmannahöfn lásu veturinn
1875—76: 15 stúdentar íslenzkir. Af þeim lásu 4 lögfrœði, 3
guðfrœði, 3 læknisfrœði, 1 náttúrufrceði, 1 tölvísi, 2 málfrœði og
1 stjórnfrœði. — Við prestaskólann voru stúdentar 8 að
tölu veturinn 1875—76. Af þeim útskrifuðust 5 um sumarið,
en 5 bœttust við um haustið, svo að veturinn 1876—77 urðu
stúdentarnir aptur 8, 3 í hinni eldri deild, en 5 í hinni yngri.
feir sem útskrifuðust voru: Guðmundur Helgason, Janus Jóns-
son, Sófónías Halldórsson, Jónas Bjarnarson og Sigurður Jens-
son, og fengu þeir allir fyrstu einkunn. Próf í forspjallsvísind-
um eða heimspeki tóku 5 stúdentar í júnímán., 2 með fyrstu,
en 3 með annari einkunn. — Við læknaskólann voru stú-
dentar 5 veturinn 1876—77. Einn hafði útskrifazt um sumar-
ið, Guðmundur Guðmundsson, og fjekk hann fyrstu oinkunn. —
Við latínuskólann voru 70 lærisveinar í byrjun skólaársins
1875—76, en 78 í sama mund veturinn eptir. Af þeim, sem
voru fyrri veturinn, dó einn í febrúar (Gísli Bjarnarson frá
Holti), 2 fóru úr skóla, en 7 útskrifuðust: Einar Jónsson og
Guðlaugur Guðmundsson, báðir með fyrstu einkunn, og Jón
Jensson, Sigurður J>órðarson, Sigurður Olafsson, Davíð Scheving
og Dorsteinn Benediktsson, allir með annari einkunn. Auk þeirra
tók einn utanskólasveinn, Olafur Ólafsson, burtfararpróf, með
annari eiukunn. — Barnaskólar voru nú haldnir allvíða, eigi
að eins í Iíeykjavík og hinum helztu kaupstöðum öðrum, held-
ur og á uokkrum stöðum í sjóbyggðum, einkum á suðurlandi.