Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Page 47

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Page 47
MENNTUN. 47 í annan stað er frá því að segja, að stjórnin sendi hingað hinn nafnkennda náttúrufrœðing, Johnstrup prófessór, til þess að rannsaka eldstöðvarnar í Dyngjufjöllum og á Mývatnsörœf- um. Hafði ríkisþingið veitt fjárstyrk nokkurn til þessa. John- strup hafði áður fyrir nokkrum árum ferðazt hjer um, er stjórn- in sendi hann til að skoða brcnnisteinsnámurnar í fingeyjar- sýslu, og var hjer að góðu kunnur. Hann kom nú út í júní- mánuði í Reykjavík, og voru í för hans Caroc sjóliðsforingi, er aðstoða skyldi hann við mælingar, og stúdentar tveir: þorvald- ur Thóroddsen og annar danskur, Howitz að nafni. Frá Eeykja- vík hjeldu þeir íjelagar sjóleið til Akureyrar, en lögðu þaðan landveg áleiðis upp til Dyngjufjalla. Var Björn bóndi Björns- son frá Breiðabólstöðum í för með þeim. feir lögðu upp frá Svartárkoti í Bárðardal 30. júní, og fóru hinn sama veg, er þeir Jón í Víðikeri höfðu farið um veturinn. |>á er þeir komu upp í fjöllin, varð fyrir þeim Vonarskarð, og nefndi Johnstrup það Jónsskarð, eptir þeim er fyrstur fann; það er rúmlega 4000 feta hátt yfir sjávarmál. pá tók Askja við, og tjölduðu þeir undir norðurbrún hennar. Höfðu þeir þá verið 12 stundir úr byggðinni, og var þó vegurinn að mestu ógreiður. Fylgdar- mennirnir sneru nú aptur til byggða, en þeir Johnstrup og Caroc fjetu fyrirberast þar í fjöllunum nokkra daga, og könnuðu eld- stöðvarnar, þá er þeir komust úr tjöldunum fyrir illviðrum. Ept- ir það sneru þeir aptur ofan í Bárðardal. Síðan hjeldu þeir norður til Reykjahlíðar við Mývatn, og könnuðu þaðan Mývatns- örœfin eða hinar nyrðri eldstöðvarnar. Eptir það skildu þeir fjelagar, og sneri Caroc heim í leið, og annar stúdentinn (Howits) var sendur með skipi frá Húsavík til Kaupmannahafnar með steinasafn mikið, er þeir höfðu fengið á eldstöðvunum. Síðan fór Johnstrup að kanna fjöllin kringum Mývatn og hraun það, er runnið hefur úr Leirhnúksgígunum öndverðlega á 18. öld. þaðan fór hann til Húsavíkur og út að Hjeðinshöfða til að skoða Hallbjarnarstaðakamb og surtarbrandslögin við Skúfá. pá hafði hann lokið rannsóknum sínum, og sneri aptur til Akureyrar. |>aðan fór hann með strandapóstskipinu Díönu til Reykjavíkur 30. ágúst, og hjelt þaðan heimleiðis til Kaupmannahafnar skömmu síðar. Áður en liann fór úr Reykjavík, hjelt hann þar þijá fyr-

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.