Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Page 50
50
MANNALÁT.
inu. Hann dó 3. nóv., og var þá orðinn 95 ára gamall (f. 31/a
1781); hafði liann þá verið blindur nálægt 30 árum. Hann var
talinn einhver mestur vitsmunamaður á sinni öld, og lögfrœð-
ingur afbragðsgóður. Hann unni mjög bókmenntum, og var
einn af stofnöndum bókmenntafjelagsins. — Hinn þriðji var Ó-
lafur Pálsson, fyrrum dómkirkjuprestur í Eeykjavík, en síð-
ast prestur að Melstað og prófastur í Húnavatnsþingi. Hann
dó 4. ágúst., 62 ára (f. 7/s 1814). Hann var gáfumaður góður
og vel lærður; embætti sitt stundaði hann með hinni mestu al-
úð, og kom hvervetna fram sem mikið prúðmenni, ljúfmenni og
valmenni. — Húnvetningar misstu einnig sýslumann sinn, er
var Bjarni Einar Magnússon. Hann varð bráðkvaddur á
uppstigningardag 25. maí, og var þá að eins 45 ára (f. 1831).
Ilann þótti stjórnsamt yfirvald og var vel látinn höfðingi. —
9. marz dó Sigfús Jónsson, prestur að Undirfelli, 61 árs
(f. 21/to 1815). Hann var afbragðs lipurmenni og snillingur um
marga hluti. — 12. okt,. andaðist Jón Ingjaldsson, prest-
ur í Húsavík, 77 ára (f. % 1799). Hann var fróðleiksmaður
mikill, og lagði einkum stund á fornfrœði. — 12. marz drukkn-
aði í Hjeraðsvötnum Jón Árnason, bóndi á Víðimýri, mið-
aldra. Hann var mikill gáfumaður og fjörmaður, skáld gott og
vel að sjer um margt. — 4. júlí dó Magnús Einarsson,
bóndi í Skáleyjum, rúml. 80 ára. Hann var einkum kunnur
fyrir guðfrœðisiðkanir sínar, en var einnig að öðru merkur mað-
ur. — 31. ág. Ijezt Ari Sæmundsen, fyrrum umboðsmaður,
á Akureyri, 79 ára. Hann þótti með fróðustu leikmönnum sjer
samtíða, og lagði stund á margt, þar á meðal söngfrœði, er um
þær mundir var hjer lítt kunn. Hann hafði mörgum störfum
að gegna, og leysti þau vel af hendi. — í Stykkishólmi dóu
tveir merkir menn úr Kaupmannastjett: Benedikt Bogason
Benediktsen 14. sept., 78 ára, og Páll Pálsson Hjalta-
lín 5. okt., 70 ára. Um jólin dó búfrœðingur Ólafur Sveins-
son, tæplega miðaldra, og þótti að honum mannskaði. — Með-
al þeirra merkiskvenna, er nú ljetuzt, voru þær þ>órunn Ste-
phensen ekkja Hannesar prófasts Stephensens á Ytra Hólmi,
en dóttir Magnúsar konferenzráðs, og Hólmfríður þ>or-