Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Qupperneq 7

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Qupperneq 7
þlNG OG STJÓRN. 7 mönnum til landshöfðingja, og voru þær þessar: Fyrirspurn frá Jóni Ólafssyni um skilning á 7. gr. laga 27. febr. 1880 um stjórn safnaðamála, og gaf landshöfðingi það svar, að hana bæri að skilja bara eptir orðunum. Svo var fyrirspurn frá Arnljóti Ólafssyni um prentun prestaskólafyrirlestra, og var það svar gefið, að kennendurnir mundi við fyrstu hentugleika hafa í huga að gefa eitthvað út af fyrirlestrum, er styrkur fengist til þess. friðja fyrirspurnin var frá Halldóri Friðrikssyni um reglugjörð lærða skólans, er kennarar skólans endurskoðuðu veturinn 1879—80, og gjörðu ýmsar breytingar á. Þá fyrst vissi enginn um hana meir, en síðar kom fram, að hún hafði legið í gleymsku og þagnargildi hjá einhverjum af yfirstjórn- endum skólans. YJirskoðunarmenn landsreikninganna 1880 —81 voru kosn- ir hinir sömu og áður, Magnús yfirdómari Stephensen og dr. Grímur Thomsen. Alþingi var slitið 27. dag ágústmánaðar, og hafði það þá staðið nær 8'/« viku eða 58 daga; voru af þeim 50 virkir dagar, og voru á þeim tíma haldnir 68 fundir í neðri deild þess, 50 fundir í efri deild og 4 í sameinuðu þingi. Alls hafði það til meðferðar 106 mál, voru þar af 16 konungleg laga- frumvörp, og 70 frumvörp, er þingmenn sjálfir báru upp, og 20 tillögur til þingsályktunar. Af hinum konunglegu frumvörp- um náðu 10 fram að ganga sem lög á þinginu, 1 var eigi út- rætt, 4 voru felld og 1 tekið aptur. Af frumvörpum þing- manna voru 19 afgreidd sem lög, 15 eigi útrædd, 32 felld og 4 tekin aptur; af tillögunum til þingsályktana voru 11 sam- þykktar, 5 eigi útræddar og 4 felldar. Að síðustu má telja hinar 4 fyrirspurnir, er komu til umræðu á þinginu; þann- ig hafa þá 40 mál verið samþykkt og til lykta leidd, 40 verið felld, og 21 bíður úrslita sinna á næsta þingi. Það má skoða svo, sem þetta þing hafi mikið afrekað, þar sem það hafði slíkan sæg af málum undir höndum og gat því eigi varið löngum tíma til hvers af þeim. Sum þeirra voru líka svo umfangsmikil, að þau urðu eigi út kljáð á stuttum tíma, svo sem landbúnaðarlaga-málið, sem þingmenn liafa verið

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.