Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Blaðsíða 11

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Blaðsíða 11
ÞING OG STJÓRN. 11 sín í ánum, og viljað sanna með því eindreginn eignarrjett sinn á hverri bröndu í þeim. í’ótti alþingi þá fullsannað, að jarðir þær, er lægi að ánum fyrir ofan fossa þessa, ættu fullan veiðirjett í ánum, og Thomsen kaupmaður væri óheimildar- maður að þvergirðingum þeim, er hann hefði í ánum. Var svo að síðustu skorað á landsstjórnina að láta eigi lengur dragast að höfða mál gegn honum fyrir þvergirðingar og þar af leið- andi veiðispilli fyrir landi þjóðjarðar einnar, er í Hólmi hoitir, og á land að ánum, og gjöra þvergirðingarnar upptækar á á- byrgð landssjóðs. Landshöfðingi skaut málinu til ráðgjafans, en ráðgjaflnn drap því á dreif, og rjeð tii að bíða með það þar til hæstarjettarmáli Thomsens út af þvergirðingunum væri lokið, svo að sjá mætti lok þess. En hlutverk landritarans var eigi þar með búið, hann var og skipaður dómari til þess að grafa upp og rannsaka hverjir þeir óaldarmenn væru, er brotið hefðu veiðigögn Thomsens í Elliðaánum aptur og aptur þar á undan. Ritarinn gekk fram í þessari sýslu sinni með dæmafárri röggsemd, og gekk eigi á öðru en sífeldum heptingum, bæði á sekum og saklausum, um áraskiptin, og lauk svo þessum löngu rannsóknum eptir að yfir 30 manns höfðu verið rannsakaðir, að dómur var eigi kveðinn upp í málinu þetta ár. Vegabótum, bæði á fjallvegum og sýsluvegum, var haldið áfram sem áður, og var gjörður nýr vegur yfir Hellisheiði, svo að nú er ósiitinn vegur frá því fyrir neðan Svínahraun og austur í Ölfus. Nyrðra var vegagjörðinni á Holtavörðuheiði lokið, og haldið áfram með veginn á Grímstunguheiði, og farið að gjöra veg að nýju yfir Hrútafjarðarháls. Svo var og unnið að mörgum öðrum íjallvegum, þótt þeir verði eigi hjer taldir. Pá var og byrjað á brúnni yfir Slcjálfandafljót þannig að steinstöplar voru hlaðnir undir brúarendana, eða brúaend- ana, því að fljótið er brúað í tvennu lagi; F. Bald yfirsmiður þinghússins sá um hleðsluna. Tryggvi Gunnarsson kaupstjóri sá um kaup öll til brúargjörðarinnar, og voru fyrir árslok gengnar til þess yflr 6000 kr. Enn þá var haldið áfram að tala um brúargjörðirnur á fljórsá og Olfusá, en eigi meira,

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.