Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Blaðsíða 12

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Blaðsíða 12
12 pING OG STJÓRN. því að mönnum hefir ógnað kostnaðurinn, þegar til heflr komið, því að þeir einu, er vildu taka það að sjer, nl. Riedel & Linde- gaard í Kaupmannahöfn, vildu eigi takast það á hendur fyrir minna en 192000 kr. Rjeð því ráðgjafinn landshöfðingja til að snúa sjer heldur að öðru boði, sem G! Klentz timburmeist- ari í Kaupmannahöfn hefir gefið kost á, nl. að koma flugferju eða dragferju á þær með þolanlegum kostnaði. Klentz býðst til að setja fiugferjuna á Ölfusá fyrir 15800 kr. Ráðgjafinn var á þeirri skoðun, að þessar ferjur mundi að mestu fullnægja þörfum manna hjer á landi, enda álíta margir hann hafa mikið til síns máls í því. Ovfuskipaferðunum til landsins var nú þetta ár hagað nokkru öðruvísi en árið áður, að því, er þau voru nú í sum- um strandferðunum látin gjöra lykkju á leið sína til Reykjavík- ur áður en þau fóru norður um land að austan. Alls voru á- kveðnar 11 ferðir til landsins, og áttu 5 af þeim að fara kring um land allt. En þetta fór nokkuð öðruvísi en áhorfðist, því að í janúarferðinni strandaði Fönix í Faxaflóa, og komst við það hik á ferðirnar um sinn. Svo tálmuðu og hafísar hinni fyrstu ferð til norðurlandsins. Alþingi tók til umræðu gufuskipaferðirnar, og samdi áætlanir 3 til ferðanna, og fór fram á, að Borðeyri og Djúpavog væri bætt við komustaði skipsins. Sömuleiðis mæltist það til, að gufuskipafjelagið stæði við samning sinn um lyptingarnar á skipunum, og sæi svo um, að dagfæði yrði eigi látið fara fram úr 4 kr. á fyrstu lyptingu. Gufuskipafjelagið var mjög hrætt við miðsvetrarferðina, eptir að Fönix hafði farizt, og aftók að senda skip í janúar 1882, en lofaði að senda einni ferð fleira um sumarið, svo að ferð- irnar yrði samt 11 talsins. Sömuleiðis kvaðst það ekki hafa á móti því, að fæðispeningarnir á 1. lyptingu væri settir niður í 4 krónur, ef viðurgjörningur væri að því skapi rírari en áður, og að farþegar kring um ísland þyrftu eigi að borga aðra fæð- ispeninga en þá, er þeir keyptu fyrir í eitt og eitt skipti, hvort sem það leyfi nær til allra lyptinganna eða eigi. Um leið gat gufuskipafjelagið þess rjett svona, að alþingi mundi reyndar lít.ið eiga með að skipta sjer um matarsölu á skipum sínum. A ferðum landpóstanna urðu engar þær breytingar, sem svo voru aðkvæðamiklar að þeirra sje hjer getandi. Hins veg-

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.