Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Qupperneq 13
pING OG STJÓRN.
13
ar komu fram ákvarðanir um fiutninga á póstsendingum, og
var sú breyting gjör með lögum 4. nóv., að póstum yrði eigi
gjört að skyldu að taka þyngri böggla en 1 pund til flutnings
frá því í nóvembermánuði og fram í marz, nema dagblöð í
krossbandi. Til þessara laga mun hafa borið, að póstgöngur
og póstflutningar urðu svo óbærilega erfiðar og kostnaðarsamar
veturinn 1880—81. fá voru og gjörðar nákvæmari ákvarðan-
ir en áður höfðu verið um böggulsendingar án tiltekinnar vcrð-
liæðar frá pósthúsunum á íslandi til Svíþjóðar, Noregs, I'ý/.ka-
lands, Austurríkis og Ungarns, Belgíu, Sviss, Frakklands, Ítalíu,
Egiptalands og smáríkjanna norðan til á Balkansskaga. Hver
böggull má vega allt að 6 pd. Burðareyrir er þessi: Til Sví-
þjóðar og Norvegs: 30 au. fyrir pd. upp að 30 pundum, úr
1,20 fyrir böggulinn; til fýskalands 72 au fyrir böggulinn:
til Austurríkis og Ungaralands, Sviss og Belgíu, Frakklands Lux-
emburgar og Ítalíu 1,08 fyrir böggulinn; Bulgaríu 1,98, til
annara fylkja á Balkanskaga 1,62, Alexandríu 2,16, til annara
staða í Egiptalandi 2,34 fyrir böggulinn.
Svo sem getið var um í frjettum frá fyrra ári, var þá gjör
sú breyting á verðlagsskrárnmdœmunum, að upp frá því skyldi
eigi vera nema ein sýsla í hverju umdæmi, þar sem áður höfðu
víða verið tvær saman; þótti þetta valda nokkrum ójöfnuði og
var því breytt til. f>etta ár voru því samdar verðlagsskrár
fyrir hverja sýslu fyrir sig, og þótti mönnum þegar sú tilhög-
un góðum mun betri. Meðalverð allra meðalverða í hverri
sýslu varð á þessa leið:
I Austur-Skaptafellssýslu var meðalalin . . 50 aura.
- Vestur-Skaptafellssýslu....................46 —
- Iiangárvallasýslu .............................47 —
- Árnessýslu .................................. 54 —
- Vestmannaeyjasýslu.........................49 —
- Gullbringu- og Kjósarsýslu og Reykjavíkurbæ 56 —
- Borgarfjarðarsýslu.........................57 —
- Mýrasýslu..................................59 —
- Snæfellsness- og Hnappadalssýslu .... 58 —
- Dalasýslu, Barðastrandarsýslu, ísafjarðarsýslu
og Ísaíjarðarkaupstað, hverri..............57 —
- Strandasýslu...............................58 —