Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Page 15

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Page 15
pING OG STJÓRN. 15 Hinn 19. dag júlímánaðar veitti konungur herra landlækni Jóni Hjaltcdín lausn í náð frá embætti sínu með eptirlaunum, og sæmdi hann um leið etazráðs nafnbót. En 30. dag ágústmánaðar var hjeraðslæknir Jónas Jónassen sottur til að gegna landlæknisembættinu og forstöðumannsembættinu við læknaskólann, ásamt hinu fyrra skyldustarfi sínu. En 15. september var hann settur til að þjóna eingöngu landlæknis- embættinu og forstöðumannsembættinu við læknaskólann, en þá um leið var Tómas læknaskólakennari Hallgrímsson settur læknir í 1. læknishjeraði (Reykjavík og norðurhluta Gullbringu- og Kjósarsýslu), og cand. med. & chir. Gaðni Guðmundsson settur kennari í hans stað við læknaskólann. Á læknaskipun út um landið varð engin önnur breyting en sú, að cand. med. & ehir. Davíð Scheving porsteinsson var skipaður hjeraðslæknir í 5. læknishjeraði (Barðastrandar- sýslu, nema Flateyjar, Garpsdals- og Staðar-prestaköllum) 5. dag maímánaðar. Á amtmannsembœttinu nyrðra varð sú breyting, að kon- ungur veitti amtmanninum í norður- og austurumdæminu, Kristjáni Christjánsson, lausn frá embætti sínu 9. dag júní- mánaðar, með fullum eptirlaunum, en í hans stað var kanídat Júlíus Havstein, assistent í liinni íslenzku stjórnardeild, sama dag settur amtraaður í sama umdæmi frá 1. júlí s. á. Á skipun sýslumanna landsins urðu þessar breytingar: Sýslumaðurinn í Strandasýslu, Sígurður Eiríksson Sverr- issen var settur til að þjóna Dalasýslu ásamt mcð sínu eigin embætti 16. dag júnímánaðar. 3. dag maímánaðar skipaði konungur Adam Ludvig Emil Fischer, sýslumann í Skaptafellssýslu, til að vera sýslumann í Barðastrandarsýslu frá 1. júlí s. á. 20. dag júnímánaðar var Ingimundi hreppstjóra Eirikssyni falin á hendi sýslumannsstörfin í Skaptafellssýslu, nema dóm- arastörf; þau voru falin 1 austur- og vestur-sýslunum sýslu- mönnum þeim, er næstir voru. 20. dag júlímánaðar var cand. juris Sigurður Ólafsson settur til að gegna sýslumannstörfum í sömu sýslu frá 1. degi ágústmánaðar s. á.

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.