Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Qupperneq 17
pING OG STJÓRN.
17
Austniann, prestur að Saurbæ í Eyjafirði, Stöð í Stöðvarfirði í
Suður-Múlasýslu. — 29. s. m. fjekk Brynjölfur Jónsson, prest-
ur í Reynisþingum, Hofs- og Háls-prestakall í Suður-Múlasýslu.
— S. d. fjekk kandídat porsteinn Halldórsson Mjóafjarðar-
prestakall í sömu sýslu.
Eitt brauð veitti konungur á þessu ári, nl.: Guðmundi
Helgasyni Akureyrarprestakall í Eyjafjarða'rsýslu 3. dag maí-
mánaðar. Hann hafði áður þjónað Odda fardagaárið 1880—81
á eigin ábyrgð.
ÍTír prófastar voru skipaðir á þessu ári: Skúli Gíslason
prestur á Breiðabólsstað, prófastur í Kangárvallasýslu, Jón pórð-
arson prestur á Auðkúlu, prófastur í Húnavatnssýslu og pór-
arinn Kristjánsson prestur í Vatnsfirði, prófastur í Norður-
ísafjarðarprófastsdæmi.
Lausn Jrá embætti fengu þessir prestar: Páll Tómasson
prestur á Knappstöðum, lausn frá fardögum s. á. 28. marz.
Arni Böðvarsson prestur á Eyri í Skutilsfirði fjekk lausn 12.
júlí. pórarinn Erlendsson, prestur að Hofi í Álptafirði fjekk
lausn frá fardögum 1882 11. september. Geir Bachmann,
prestur að Miklaholti fjekk lausn frá fardögum 1882 22. nóv.
Prestvígðir voru á árinu: Eirílcur Gislason til Presthóla,
og Magnús Andrjesson til Gilsbakka 26. dag júníinánaðar; 18.
dag septembermánaðar voru þessir vígðir: Helgi Arnason til
Sanda í Dýrafirði, Jón Olafur Magnússon til Hofs á Skaga-
strönd, Lárus Eysteinsson til Helgastaða, Pjetur Jónsson til
Fjallaþinga og Sigurður Stefánsson til Ögursþinga í ísafjarð-
arsýslu.
Carl kaupmaður D. Tulinius á Eskifirði og Wilhelm Holm
verzlunarstjóri á Isafirði höfðu áður verið skipaðir sænsk-
norskir Tconsúlar hjer á landi, og samþykkti konungur þessi
embætti þeirra 28. október.
Tveir bændur, Jón Runólfsson á Vatnshömrum í Borgar-
fjarðarsýslu og Vilhjálmur Bjarnarson á Kaupangi 1 Eyjafirði,
fengu heiðurslaun úr styrktarsjóði Kristjáns konungs IX, fyrir
framúrskaranda dugnað í jarða- og húsabótum, 160 kr. hvor.
Pranska stjórnin sendi þeim Fischer sýslumanni í Barða-
strandarsýslu og Sigurði Gíslasyni, hreppstjóra í Ölfushreppi
sinn heiðurspeninginn hvorum ásamt með tilheyrandi skjölum
2