Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Qupperneq 18

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Qupperneq 18
18 þlNG OG STJÓRN. til þakklætis fyrir greiða þann, er þeir hðfðu sýndan skipverj- um á frönsku skipi, „L’ Armoricain“, er strandað hafði í Skaptafellssýslu II. Á r f e r ð o g a t v i n n u v e g i r. Tíðarfarið á þessu ári var jafnóhagstætt og ertitt sem það var æskilegt og blítt árið áður. Á nýársdag var komin snjóhríð ofan í blotann daginn áður, og gekk á því fram á þrettánda. Þá gjörði hláku með ofsaveðri miklu en litlum hlýindum, og stóð hún til hins 9., og voru menn þá farnir að vona góðs bata. En að kveldi hins 9. sneri við blaðinu, og kom ofsaleg norðanhríð um allt Norðurland og Vestfjörðu, en minna varð af því syðra og eystra. Með liríðum þessum fyllti hafísinn hverja vík og hvern vog, og fraus allur saman í eina hellu, því að frostin voru áköf. Nú gekk eigi á öðru langan tíma en rofalausum byljum og stórhríðum á norðan 3 og 4 daga í einu, og birti jafnan upp svo sem einn eða tvo daga á milli. Frost var að jafnaði 18 — 24" R. nyrðra, en 12—18° syðra. Fannkyngja kom afarmikil nyrðra, en á Suðurlandi var hún minni, en stormarnir og gaddviðrin litlu betri en nyrðra fyrir það. Um miðjan janúarmánuð var Faxaflói orðinn lagður langt út fyrir eyjar, var þá gengið yfir Hvammsfjörð, og af Akranesi til Reykjavíkur, og á land úr Flatey á Breiöafirði; stóð svo til 15. febrúar. Mest og voðalegast var aftakaveður það, er gjörði á norðaustan að kveldi hins 29. janúarroánaðar, og hjelzt allt til hins 31 Varð þá víða nyrðra ei farið í fjárhús eða beitarhús þar sem þau voru nokkuð langt frá bæjum, enda var þá eigi öllum fært að fara út fyrir harðneskju sakir, því að þá var 27° til 30" fro-t á R. um allt norðurland. Veður þetta gjörði víða hinn mesta skaða. 3 bátar fuku í Miðvík á Sval- barðsströnd, og víða fuku smábátar og annað er lomað gat, gluggar brotnuðu úr húsum, heyjum með gaddfieðnu torfi á svipti upp og þeytti langar leiðir burt. 26 för og bátar brotn- uðu og hurfu kringum Isafjörð, og sem dæmi þess, hvað snögg- biljað veður þetta heíir verið, má nefna, að veðrið tók miðbik úr gaddfreðnu heyi á bæ einum á Barðaströud, og stóöu eptir

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.