Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Síða 22

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Síða 22
22 ÁRFERÐ OG ATVINNUVEGIR. Aflabrögð voru afarmisjöfn um land allt sem von var að, er tíðarfarið var svo háskalega örðugt framan af árinu. Allt í frá nýári varð varla farið á flot í veiðistöðum syðra fyrir storm- um og ógæftum og svo lagísum á sjónum, en nyrðra sást eng- inn munur á sjó og landi, svo að alstaðar var loku fyrir skotið. fegar tók að vora að, fór að greiðast um að sönnu, en aldrei var þó mikill afii syðra eða vestra. En þegar hafísinn leysti frá Norðurlandi var þar víða sem ótæmandi fiskur væri í sjón - um, og varð þar því víða hinn bezti afli þó að gæftir væri ó- stöðugar. Einkum var aflinn aðkvæðagóður á Skagafirði eptir fráfærurnar, sömuleiðis í Steingrímsfirði og Grímsey. ' Haust- afli varð allgóður svðra og ágætur nyrðra, svo að þess mun tæplega dæmi. t. d. í Ólafsfirði; þar fjekk einn bátur 1200 til hlutar á tæpum hálfum mánuði. Hákarlsaflinn á Eyjafirði var í tregara lagi á skip, og segja skýrslur að þar hafi komið á land 4150 tunnur lifrar á 16 skipum; er það nálægt 2500 tn. lýsis, og koma þá 156 tunnur á skip. Aptur á móti var afar- mikið af hákarli veitt upp um hafísinn um vorið og veturinn, einkum á Húsavík, Höfðaströnd og Eyjafirði; en þó kvað mest að því á Eyjum í Strandasýslu, því að þar varð náð um 1000 hákörlum upp um ísinn um vorið. Auk þessa náðist og um vorið allmikið af smáhvölum, bæði hnýsum, höfrungum og há- hyrningum bæði á Skjálfandaflóa, Eyjafirði og Skagafirði og víðar. Voru það yíir 150 smáhveli alls, er menn hafa fengið sögur af. Þá um veturinn voru lengi 8 hvalir í þröngri vök á Skagafirði, en þar er allar tilfærur vantaði, varð með engu móti neitt gjört að því að bana þeim. Lax- og silungsveiði var góð í ám og vötnum þar sem til hefir frjetzt. Síldveiðafjelögin, bæði hin alnorsku og hin norsku og íslenzku öfluðu lítið framan af sumri, og voru menn farnir að örvænta á Eyjafirði um að fá fje sitt ávaxtað; en er hausta tók fór að aflast betur. Norðmenn höfðu um 40 síldveiðaskip á Eyjatirði, og byggðu síldarhús í Hrísey, á Bakka og víðar, og höfðu mikinn umbúnað. En að síðustu mokuðu þeir svo síld- inni úr sjónum, mest í októbermánuði, að um haustið voru fluttar um 100000 tunnur síldar af Eyjafirði. Þetta lauk upp augunum á þeim, er áður höfðu kinokað sjer við að leggja fje sit.t fram í slíkt, og mynduðust þá þegar tvö stór síldveiðafje-

x

Fréttir frá Íslandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.