Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Side 26

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Side 26
26 ÁRFERÐ OG ATVINNUVEGIR. 57,00—60,00. Hákarlslýsið varð 45,00, þorskalýsi 36,00, harð- fiskur 60,00—80,00, æðardúnn 12,00. Fjártaka var raikil ura haustið í öllum verzlunum á landinu, og var verðlag á kjöti frá 20 til 15 aura, og var því skipt í þrennt eptir gæðum eða kroppaþyngd. Voru fluttar um haustið um 2000 tunnur kjöts frá Akureyri og Oddeyri, 800 af Húsavík og 1600 af Hofsósi og Sauðárkróki, og var þar þó nokkuð eptir. Það er einkenni- legt lag kaupmanna þar nyrðva, og líklega alls staðar, að þeir taka kjötið með misjöfnu verði eptir gæðum, og er það eigi nema eðlilegt, en þegar búið er, og tekið er til að salta í tunn- urnar, er öllu slengt saman, og lakasta kjötið látið í miðjar tunnurnar, en hið betra til endanna. Síðan er allt látið ganga sem bezta vara. Kjötið er mjög illa saltað, og allt fyllt svo sterkum saltlegi, að kjötið missir mestallan krapt sinn, og verð- ur svartblátt á lit og mjög óætilegt. Enda er svo, sem öll von er á, að íslenzkt kjöt er talið með lökustu vörum ytra, og því lítil von til að kjötverzlunin hatni meðan því er spillt á þenna hátt. Mismunur á ullarverði eptir gæðum mun hafa verið, lítill, enda hefir það ekkert að þýða, er öllu er blandað saman á eptir. Um sumarið notuðu menn gufuskipsferðirnar nyrðra til þess, að panta sjer vörur sjálfir beint frá Höfn, og þótti mönnum það hjer um þriðjungi ódýrra; það var mest í Norð- urlandi. Var í mönnum hugur mikill að auka þau kaup mikið næsta sumar, og gjörðu miklar ráðstafanir til þess. Svo kom og Coghill með allmikið af vörum á fjárkaupaskipum sínum, einkum til Dalasýslu, og þóttu kaup við hann hin beztu, þar sera eitt pund af góðu hveiti kostaði eigi meira kjá honum en 12 aura, en að minnsta kosti 20 aura hjá öðrum kaupmönn- um. Var því mikið af vörum pantað hjá honum í Húnavatns- sýslu og víðar móti sauðum til næsta sumars. Nálægt 10000 fjár var flutt út. um haustið. — Verzlunarfjelag það, er Eggert Gunnarsson hafði stofnað í sambandi við Englendinga, hjelt áfram störfum sínum þetta ár. Hann settist að í Glasgow í Keykjavík, og hóf þar upp afarmikla verzlun, og náðu viðskipti hans um allt svæðið, austan af Kangárvöllum til Borgarfjarðar Fjekk hann mesta fjölda fjár og hesta hjá landsmönnum, og galt þeim verð í móti í enskum vörum f>ótti mörgum gott

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.