Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Qupperneq 29

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Qupperneq 29
ÁRFERÐ OG ATVINNUVEGIR. 29 inu var, var eigi votryggt, og svo spillti það og fyrir verzlun og atvinnu manna; sló óhug miklum á landsmenn við þetta, og þóttust inargir sjá af þessu, að erfitt mundi ganga að fá miðsvetrarferð komið á aptur, þar eð þetta slys mundi verða liaft til afsökunar með að neita um hana, svo sem líka raun gaf vitni þetta árið (sjá bls. 12.). Landbúnaðinum fór víst heldur lítið fram þetta ár, enda var eigi hægt um að sýna miklar framkvæmdir í jarðabótum eða öðru slíku, því að klaki fór seint úr jörðu sem áður er get- ið, og tíðarfar var mjög óhagstætt. Norðlendingar Ijetu sjerþó annt um að búnaði færi f'ram, að minnsfa kosti í orði kveðnu, og í því skyni voru búfræðingar, launaðir af sýslusjóðum, látn- ir fara um hjeruðin til þess að leiðbeina mönnum í ýmsu, er laut að jarðabótum og heyvinnu. J>etta var gjört í Skagafjarð- ar- og Júngeyjarsýslum. |>ótti það koma að litu haldi. I’je því, sem varið var til eílingar búnaðar af þinginu 1879 var skipt milli þeirra, er styrks heiddust og verðastir þóttu, og gekk það mikið til styrks búfræðingaefnum, til verkfærakaupa o. fl. pá voru og veittar 535 kr. til ýmislegs kostnaðar, er leiddi af ferð húfræðings austur í Skaptafellssýslu til þess að finna ráð og umbætur móti foksandi þeim, er þar er, og spillir túnum manna, engjum og högum. Búnaðarfjelög er oss lítt kunnugt um, en það eitt vitum vjer, að sum hin smáu búnaðarfjelög, sem myndast í hreppum og sóknum, verða eigi langgæð. I’yr- ir fáum árum myndaðist búnaðarfjelag í einum hreppi í Skaga- firði, og kom sjer upp ofurlitlum sjóði; fjelagsmenn unnu dá- lítið svo sem 2—3 ár, en svo fór að dofna, en þenna vetnr kom þeim saman um að halda útför fjelagsins, og skiptu bróð- urlega milli sín eignum þess. Svona var það nú þarna í Norðurlandi, þar sem framfaraandinn er svo mikill, og mun svo hafa víðar farið fyrir slíkum smáfjelögum. Gripasýning var haldin á Garði í Hegranesi í Skagafirði, 28. dag maímánaðar; hlotnaðist mönnum gott veður, en miklir vatnavextir, og tálm- aði það fjölmenningu til sýningarinnar, þar eð yfir Hjeraðs- vötnin var að fara fyrir alla. |>ó munu þar hafa verið við um 300 manna. Sýningin fór hátíðlega fram, og hjelt þar Arni organleikari Eiríksson á Sölvanesi uppi fögrum söng með góð- um fiokki karla og kvenna. |>ar voru og ræðuhöld nokkur.

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.