Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Qupperneq 31

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Qupperneq 31
ÁRFERÐ OG ATVINNUVEGIR. 31 og fjáreigandi í hverjum hreppi skyldi hafa á fje sínu. Brenni- markið skyldi vera hreppsnafnið skammstafað, og ætíð sett á vinstra horn (eða hóf) skepnunnar, en brennimark eigandans á hið hægra. Alþingishúsið var fullbyggt um veturinn, og var pað veg- leg bygging og mikil, í miðjum bænum, og honum til mikill- ar prýði. Allt neðsta gólf hússins er byggt handa landsbóka- safninu, en annað gólf fyrir pingið: málsstofurnar báðar eru mjög skrautlegar, og standa pó til umbóta framvegis. Efst er húsrúm handa forngripasafninu, og í einu horninu par uppi herbergi, par sem geymdur er húsbúnaður Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn, sá er var í ritstofu hans, bæði borð, legu- bekkur, skrifborð með öllum ritfærum, nokkur myndaspjöld, og að auki rúm hans. Yar allt petta gjöf Tryggva pingmanns Gunnarssonar sem áður er sagt. A borðinu liggja silfurkransar peir, er lágu á kistu Jóns, er hann var jarðaður. Að utan er húsið mjög fallegt, einkum á framhliðinni. A bust á miðri fram- hliðinni gnæíir krúna mikil, en undir upsinni er ártalið 1881 greypt í steininn. Yíir gluggunum á loptinu eru landvættir íslands í lágskurði, jötunn, gammur, boli og dreki, en í sömu röð yfir dyrunum eru tveir skildir og á öðrum porskurinn ís- lenzki en á hinum ríkismerkið. Yfir aðaldyrum hússins er dá- lítið líkneski af fálka. Gólf hússins er allt saman af steini, og stigar af neðsta gólfi upp á loptin úr járni, og grindur með af sama; eru par húnar allir gullroðnir, og hinir fegurstu. öll pessi bygging kostaði nálægt 123000 kr. III. M e n n t u n. Embættispróf við háskólann tók Sigurður Olafsson í lög- fræðum með annari einkunn. Sömuleiðis tók fornfræðingur Guðmundur porláksson meistarapróf (magisterconference) í nor- rænum fornfræðum og bókmenntum með góðum vitnisburði (admissus). Embættispróf á læknaskólanum í Keykjavík tóku pórður J. Thóroddsen og Jón S. K. K. Sigurðsson Johnsen frá Flat-

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.