Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Blaðsíða 35
MENNTUN.
35
Safni þessu hefir og áskotnazt nokkuð af gjöfum undanfarin ár,
t. d. steinasafn allmikið frá Ameríku, en sakir rúmleysis er ekki
hægt að sjá það eða nota. Sama ár gaf Gröndal skýrslu um
myndasafnið í skýrslu skölans.
Menntunarfjelögin hjeldu áfram störfum sínum sem áður,
og gáfu út rit sín. - Bókmenntafjelagið starfaði heldur með
minna móti, og þykir mönnum hjer Hafnardeildin vera sein í
sóknum og dauf til framkvæmda. |>etta ár segja skýrslur þess
að væri 767 íjelagar þess, og eru það 6 fleiri en árið áður.
Forsetiþess var í Höfn Sigurður L. Jónassen, sem áður. Bækur þær
er Hafnardeildin gaf út, voru Skírnir, 55. ár, og var hann lík-
ur því, sem hann var áður, og Islenzkar fornsögur II. Bindi.
í þessu bindi eru Reykdæla eða Ljósvetningasaga og Yallaljóts-
saga. Þessar útgáfur fjelagsins af sögunum eru óefað vandað-
ar og góðar, en allt fyrir það er landsmönnum heldur illa við
þær vegna hinns háa verðs sem á þeim er. |>eir vilja fá ódýr-
ar textaútgáfur, sem þeir geti veitt sjer og lesið, en vilja eigi
kaupa hálfar bækur af orðamun, sem engum verður að gagni
nema vísindamönnunum einum, og þær útgáfur finnast þeim
liggja langt fyrir utan verkahring fjelagsins, og heyra til forn-
fræðafjelaginu, og virðast þeir í því hafa mikið til síns máls.
Reykjavíkurdeildin gaf út eitt hepti af Sýslumannaæfum Boga
Benediktssonar á Staðarfelli með viðaukum og leiðrjettingum
Jóns háyfirdómara Rjeturssonar. Bók þessi nær yfir Hngeyjar-
og Eyjafjarðarsýslur, og er lengd allt fram á vora daga. Hún
er uppfull af ættartölum, og þó að öllum sje kunnugt um hví-
líkur fræðimaður Jón Pjetursson er í þeirri grein, hafa slæðzt
inn í hana allmargar og meinlegar villur, bæði í einstökum
ættum og orðum. Rit þetta, sem var allrar virðingarvert af
höfundarins hálfu, er samt svo úr garði gjört, að það hefði
þurft nákvæmrar rannsóknar við áður en það var gefið út, og
hefði gjarnan sumstaðar mátt vera styttra. Tímarit fjelagsins
hjelt áfram, og voru í því margar góðar ritgjörðir þó eigi sje
rúm hjer til að yfirfara þær. Skýrsla um Forngripasafn ís-
lands í Reykjavík II, 1. — fjóðvinafjélagið gaf út Andvara
sem að undanförnu, með góðri mynd af Jóni Guðmundssyni,
sem lengst var eigandi og útgefandi þjóðólfs og ágrip af æfi
hans; þar voru og ágætar ritgjörðir eptir ýmsa menn, t. d. íJor-