Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Page 36

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Page 36
36 MENNTUN. vald Thoroddsen, Arnljót Ólafsson o. fl. Sömuleiðis gaf það út Almanak sitt sem áður, og var það prýtt andlitsmyndum og æfiágripum tveggja hinna helztu frelsispostula Norðmanna, Björnstjerne Björnsonar og Jóhanns Sverdrups. priðja rit þess var Lýsing Islands eptir Þorvald Thoroddsen. Lýsing þessi er í alla staði ágæt það sem hún nær, en hún er langt of stutt því að hún er eigi nema 6 arkir, og rjett til þess að læra hana í skólum, enda er hún og mjög vel til þess fallin. Nöfn eru eigi mikil í henni, því að þau eru auðlærð á landabrjefum, en því meira af lýsingum á eðli landsins, hag þess og náttúru. f>að má vel vera, að sumt af því, er snertir menntunarsögu landsins í kveri þessu sje eigi alls kostar rjett, en þó mun þar eigi vera mjög margt varhugavert. fað má því álíta að kver þetta sje ágætt, enda hefir það sýnt sig, þar sem landsmenn hafa keypt það fjarska mikið. Bœhitr komu mjög fáar út hjer aðrar en þær, sem þegar eru nefndar, og gefnar voru út af menntunarQelögunum, og þá sízt svo að þeirra sje hjer getanda. Markaskrár og sitthvað þess konar eru allra bóka nauðsynlegastar. en þær geta eigi tal- izt hjer með fyrir það. BVóðin voru þau sömu og áður, og hjörðu þetta áfram, án þess þó að neitt kvæði að þeim. Eitt þeirra, Máni, dó samt út eptir árslokin eptir tveggja ára til- veru, en það var ofurlítið skarð eptir hann. Ritstjóri Skuld- ar fór utan um haustið og gaf út Skuld ytra (í Höfn) það sem eptir var árgangsins, og hætti hún síðan um sinn. Á Akur- eyri var gefið út dálítið kver, Yasakver handa alþýðu, með ýmsum leiðbeiningum um tolla, útgjöld, skatta og póstsending- ar og ýmislegt annað, er hverjum manni er nauðsyn á að vita. Kver þetta er laglega samið og gott til leiðbeiningar, það er að segja, ef menn vilja fyrst leiðrjetta fáeinar stórvitleysur er í því eru, áður en það er notað. Einar rímur, af Ajax frœkna voru gefnar út, og eru þær lítt merkar sem annað þess kyns, er út er gefið. f>á voru og gefin út helztu kvœði, ef svo skyldi kalla, eptir Sigvalda Jónsson Shagfirðing. Sigvaldi sál. var lipur hagyrðingur, og hafði opt á hraðbergi liprar og hnitti- legar lausavísur, og ljet honum vel að kasta þeim fram. En það er annað að mæla laglega lausavísu af munni fram, eða að gefa slíkt út. Kver þetta er að sönnu stórhneykslalaust, en það

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.