Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Page 42

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Page 42
42 MANNAIÁT. IV. M a n n a 1 á t. Allmörg slys, bæði skiptapar og svo að menn urðu úti, komu fyrir petta ár, og er vert að geta hinna helztu peirra hjer. Auk peirra, er hiðu bana af frosthörkunum, voru og ýmsir, er kól til stórskemmda, og bera alla æfi menjar pessa hræðilega vetrar. S/ciptapar voru pessir hinir helstu: 10. janúar hvolfdi áttæringi frá Hólmum í Dýrafirði; var hann á leið úrhákarla- legu. 9 menn voru á bátnum, og fórust 3 peirra, og formað- urinn peirra á meðal, en hinum varð borgið. Nálægt miðjum marz fórst bátur við Stokkseyri með fimm mönnum, en tveim varð borgið. Aðfaranótt hins 29. dags septemberm. fórst bát- ur við Hrísey með 7 mönnum á. Formaður var Pjetur nokk- ur Friðfmnsson af Akureyri, duglegasti maður. Sama dag fórst og bátur undan Grjóteyri á Sljettu með 3 mönnum. í miðjum nóvembermánuði fórst bátur við Böggversstaðasand með tveim mönnum, og annar við Svalbarðseyri með prem mönnum. 15. októl>er fórst bátur frá Dalabæ við Siglufjörð; fórust par 4 menn, en 1 varð borgið. 15. dag desembermánaðar hvolfdi báti frá Fjarðarhorni í Mjóafirði; voru á honum feðgar tveir, og fórst bóndinn, Einar Pálsson, en piltinum varð bjargað. Nokkur fleiri bátaslys munu hafa komið fyrir, pó vjer höfum eigi greinilegar sögur af peim. Gnnur lielztu slys hafa verið pessi: 12 janúar datt dreng- ur á skíðum á Tjörnesi, brotnaði stafurinn, og gekk broddurinn á hol, og dó hann pegar. A nýjársdag urðu tveir menn úti, annar af Langanesströndum en hinn af Möðrudalsfjöllum, og í sama mánuði varð maður úti á Skagaströnd, og kvenmaður í Skagafirði í póstskipsbylnum. Um sama leyti urðu og 2 menn úti á Skálmardalsheiði, og einn á vegi milli Geiradals og Stein- grímsfjarðar. f>á gekk og maður í ölæði burt af Sauðárkróki, og ætlaði paðan heim til sín, en sást aldrei síðan, en slóð hans var rekin skömmu síðar fram á sjó par sem lagt var, og hvarf hún fram af skörinni! Margir fleiri urðu og úti, pó að pess sje eigi hjer getið. Ýmsir voru og peir, er rjeðn sjer bana petta ár, og er pað pó heldur fátítt hjer á landi við pað sem opt vill til ytra.

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.