Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Blaðsíða 9

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Blaðsíða 9
Kirkjuraál. 11 lítið úr þjónustu hins ráðna kjðrprests. — Til kirkjubyggingar var Holts prestakalli undir Eyjafjöllum veitt 2000 kr. lán úr landssjóði, en flutningi kirkjunnar frá Holti að Ásólfsskála synjað að svo stöddu. — Reykjavíkur söfnuður, er landsstjórn- in hafði boðið að taka að sjer fjárhald dómkirkjunnar, hafnaði pví boði samkvæmt tillögum nefndar peirrar, er sett hafði ver- ið í pví máli. — Mál pað, er risið hafði út af vanskilum sjera Tómasar Hallgrímssonar á árgjaldi af Valla prestakalli í Svarf- aðardal, var dæmt í landsyfirrjetti, og skyldi presturinn par greiða alla skuldina, 500 kr., og málskostnað. Sömuleiðis var sjera Magnús Jónsson í Laufási dæmdur til að greiða alla pá skuld, sem hann var kominn í við landssjóð, 2000 kr., og málskostnað; en alpingi gaf honum síðan fyrir ýmsra hluta sakir upp pá skuld. Árferð. Vedrátta. Grasvöxtur og nýting. Skepnuhöld. Veðrátta. f>á er ails er gætt má petta ár eflaust teljast eitt með hinum heztu, er komið hafa á síðara hlut pessarar aldar, bæði til lands og sjávar. Að vísu byrjaði árið með á- kafri snjókomu og fannfergi pví nær um land allt, einkum sunnan og vestan, og sást varla nokkurs staðar í dökkvan díla. Öfærð var svo mikil, að við sjálft lá, að póstferðir og aðrar samgöngur heptust með öllu; en víða í sveitum voru pó blot- ar öðru hvoru, einkum norðan og austan, enda fannkoma par minni að jafnaði og hagar allgóðir, frost jafnan lítil, pví að útsynniugar voru tíðastir. 21. jan. gerði hláku með 6—8°hita á R. um land allt, er stóð 2 daga eða 3; tók pá mjög upp snjó í sveitum, en frysti jafnharðan upp aptur og dembdi nið- ur snjó miklum um suðurland og vesturland. Voru hagleysur fyrir allar skepnur fram á porrapræl. f>á, 23. febr., gerði nokkra hiáku og brá pegar bæði sunnan og vestan til stöðugra góðviðra, hl/inda með hitaskúrum, pótt stundum frysti dag og dag í bili. Var pess nú ekki langt að bíða, að snöp kæmi upp í sveitum (nema í Flóa, par sem ölvusá hafði farið yfir um veturinn) og enda til dala, og komu aldrei harðviðri eptir petta

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.