Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Blaðsíða 20
22
Menntan og raenning.
pjórsár að norðan og Skaptárjökuls að austan, frá Torfajökli að
sunnan norður í Köldukvíslarbotna. Skoðaði hann afrjettar-
lönd Rangvellinga og fann, að Hrafntinnuhraun og önnur
fleiri, er áður voru ókunn, er runnið undan Torfajökli vestan-
verðum: hvít vikurlög í jörð á suðurlandi segir hann vera og
komin úr pessum jökli. Fiskivötn eða Yeiðivötn skoðaði hann
síðan nákvæmlega, og er landið par eldbrunnið allt umhverfis
og hið einkennilegasta; ligsja vötnin í fornum eldopum eða
skálum, sem komið hafa í eldsumbrotum, og eru lukt hömrum
og móbergstindum og allmikill gróður innan um. Yötnin eru
sum afarstór, svo sem J>órisvatn, er gengur næst pingvallavatni
að stærð, og fiskisæl. Með pessari ferð er pað sannað, að ein
eldæð gengur í boga um pvert landið, norðan úr |>ingeyjar-
sýslu um Ódáðahraun og Heklu suður á Reykjanes.
Dr. Björn M. Ólsen ferðaðist petta sumar um Stranda-
sýslu og Barðastrandarsýslu sunnanverða til pess að kynna sjer
mállýzkur í peím sveitum.
Sigurður fornfræðingur Yigfússon ferðaðist um Breiðafjörð
og rannsakaði sögustaði í Gísla sögu Súrssonar, Byrbyggju og
fl. sögum. Hann fjekk og rúma 100 forngripi handa forn-
gripasafninu, sumt kjörgripi.
Af ræðum, sem haldnar voru um ýmisleg málefni til fróð-
leiks og skemmtunar, má helzt nefna þá, er Gestur Pálsson
hjelt í Rvík 12. jan.; talaði hann um skáld vor og skáldskap
á þessari öld og sagðist margt vel. — Þá talaði sjera Jón
Bjarnason langt erindi 4. sept. um islenzkan nihilismus, eða
gjörsamlegan doða, hugsunarleysi og afskiptaleysi íslendinga
hjer og vestra um öll mál; kenndi hann einkum skólunum í
Rvík, pótt undarlegt megí virðast, og svo prestastjettinni, um
allan pann ófögnuð: sagði hann, að allur hugsunarháttur ís-
lendinga þyrfti að taka stakkaskiptum, til þess, að hjer gæti
nokkrar framfarar orðið. Ræða pessi hafði áður verið haldin á
5. kirkjuþingi íslendinga í Yesturheimi og prentuð par síðan
með öðrum «fyrirlestrum,» sem par voru haldnir. — Nokkru
síðar eða 9. nóv. talaði Gestur Pálsson um menntunarástandið
á Islandi; var pað nokkurs konar heimsádeila, fyndin og fjörug
og pó í ýmsum atriðummiður sönn lýsing á menntun lands-
manna nú á tímum. jpessar 2 ræður urðu pó tilefni til pess.