Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Blaðsíða 22
24 Slysfarir.
aðfaranótt hins 23. s. m. urðu skemmdir allmiklar á húsum
og skipum í Fljótum og Siglufirði. — Eitt háharlaskip Geirs
kaupm. Zoéga, «Reykjavíkin,» týndist, svo sem ætlað var, á
siglingu í Eaxaflóa í útsynningsbyl 31. marz; bátur pess fannst
nokkru síðar á Bollasviði; par fórust 10 manns, sutnir frá mik-
illi ómegð; formaður var Einar Sigurðsson frá Bræðraborg í
Rvík. — 15. apríl brann ibúðarhús stórt úr timbri, nýlegt og
vandað, 1 Nesi í Höfðahverfi. Sex vetra barn hafði kveykt eld-
inn, kastaði logandi eldspftu í hefilspæni, en ekki haft vit á
að segja til pess í tíma. Veðurvar hvasst og brann pettahús
og 3 önnur bæjarhús til kaldra kola og heystakkur við sauða-
hús, 150 faðma frá hænum; brann og mestur hluti peirra
inuna, sem í húsunum voru, pví að liðfátt var í fyrstu, en
eldurinn læsti sig fljótt um húsin. Húsbóndinn, Einar um-
boðsmaður Asmundsson, fjekk pó bjargað flestum skjölum peim,
er umboð hans varða, en meiri hluti bóka hans sjálfs og skjala
fór í eidinn. Skaðinn metinn 15—16 pús. kr. og var ekkert
vátryggt af pví, sem par brann. — 14. maí braut kaupskip í
blíðviðri á útsigling í utanverðum Hornafjarðarós, rak fyrir
straumi upp á sker eitt, lítið; enginn var hafnsögumaður á
skipinu og skipverjar ókunnugir; skipið sökk með öllum farmi,
en menn allir björguðust. — 19. sept. brautskipið «Lauvain»,
eign Amlies, hvalveiðainanns á Langeyri, hlaðið hvallýsi og
hvalskíði o. fl., við Rifstanga á Melrakkasljettu; farmur allur
var óskemmdur; menn allir hjeldu lífi. — Snemma í nóv.
hlekktist vöruskipinu «Patreksfirði» svo á undir Flatey á
Breiðafirði, að pað varð að selja pað og allar vörur, sem í pví
voru, við uppboð (h'.jóp á 9000 kr.) í s. m. urðu á sumum
stöðum Dokkrar skemmdir á heyjum og bátum sökum hvass-
viðra; pannig fuku (7. p. m.) 80—90 hestar af heyi á Hrauk-
bæ í Kræklingahlíð, og á vesturlandi urðu og nokkur brögð að
siíku, einkum í Barðastrandarsýslu. 15. s. m. urðu skemmdir
miklar af skriðuhlaupum og árennsli á tún og engjar á eitt-
hvað 9 jörðum í Fljótshlíð, einkum í Eyvindarmúla, Múlakoti
og Fljótsdal. J>á fennti víða fje í nurðursýslum landsins,
einkum pingeyjarsýslu, eða rak í ár og vötn. Mest urðu brögð
að pví í hríðarbyl með fannkomu 23.-25. s. m., 2—10 kind-
ur á bæ; mestur varð fjármissirinn í Núpasveit á Snartarstöð-