Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Blaðsíða 34
36 Mannalát.
þess að kaupa jörð, hentuga til pess að reisa á barnaskóla
handa Bessastaðahreppi.
Guðmundur Magnússon í Yarðgjá í Eyjafirði andaðist í
septemberm. Hann var góður bóndi á sínum yngri árum,
harðger og óvæginn, og ekki all skostar við alpýðu skap, vinur
vina sinna; var blindur hin síðustu ár æfi sinnar.
Jön Arnason á Skarði í Landmannahreppi andaðist 4.
októberm. rúmlega sjötugur, atorkumaður, flutti bæ sinn og
kirkju 1877 undan sandfoki og ræktaði nýtt tún og girti á
öðrum stað.
Gísli pórðarson á Óseyri við Hafnafjörð andaðist 11. nóv.
tæplega fertugur, skipstjóri, «valinkunnur dugnaðar- og ráð-
deildarmaður.*
Guðmundur Olafsson jarðyrkjumaður á Fitjum í Skora-
dal andaðist í nóvemberm. hálfsjötugur. Hann hafði numið
búfræði erlendis og hefir ritað ýmislegt pess efnis í Ný fje-
lagsrit. Hann var nýtur maður, greindur og gætinn, gerði
miklar jarðabætur á bújörð sinni. Hann sat á alpingi 1875—
1879.
Sveinn Sigurðsson á Brekkuborg í Mjóafirði eystra andað-
ist 4. desemberm., á áttræðisaldri. Hann var gildur bóndi,
fróðleiksmaður og góður drengur. Sonur hans er Sveinn bú-
fræðingur á Hvanneyri.
Guðmundur Jónsson, skipasmiður á ísafirði, andaðist 21.
desemberm., um sjötugt. Hann var «forn í skapi og vinfast-
ur;» á dánardegi ánafnaði hann styrktarsjóði handa ekkjum og
börnum sjódrukknaðra ísfirðinga 20 kr.
Skúli bóndi Kristjánsson, kammerráðs Magnússonar, and-
aðist á Skarði 24. des.
|>á andaðist um haustið Níels póstur, er var «einhver
hinn harðvítugasti maður til ferðalags* og var póstur yfir 20
ár og gerður dannibrogsmaður fyrir pá sök.
Af kaupmönnum andaðist:
Jón Otti Vigfús Jónsson, 30. septemberm., 41 árs.
Hann stýrði lengi verzlun konsúls M. Smiths og varð eigandi
hennar eptir dauða hans. Hann var dugnaðarmaður, en van-
heill mjög hin síðustu árin. — Ludvig J. Chr. Schou, fyrrum
verzlunarstjóri á Húsavík, andaðist á Torfastöðum í Vopnafirði