Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Blaðsíða 26
28
Mannalát.
Heilsufar roanna mátti heita mjög gott á pessu ári um
land allt, og varð að eins lítið eitt vart peirra kvilla, sem hjer
eru tíðastir og opt verða mörgum manni að bana, enda eru
menn viða farnir að gjalda meiri varhuga við sjúkdómum og
kunna betur að stunda sjúklinga en áður gerðist. Landfarsótt-
ir gengu engar, svo að teljandi sje; á Kjaranstöðum í Dýra-
firði kom upp í febrúarmán. hálsveiki allskæð og ljezt þar
konan og 6 börn, en sýkin breiddist eigi út þaðan; síðari
hluta marzmán. og fyrri bluta aprílmán. gekk lungnabólga
með taksótt í verstöðunum við sunnanverðan Faxafióa og urðu
töluverð verkföll fyrir þá sök meðal sjómanna, en eigi varð
sóttin skæð og dóu fáir. Sömu sýki varð og vart á nokkrum
öðrum stöðum, einkum í Arnessýslu í nóv. og des., og voru
þó engin brögð að.
Getið skal hjer hinna helztu merkismanna, karla og kvenna,
er ljetust á árinu.
Af prestvígðum mönnum dóu þessir:
Vigfús prófastur Sigurðsson á Sauðanesi, porsteinssonar
sterka, Guðmundssonar ríka, sýslumanns í Krossavík í Vopna-
firði, Pjeturssonar, anduðist 7. janúarm. Hann var fæddur á
Valþjófsstað 13. júlím. 1811, útskrifaðist úr Bessastaðaskóla
1837, vígðist 1839 aðstoðarprestur til sjera Stefáns Einarsson-
ar á Sauðanesi, varð prestur á Svalbarði í Jústilfirði 1847-69
og síðan prestur á Sauðanesi til dauðadags og prófastur í
Norður-J>ingeyjarprófastsdæmi frá 1875. Kona hans, er lifir
hann, er Sigríður Guttormsdóttir prófasts Pálssonar í Vallanesi.
Sjera Vigfús var fríður maður sýnum, hár og grannur og lim-
aður vel, heilsulinur alla æfi, en reglumaður hinn mesti, greind-
ur maður og gætinn; á Sauðanesi reisti hann stórt og vandað
íhúðarhús úr steini og kirkju fagra úr timbri.
Guðbrandur Vigfússon, Gíslasonar, stúdents á Ökrum,
Vigfússonar, sýslumanns í pingeyjarsýslu, og Halldóru Gísla-
dóttur, prests á Breiðabólssað á Skógarströnd, Ólafssonar bisk-
ups í Skálholti, andaðis 31. janúarm. í öxnafurðu. Hann var
að langfeðgatali kominn af Bustfellingum eystra og frá Guðbrandi
hiskupi forlákssyni í níunda lið, Afasystir hans, Katrín Vig-