Fréttir frá Íslandi - 01.01.1889, Page 38
40 Frá íslendingum í Vesturheimi.
landi, og gaf skilningsleysi og svefnmóki því, sem væri á pjóð-
inni heima á íslandi, einkum sök á þvi.
Sjera Jón Bjarnason kom hingað til lands með konu sinni
í ágústmánuði; ferðaðist síðan austur um land til Húsavíkur
og kom aptur til Evíkur og dvaldist par fram í desember.
Presta fjekk hann enga til að fara vestur, nema ef telja skyldi
prestaskólakandídat Hafstein Pjetursson, er pegar áður hafði
heitið honum að gerast prestur íslendinga par í landi; varð
hann síðan prestur safnaðarins í Argyle-byggð í Manitoba.
Tók hann, þegar er hann var vestur kominn, að rita fremur
hvatvíslegar árásir gegn kirkjustjóminni og trúarlífinu hjer á
landi; komu pær greinir út í Sameiningunni og Lögbergi. — I
Yesturheimi eru nú alls 5 ísl. prestar.
Hin helztu rit, sem út voru gefiu par vestra petta árið,
voru dagblöðin «Lögberg» og «Heimskringla,» kirkjutímaritið
«Sameiningin,» «Um prenningarlærdóminn og guðdóm Krists»,
eptir Kr. Janson, pýtt af Birni Pjeturssyni, Páls saga biskups
Jónssonar, og Hellismanna saga, og ýmsir aðrir smáritlingar.