Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1900, Blaðsíða 14
14
gáta og ekki annað; f>að játa eg). Björn mun hafa búið í Borgarholti til
dauðadags. En Kjallakur son hans, er virðist hafa kvongast erlendis, mun
hafa reist bú að föður sínum iifanda; er sennilegt að hann hafi þá gert
sér bæ á grundinni þar sem hann er enn. Að föður sínum látnum má
ætl.a að hann hafi lagt Borgarholt undir sig.
Beint niður frá bænum Bjarnarhöfn er lending við sjóinn og naust.
Mun það vera Bjarnarnaust, sem A. Th. nefnir; en ekki heyrði eg það
nafn. Og eigi ntun þar hafa verið gjört naust fyr en bær var kominn
þar, sem hann er nú. Nokkuru vestar við vikina heitir Hamarnaust. Það
er raunar fremur vör (lending) en naust, því sjór gengur þar upp í. Það
er klauf inn i stórgrýtis-urð, og lítur út fyrit að vera rudd af mönnum. Má
hún þá heita þreklegt mannvirki. Þar hefir mátt binda skip í góðu veðri,
en eigi setja upp, því hátt er fyrir ofan. Skamt vestar við víkina er tóft
undir hamri einum; hún er á þurru landi og grasi vaxin. Er það auð-
sjáanlega naust frá fyrri tið. Gæti eg trúaö, að það hefði upphaflega heit-
ið Hamarnaust, en nafnið verið fært seinna. Vestan við víkina gengur
tangi fram í sjóinn; hann heitir Búðatangi. Þar var eitt sinn kaupstaður.
Eru þar allmiklar rústir síðan, en mjög óglöggar orðnar.
6. Otradalur.
Svo segir í Hávarðs sögu Isfirðings 15. kap.: »Atli hét maður, hann
bjó í Otradal...........Svá er sagt, að bærinn í Otradal væri mjök af al-
mannaveg; þat var út öðru megin fjarðarins gegnt Eyri«. Og í 19. kap,
segir hún: »Er eigi sagt frá ferð þeirra fyr en þeir koma til bæjar Atla
í Otradal, var þat einn morgun snemma, og ríða i dalverpi þat er eigi
mátti sjá frá bænum«. Herra Kristján Þorleifsson í Bjarnarhöfn benti
mér á það, að vestan í Bjarnarhafnarfjalli er dalur, sem Otradalur heitir.
Fyrir neðan minni hans stendur bærinn Ámýrar, og segja munnmæli, að
sá bær hafi fyrrurn heitið Otradalur, af dalnum. Eru þess fleiri dæmi,
að bæir, sem eiga samnefnt við dali, standa ekki í þeim, heldur framan
við minni þeirra. Svo er t. d. um Garpsdal í Barðastrandarsýslu, Mel-
rakkadal í Húnavatnssýslu o. fl. En í fyrstu hefir forsetning bæjarnafns-
ins ekki verið i heidur at þar sem svo stóð á. Frumrit Hávarðs sögu
mun því hafa haft: at Otradal. Bærinn stendur við fjörðinn andspænis
Eyri og eigi all-löng sjóieið milli þeirra bæja. Mjög er pó einmunalegt
á Ámýrum og gestakomur fátíðar, því þar eiga eigi aðrir leið um en
þeir, sem þangað eiga erindi. Og sagt er, að það liggi þar í landi, að
þeir sem þar búa séu flestir fremur einrænir menn og fáskiftnir, hafi sem
minst viðskifti og sem minstan kostnað að þeir mega, en búi vei að sínu,
þó í smáum stíl sé búskapurinn. Fyrir ofan bæinn er bali nokkur við
fjallsræturnar, verður þar dalverpi í milli sem leynast má í svo eigi sjáist