Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1900, Síða 27
27
blásið og gróið upp aftur. Auðséð er lika, að vegurinn hefir á sínum
tíma verið varðaður, svo þó rúst hafi verið þar, mundi grjótið úr henni
tekið í vörður og hún svo horfið. Stöðuvatn er á holtinu og er stór
hóll við vatnið á einum stað eigi langt frá veginum. Aðrir hólar eru þar
ekki. I hólnum virtist mér vera stekkjarrúst, en eldri rústir undir. Þó
skal eg ekkert fullyrða um það, því eg gat ekki skoðað þann stað svo
vel, sem eg vildi, fyrir óveðri. En sennilegt þætti mér, að þar hefði land-
námsbærinn verið settur.
Þeir sem einkum veittu mér lið og leiðbeiningar við rannsóknir
þessar, voru herra Einar Þorkelsson bóksali í Olafsvík, sem drengilega
greiddi fyrir erindi mínu; herra Lárus Skúlason hreppstjóri á Hellissandi;
fierra Ármann oddviti á Saxahóli; herra Ögmundur bóndi á Hellu í Beru-
vík, og herra Helgi sýslunefndarmaður á Gíslabæ. Kann eg þeim öllum og
mörgum fleirum minar beztu þakkir.
Athugrasemd viö Árbók Fornl.fél. 1893.
Þá er eg ritaði »Nokkur bæjanöfn í Landn. í ofanverðri Hvitársíðu
og Hálsasveit, sló eg fram þeirri getgátu, að rústin við Ámót kynni að
vera Hranastaðir. En nú hefir herra Arni Þorsteinsson bóndi á Uppsölum,
bent mér á aðra rúst, sem kann að vera líklegri til að vera Hranastaðir.
Hún er mitt á milli Augastaða og Sigmundarstaða í beinni línu. Þar eru
allmiklar rústir, mjög fornlegar og gengnar út i þýfi; sér þó enn á þeim
grænan lit. Fyrir túngarði sér þar líka. Nafn á rúst þessi ekki nú,
nema stundum er henni ruglað saman við Vatnskot. En það getur ekki
verið rétt, því ekkert vatn er þar í nánd. Vatnskot heitir þar á móti
rúst, sem er skamt suðaust.ur frá tjörninni fyrir framan Stóra-Ás. Það er
að vísu stekkjarrúst, sem nú sést þar, en er auðsjáanlega bygð ofan á
eldri rústir, sem vera munu rústir kotsins.
Aðra rúst sýndi Arni mér skamt fyrir austan Kollslæk. Þar heitir
Kollslækjarstekkur, og er stekkurinn bygður ofan á bæjarrúst; en fáum
föðmum ofar er önnur rúst, sem auðsjáanlega er af fjósi og heystæði.
Túngarðsbrot sést þar fyrir ofan. Hér hygg eg hafi verið afbýli frá Kolls-
læk fyrir löngu. Br. J.