Alþýðublaðið - 16.03.1960, Qupperneq 13
ÞEIR eru að teikna hluta af risaflug-
vél í málmplötu. Stærð teikningarinn-
ar er 130 fet á lengd og 17 fet og 17
þumlungar á breidd. Þetta er stærstá
teikning, sem gerð hefur verið við flug-
vélagerð hiá Bretum og vafalaust víð-
ar. Flugvélin, sem smíða á eftir teikn-
ingunni, er SC-5 Brilannic flutninga-
vél fyrir herinn.
Mar^rét
Og 117111°
ustirni
MARGRÉT prinsessa
ásamt unnusta sínum
Antony Armstrong
Jones, á hátíðadans-
isýningu í Covent
Garden í London.
— Þau komu þang-
að ásamt Elizabet
drottningarmóður, og
þetta var í fyrsta
sinn, sem prinsessan
kom opinberlega
fram eftir að ' kunn-
gerð varð
hennar.
Eftir E. V. St
EFTIR að viðreinsaráform
ríkisstjórnarinnar urðu alþjóð
kunn, hefur að vonum um fátt
verið meira skráð og skrafað.
Fyrst í stað virLst gæta al-
mennrar óánægju, og fannst
mér það vera staðfesting á því,
að engum væri mismunað.
Kom mér þá í hug góð hús-
móðir, sem reynir að skammta
öllum jafnt og réttlátlega, en
verður allt í einu að fara að
spara, neyðist til um stundar-
sakir að skammta ekki eins
ríflega og oft áður, af brýn-
ustu nauðsyn, sem veldur að
vísu óánægju fyrst í stað, en
börnin skilja brátt, að mamma
reynir að skammta eins vel
og geta hennar leyfir. Ég held
einm'tt, að ríkisstjórnin okk-
ar sé í mjög líkri aðstöðu. Það
er líka þegar farið að gæta
þess, að dregið hefur úr óá-
nægjunni. Því allt heilbrigt
fólk skilur, að það er ekki af
illvilja að hlutur hvers eins
mun minnka nokkuð, heldur
af hinu, að þjóðarhagur leyf-
ir ekki stærri hlut, því sívax-
andi eyðsluskuldir gera ekki
annað en fresta þeim ófarn-
aði, sem bíður þeirra, er evða
meiru en þeir afla. Og margt
fleira kemur ríkisstjórninni
til hjálpar. T.d. andúð almenn
ings á uppbótakerfinu og öllu
því braski, sem því fylgdi, og
sem útheimti síaukna skatta
og stöðugan innflutning ó-
þarfa varnings, til að halda
þessu grautfúna og hrynjandi
bákni uppistandandi. Almenn-
ingur finnur og skilur, að úr-
bóta var þörf, og mátti ekki
dragast lengur að framkvæma
þær. Margir finna til þeirrar
niðurlæg'ngar, sem við næsf-
um einir allra þjóða verður
.að þola, að eiga svo smáðann
og fyrirlitinn gjaldevri, að
hann hvergi fæst skráður.
Margt ber á góma, þegar rætt
er um áform ríkisstjórnarinn-
ar. Til gamans má geta þess,
að lausamenn og piparsveinar
nefna hana barnavininn og
mannfjölgunarstjórnina og
skýrir nafngTtin sig sjálf. En
að sjálfsögðu ættu þó útgerð-
armenn að geta fagnað því,
að það síðarnefnda yrði rétt-
nefni.
En þegar til alvörunnar
kemur, þá held ég, að innst
inni í hugarfylgsnum alþjóð-
ar og einstaklinga, bærist sú
kennd til úrbóta, að nær allir
kjósi að vera með stjórninni,
sem ekki eru blindaðir af póli-
tísku hatri og moldviðri.
Sívaxandi og stöðugur
greiðsluhalli, og milljóna-
greiðslur í rentur og afborg-
anir, er mörgum áhyggjuefni.
Og hve ört sígur þar á ógaefu-
hlið mun greint frá í næstu
línum. Benjamín Eiríksson
bankastjóri hugðist í grein um
daginn, að mér skildist, reyna
að draga dulu yfir skuldavan-
skapnað okkar, og sagði, að
rentur og afborganir af lán-
um okkar erlendis væru 5
mlllj. dollara.
En árla morguns næsta dag
kom Jóhannes Nordal hag-
fræðingur og svifti dulunni
Framhald á 14. síðu.
MAÐUR er nefndur Benoný
Benediktsson, af kunnugum
tíðum nefndur Ynoneb upp á
rússnesku og fæst það heiti
úr því íslenzka með því að
lesa aftanfrá. Allt er þetta til-
stand gert í virðingarskyni
en Rússar eru sem kunnugt
er manna öflugastir í skák.
Einu sinni komu hingað til
lands Rússar tveir, Tajman-
off og Ilvítskí, tefldu þei'r
við Benoný og stóðu lengst
af hörmulega en Benoný líkn-
aði þeim að lokum, lét þá hafa
jafntefli. Fengu Rússar nú
mikið dálæti á manninum og
stóð til að sæma hann mann-
úðarorðu Lenins eða Stalins
en vegna þeirrar óvissu sem
þá ríkti í stjórnmálum Sovét-
ríkjanna varð Benoný af
orðunni en fékk í þess stað
leyfi til að snúa nafni sínu
við sjálfum sér til upphafn-
ingar og Rússum til dýrðar.
En vegna þess að Benoný er
rammíslenzk rjúpnaskytta
hefur hann ekki notfært sér
þessi hlunnindi sín sem
skyldi.
Því er þessi gamla saga
rifjuð upp hér að mörgum
mun þykja það með ólíkind-
um að Benóný skuli eftir fjór-
ar umferðir á Reykjavíkur-
mótinu vera efstur ásamt
þeim Friðriki og Inga R. með
fjóra vinninga. Auk þess
kynni þessi upprifjun að hlífa
mörgum manninum við yfir-
liði ef svo skemmtilega vildi
til að Benoný yrði skákmeist-
ari Reykjavíkur árið 1960.
Vegna þess að Þjóðviljinn er
búinn að birta alla helztu
snilld Benonýs í Revkjavík-
urmótinu verðum við að láta
okkur nægja eina stutta skák
teflda af stórmeistaranum og
Halldóri Jónssyni.
Aður en við hefjum skák-
ina langar mig"að benda á að
það er fleira sem skiptir máli
í þessu móti en Reykjavíkur-
meistaratitillinn. Baráttan um
neðsta sætið er ekki síður
hörð og talsverðar líkur á að
sá sem það hreppir þurfti ekki
að þreyta sig í landsliðskeppn
inni um páskana.
Þá hefjum við skákina.
Spænskur leikur.
Hvítt: Friðrik Ólafsson
Svart: Halldór Jónsson
1. e4—e5
2. Rf3—Rcb
3. Bb5—a6
4. Ba4—Rf6
5. 0--0—Rxe4
(Þetta afbrigði er nú lítið
teflt, en Halldór hefur líklega
ætlað að koma stórmeistaran-
um á óvart Það sýnir^ sig þó
brátt að menn verða að dusta
meira ryk til þess að tómir
verði kofarnir á Stóra-Hóli).
6. d4—b5
7. Bb3—d5
8. dxe5—Be6
9. c3—Be7
10. Be3—0-0
11. Rbd2—Rc5?
(Friðrik hefur bersýnilega
ruglað Halldór með 10. leik
sínum. Rétti leikurinn var 11.
—Rxd2 og eðlilegt framhald:
12. Dxd2—Ra5 13. Bc2—-Rc4
14. Dd3—g6 15. Bh6—Rxb2
16. De2—He8 og svartur hef-
ur trausta varnarstöðu).
12. Bc2—f6
(Þessi leikur veikir kóngs-
stöðu svarts hættulega, en
staða svarts er strax orðin
snúin og erfitt að finna við-
unandi framtíðaráætlun).
13. exf6—Hf6
14. 64—Rd7
15. Rg5—Rf8
16. Rxe6—Rxe6
17. Rf3—Bd6
.18. Bg5!:—Rxg5
19. Rxg5—Be5
(19. -—Bf4 svarar hvítur með
20. Bxh7t—Kh8 21. h4—)
20. Bxh71—Kf8
21. f4!Bxc3
22. Hcl—Bd4
23. Khl—Be3
24. Hc3—d4
25. Db3—Dd6?
(Sjálfsagt var að taka hrók-
inn, þá hefði hvítur átt tals-
verðu verki ólokið en nú er
staðan vita vonlaus. Fram-
haldið hefði getað orðið: 25.
—dxc3 26. Dg8t—Ke7 27.
Dxg7t—Ke7 28. Dxg7t—
Kd6 29. Hel—De7 30. Re4t—
Ke6 31. f5—Ke5 32. Dg3t—
Bf4 33. Dxc3t—Rd4 34. Rd6t
—Kxd6 35. Dc5t—Kd7 36.
Dxd7t, en möguleikarnir eru
margir og þykir mér ótrúlegt
að Friðrik hafi reiknað með
þessum. Kannske hefur hann
bara ætlað að leika 26. Re6t
og taka hrókinn aftur).
26. Dg8t—Ke7
27. Dxg7t—Kd8
28. Hc5—d5
29. Hf5—Bd4
30. Dg8t—Kd7
31. Dxa8—d2
32. Hxf6—Bf6
og svartur féll á tíma.
Ingvar Ásmundsson.
Alþýðublaðið — 16. marz 1960