Alþýðublaðið - 31.03.1960, Síða 3
Selfangari
með brofinn
skrúfuðxul
ÞORLÁKSHÖFN, 30. marz. —
Síðan á mánudaginn hefur ríkt
óviðunandi ástand í samgöngu-
málum Þorlákshafnar. Hefur
horft til vandræða af þeim sök-
um, þannig að minnstu hefur
mátt muna að atvinnulíf hér
stöðvaðist vegna saltsskorts og
olíuskorts.
Ástæðan til þessa er sú, að
vegamálastjórnin hefur sett
þær hömlur á umferð um veg-
inn hingað, að banna umferð
bifreiða, sem eru þyngri en 5
tonn á öxul. Bannið tók gildi á
mánudaginn og eru verðir frá
bifreiðaeftirliti og lögreglu við
veginn. Vigta þeir hvern bíl,
sem líklegur er til að vera
þyngri en framangreind ákvæði
leyfa, og gera þá afturreka, sem
þyngri eru.
Borið er við, að frost sé 1
Framhald á 10. síðu.
\wwiwvwwvww%vtmmwwwwvw wwmwwwmwvwwwvwwwwvwm
Föðurlaus
flóttabörn
FYRIR skömmu sagði Al-
þýðutolaðið frá júgóslav-
neskri flóttakonu, sem á í„
miklum erfiðleikum. Kona
þessi, sem býr hér í Reykja-
vík, missti mann sinn fyrir
skömmu og stendur nú ein
uppi með 3 ung börn. Konan
hefur dvalið hér á landi í 10
mánuði Maður hennar veikt
ist skyndilega 4 mánuðum
eftir að þau komu hingað og
lézt eftir 6 mánaða legu.
Skömmu eftir að blaðið
sagði frá þessum vandræð-
um konunnar bárust því
nokkrar peningagjafir til
handa henni. Einnig hefur
fólk hringt til blaðsins og
spurzt fyrir um heimilisfang
hennar í þeim tilgangi að
færa henni föt og peninga.
í fyrradag fór blaðamaður
frá blaðinu ifleð peningana,
sem safnazt höfðu, og færði
henni. Konan býr í kjallara-
í'búð, Akurgerð 24, og hefur
þar eitt lítið herbergi og eld-
hús fyrir sig og ‘börnin þrjú.
Konan var peningunum
mjög fegin, og er ekki að efa
að þeir ihafa komið sér vel.
Börn konunnar eru á aldrin-
um 1—5 ára og heita Branko,
Mario og María.
Blaðið hvetur fólk til þess
að rétta konunni hjálpar-
hönd. Tekið verður á móti
gjöfum til hennar á Alþýðu-
blaðinu-
AKUREYRI, 30. marz. í morg-
un kom hingað norska eftirlits-
og 'björgunarskipið Salvator,
sem er norska selveiðiflotanum
til aðstoðar meðan selveiðarn-
ar standa yfir. Salvator var að
koma með selfangarann Polar-
tind, sem hafði brotið skrúfu-
öxulinn.
Polartind mun þurfa að vera
hér um kyrrt, unz skrúfuöxull
kemur, en hann verður sendur
flugleiðis frá Noregi.
SELYEIÐIN NÝBYRJUÐ.
Selveiðarnar hófust 20. marz
og munu standa yfir til 5. maí,
en þá byrjar friðunartímabil.
Um 40 norsk skip stunda veið-
arnar. Er meðalafli þeirra um
2000 selir á tímabilinu. Flestir
selfangararnir eru frá Troms
og Sundmöre.
Mikil þoka hefur verið á sel-
veiðisvæðinu til þessa, lélegt
skyggni og mikið frost. Eftir-
litsskipið Salvator hefur haft
lítið að gera það sem af er;
aðeins þurft að sinna tvisvar
beiðni um læknishjálp, Salva-
tor er mjög vel útbúið skip til
þessara starfa, m.a. hefur það
þyrilvængju um borð.
Skipið hefur gegnt eftirlits-
störfum á selveiðisvæði Norð-
manna síðan slysin miklu urðu
hér um árið, er mörg norsk sel-
veiðiskip fórust, og komið hing-
að til Akureyrar á hverju ári.
Skipstjóri á Salvator er Tryg-
ve Gaasö. Eru framgreindar
upplýsingar eftir samtali við
hann og fulltrúa fiskimála-
stjórnarinnar í Noregi, Fröland
að nafni, sem er meðal skip-
verja á eftirlitsskipinu. - G.St.
Skreiðarfram-
leiðslan eykst
SKREIÐ ARFRAMLEIÐSLAN ♦
var heldur meiri í janúar þessa
árs en janúar sl. árs. Hins vegar
eru birgðir meiri af skreið nú en
í fyrra og stafar það af því, að
Norðmenn hafa sent meira af
skreið á markaðinn í Nigeríu
en um sama leyti í fyrra.
Nórðmenn framleiddu mjög
mikla skreið sþ ár og eiga því
miklar birgðir og hafa því sent
mjög mikið til Nigeríu undan-
farið.
Skreiðarframleiðslan hér á
landi var meiri sl. ár en árið
áður. Sl. ár nam framleiðslan
44 þús. lestum miðað við slægð-
an fisk með haus, en árið 1958
nam framleiðslan 42 þús. lest-
um. Útflutningur skreiðar nam
7673 lestum sl. ár og var það
nokkru meira en árið áður.
London, 30. marz.
Brezka stjórnin hélt því fram
í dkag, að árið 1960, mundi
verða Bretum gott ár, ef að-
eins væri hægt að halda verð
lagi bg kostnaði yrði haldið í
skikkanlegum skefjum þannig
að útflutn'i'ngsatvinnuvegimir
! döfnuðu.
FUJ-félagar
FRAMHALDSSTOFNFUND-
UR FUJ í KÓPAVOGI
Framihaldsstofnfundur Félags
ungra jafnaðarmanna í Kópa-
vogi verður í félagsheimilinu að
Freyjugötu 27 í kvöld kl. 8.30.
Fjölmennið stundvíslega, því að
strax á eftir verður farið á
skemmtikvöld FUJ í Reykjavik
á sama stað.
FUJ-félagar í Reykjavík eru
minntir á skemmtikvöldið að
Freyjugötu 27 í kvöld kl. 8.15.
Þar verður margt til skemmt-
unar: Bingó, töfl, spil, leikir o.
fl. Þriggja kvölda keppni í fé-
lagsvist hefst. Fjölmennið og
takið með ykkur gesti.
NÝTT Böglauppboð (margt
eigulegra muna).
FÖNDURANNAÐ KVÖLD
'Stúlkurnar á föndurnám-
skeiði félagsins eru beðnar að
mæta annað kvöld, föstudag, en
ekki í kvöld, eins og fyrirhugað
var. í kvöld er nefnilega
skemmtikvöldið.
SQB
HB
Alþýðuflokksfélags Reykja-
víkur er á laugardag
Tryggið ykkur miða
tíma, á flokksskrifstaf'
unni eða í Alþýðubrauð
gerðinni.
■HHHHHKHHHHHHHHHHHHHBHHHHHHHHHHHHHBMHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHIHHHHHHBHHHHHHHHHMHHHHMHHHHHHHHHHHHHHH
Alþýðublaðið — 31. marz 1960