Alþýðublaðið - 31.03.1960, Qupperneq 7
áelSan
stiórnar aftur
S. AFMÆLISTÓ5TLEIKAR Sin-
fóníuhljómsveiíar Islands verða
haldnir í Þjóðleikhúsinu föstu-
daginn 1. apríl kl. 8,30. Stjórn-
andi hljómsveitarinnar verður
Olaf Kielland. Einleik á píanó
með hljómsveitinni leikur rúss-
neski píanóleikarinn Mikhail
Voskrensenskí.
Á efnisskránni eru 3 verk:
iForspil 3. þáttar úr óperunni
ÞORLÁKSHÖFN, 30. marz. —
Afli hefur verið mjög sæmileg-
llr undanfarna daga. Á föstu-
daginn var t.d. bezti afladagur-
inn'hér, en þá bárust á land
238 tonn af 7 bátum.
Aflahæsti báturinn á vertíð-
Snni losar rúm 600 tonn; það er
Friðrik Sigurðsson. — M.B.
Lohengrin eftir Wagner. Pínaó-
konsert no. 3 í c-moll eftir Bee-
thoven. Sinfónía no. 4. í e-moll
eftir Brahms.
Olaf Kielland, sem nú stiórn-
ar þessum tónleikum, hefur
stjórnað Sinfómuhljómsveit ís-
lands oftar og lengur, en nokk-
ur stjórnandi hennar hefur
gert. Kielland hefur átt mikinn
og góðan þátt í uppbyggingu
hljómsveitarinnar. Hann var í
3 ár fastur stjórnandi og list-
rænn leiðbeinandi hennar. Nú
býr Kielland á sveitasetri sínu
í Noregi, og vinnur að tónsmíð-
um. Fyrir skömmu fékk Kiel-
land heiðursverðlaun frá rík-
inu norska, og föst tónskálda-
laun. Kielland var boðið hing-
að í tilefni afmælisins til að
stjórna tvennum tónleikum.
Það eru nú liðin þrjú ár síðan
Kielland var hér síðast.
Hinn rússneski píanóleikari,
sem leikur einleik með hljóm-
sveitinni hefur verið hér áður.
Hann hefur vakið mikla athygli
fyrir glæsiiegan píanóleik, Pí-
anóleikarinn er ungur maður
og að sögn mjög efnilegur.
Sjálfsaf-
greiðsla
FYRIR NOKKRU voru gerðar
miklar breytingaí á Matstofu
Austurbæjar. Hefur nú þessum
vinsæla veitngastað verið breytt
á þann' hátt, að þar fer nú ein-
göngu fram sjálfsafgreiðsla.
Sett hefur verið upp mikið
afgreiðsluborð þar sem af-
greiddur er heitur matur. Einn-
ig fást þar kökur, smurt brauð
og alls kyns eftirréttir. Mjólk
og öl er þar í kælum. Þetta af-
greiðslufyrirkomulag hefur náð
miklum vinsældum víða um
heim, og þykir spara mikið tíma
og fyrirhöfn.
Nokkrar breytingar hafa ver-
ið gerðar á matstofunni sjálfri,
og er hún öll hin vistlegasta.
Ekki er að efa að vinsældir
matstofunnar aukast eftir þess-
ar breytingar.
Eigandi Matstofu Austurbæj
ar er Gunnar Vilhjálmsson.
FRUMVARP ríkisstjórnarinn
ar um stórfellda aukningu !al-
mannatrygginganna var af-
greitt sem lög frá efri deild al-
þingis í gærkvöldi. Var það sem
heild samþykkt samhljóða.
Samkvæmt lögunum gengur
hækkun fjölskyldubótanna í
gildi 1. apríl nk. og verða hinar
auknu bætur greiddar út 15.
apríl. Hinar nýju fjölskyldubæt
ur nema 2600 kr. á hvert barn
á ári. Elllífeyririnn hækkar um
44% og sú hækkun gildir frá 1.
febrúar sl. Verður byrjað að
greiða ellilífeyri samkvæmt hin
um nýjudögum 10. apríl. Barna-
lífeyrir hækkar um 43%. Fæð-
ingarstyrkur hækkar um 25%.
Mæðralaun hækka einnig syo
og allir aðrir bótaflokkar trygg-
inganna. í heild munu bótþ-
greiðslur um það bil tvöfaldast.
Blaðið heftir hlerað
Að Lido eigi von á hiimi
þekktu söngkonu Lucille
Mapp, sem einna mest he£
ur borið á undanfarið, £
enska og hollenzka sjén-
varpinu í vetur. — Frú
Mapp ferðast ásamt
manni sínum, lögreglufer
ingja frá Trinitas.
T“
Yfirlýsing írá
Tónskáldafél.
Islands
STJÓRN og félagsmenn Tón-
skáldafélags íslands leyfa sér,
vegna blaðskrifa undanfarð og
ti'I að útiloka misskilning, að
lýsa yfir því að þeir hafi kjörið
dr. h. c. Pál ísólfsson sem heið-
ursforseta félagsins eingöngu
sökum verðleika hans sem eins
fyrsta og elzta sérmenntaða tón
listarmanns þjóðarinnar og hafi
talið slíkt bæði honum og félag-
inu til viðeigandi sóma, án þess
að nokkur annar tilgangur hafi
af hálfu félagsins verið tengdur
útnefningunni, enda harmar
undirritaður formaður, að orð
hans hafa verið misskilin á
þann veg.
Reykjavík, 29. marz 1960.
e. u.
Jón Leifs.
Fyrirlaifur m
norskan myndvefnað
í KVÖLD mun frú Helen
Engelstad flytja erindi í hátíða
sal háskólans á vegum Þjóð-
minjasafnsins og Félagsins ís-
land—Noregur. Erindið fjallar
um norskan myndvefnað frá
fyrri öldum og fram á síðari
tíma. Með erindinu verða sýnd-
■ar skuggarnyndir. Fyrirlestur-
inn hefst kl. 8,30 og er öllum
iheimill aðgangur.
itthvað
1
fyrir alla
H.F ÖLGERÐIN
EGILL SKALLAGRIMSSON
Hvíiöl
Spur Cola
Ginger ále
Hi - Spof.
LímonaÖi
Ouinine Waler
ánanas
\
Alþýðublaðið — 31. marz 1960