Alþýðublaðið - 31.03.1960, Qupperneq 16
ÓLAFSVÍK er mesta útgerðarstöð á Snæfellsnesi og ört
vaxandi bær. Undanfarið hefur bátaflotinn þar stækkað
að mun og eru nú gerðir út þaðan 14 bátar. Þar eru tvö
frystihús, en mikið af aflanum er líka saltað og hert.
Það sem af er þessari vertíð hafa borizt á landi í Ólafs-
vík um 6000 lestir og hefur aldrei aflazt þár jafnmikið
á enni vertíð. Fjöldi aðkomumanna er þar í vinnu, bæði
á sjó og landi, og allir, sern vettlingi geta valdið, vinna
við fiskinn, börn fá frí í skólum og húsmæður fara frá
heimilisstörfum, því að aflanum verður að vinna jafn-
skjótt og hann berst á Iand. — MYNDIRNAR: Skreiðar-
hjallar við Ólafsvík. — Sjómaður á Sæfelli við veiðar,
— AðalleikvöIIur barnanna er fjaran eins og í mörgum
sjávarþorpum, þar er siglt í fjöruborðinu, farið í fót-
bolta, tíndar skeljar og teiknað í sandinn.
Alþýðuhlaðsmyndir: Oddur Ólaísson