Fréttablaðið - 26.07.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTABLAÐIÐ
26. júlí 2001 FIIVIMTUDACUR
KJÖRKASSINN I
FLOKKAR STANDI
REIKNINCSSKIL
Yfirgnæfandi meirihluti
kjósenda á Vísi.is telur
að stjórnmálaflokkar
eigi að opna bókhald
sitt fyrir almenningi.
Eiga stjórnmáiaflokkar
að opinbera bókhald sitt?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
m._______________________jx%
Spurning dagsins í dag:
Finnst þér hús Kára
Stefánssonar of stórt?
Farðu inn á visi.is og segðu
þína skoðun
____________________
GEIR HAARDE
Afkoma ríkissjóðs varð verulega
lakari en hann gerði ráð fyrir.
Ríkissjóður:
Útgjöldin
vaxa um rúm
20 prósent
RÍKISFJÁRMÁL Afkoma ríkissjóðs
var 5,8 milljörðum lakari en áætl-
anir gerðu sögðu til um, þrátt fyr-
ir að tekjur væru hærri en ætlað
var. Útgjöldin voru 6,8 milljarðar
umfram það sem ráð var fyrir
gert. Niðurstaða þessa 6 mánaða
uppgjörs ríkisjóðs er því að hreinn
tánsf járjöfnuður er neikvæður um
tæpa 3,7 milljarða en í fyrra var
staðan jákvæð um tæpa 13,7 millj-
arða. Afkoma fyrir sömu mánuði
undanfarin ár hefur verið jákvæð.
Tekjuaukning ríkisins milli ár-
anna 2000 og 2001 er um 7 millj-
arðar, en útgjöldin aukast um 19
milljarða. 8 milljarðar af útgjalda-
aukningunni skýrast að sögn fjár-
málaráðuneytisins af sérstökum
útgjöldum svo sem öryrkjadómi
upp á 1,3 milljarða og eingreiðslu
vegna uppkaupa á fullvirðisrétti
bænda fyrir 780 milljónir. Útgjöld
ríkisins hafa vaxið um 21,6% milli
áranna 2000 og 2001. Dýrasti
málaflokkurinn er Heilbrigðismál
og hækka útgjöld til þess mála-
flokks um rúma 4 milljarða eða
um 19,4 %. ■
—*—
Nýherji birtir uppgjör:
Tapaði36
milljónum
uppcjör Nýherji tapaði 36 milljón-
um króna á fyrstu 6 mánuðum
ársins samanborið við 185 milljón
króna hagnað í
fyrra, þar af var
söluhagnaður að
fjárhæð 178 millj-
ónir vegna sölu
eigna.
Á fyrstu 6 mán-
uðum ársins nam
gengistap félágs-
ins ásamt verðbót-
um á tekjuskatts-
skuldbindingu 51
milljónum auk
þess sem tap dótt-
ur- og hlutdeildar-
félaga nam 8 millj-
ónum. Að sögn
Nýherja skýra
þessir liðir að
verulegum hluta
lakari afkomu félagsins á tímabil-
inu. Tekjuáætlun félagsins stóðst
en afkoman er lakari en gert var
ráð fyrir og verður áætlun félags-
ins endurskoðuð í ágúst. ■
ÞÓRÐUR
SVERRISSON,
FORSTJÓRI
NÝHERJA
Tekjuáætlun Ný-
herja stóðst, en
afkoman var lak-
ari en fyrirtækið
gerði ráð fyrir í
áætlunum sínum.
2
Hvalveiðiþjóðimar njóta stuðnings PETA:
Hvalveiðar vernda líf
ÍSLANDSVINIR
Talsmaður PETA segir að hvalfriðunarþjóðir vilji banna hvalveiðar en drepi síðan ýmis
önnur dýr í miklu meira magni.
hvalveiðar Hvalveiðiþjóðum barst
óvæntur stuðningur í vikunni þeg-
ar dýraverndunarsamtökin Fólk
fyrir siðlegri meðferð dýra
(PETA) hóf herferðina „Borðum
hvali“. Samtökin segja ályktanir
Breta, Bandaríkjamanna og ann-
arra hvalfriðunarþjóða vera
byggðar á hroka þar sem slátra
þurfi yfir 1200 svínum til þess að
fá sama kjötmagn og í einum blá-
hval. Þá segja samtökin að flest
dýr sem ræktuð eru til manneldis
þurfi að lifa við ömurlegar aðstæð-
ur til slátrunardags en hvalir syndi
frjálsir um heimshöfin og hafi það
því fínt þar til þeir eru veiddir.
„Með því að éta hvali væru
menn að hlífa ansi mörgum lífum -
lífum bæði kúa, kjúklinga, kinda
og annarra dýra væri fremur
borgið með þessum hætti. Sem
dýraverndunarsamtök trúum við á
það að vernda skuli öll dýr. Það er
mjög auðvelt að fetta fingur út í ís-
land, Noreg og Japan og segja að
þið ættuð ekki að veiða hvali, en
vilji menn vera samkvæmir sjálf-
um sér og draga úr þjáningum
dýra ættu menn að neyta engra
dýraafurða," sagði Bruce
Friedrich, talsmaður PETA í
London, við Fréttablaðið í gær.
Hægt að kynna sér frekar herferð
PETA á www.eatthewhales.com. ■
Skemmdarvargur:
Rispaði
fjölda bíla
löcreclumál Fjölmargar tilkynn-
ingar bárust lögreglunni í Reykja-
vík í gær um rispaða bíla í Hóla-
hverfinu. Strax um morgunin
barst fyrsta tilkynningin og þær
voru síðan að berast allt fram á
kvöld. Að sögn lögreglu voru á bil-
inu tíu til fimmtán bílar sem
höfðu orðið fyrir barðinu á
skemmdarvarginum þegar síðast
fréttist. Allir bílarnir voru illa
skemmdir, rispaðir á báðum hlið-
um og að framan og aftan. Engin
sökudólgur hafði náðst þegar síð-
ast fréttist. ■
Krefjast stöðvun fram-
kvæmda við hús Kára
Verðandi nágrönnum Kára Stefánssonar í Skerjafirði ofbýður stærð fyrirhugaðs 536 fermetra
einbýlishúss hans og kreíjast þess að framkvæmdir á lóðinni verði stöðvaðar. Þeir segja hús Kára
á stærð við félagsheimili og að hús þeirra muni líta út eins og „smákofar" í samanburði.
HIÐ LÍPARfTKLÆDDA
HÚS KÁRA STEFÁNS-
SONAR
Byggingatreitur lóðar Kára
Stefánssonar við Skelja-
tanga var fyrst og fremst
stækkaður til suðurs.
Hér sést austurhlið hússins
sem er á að giska 29
metrar að skjólgirðingunni
frátalinni. Mesta hæð húss-
ins á að vera 5,7 metrar
sem er 2,1 metrum hærra
en nokkurt annað hús við
götuna. Arkitekt er Hjörleif-
ur Stefánsson, bróðir Kára.
m'isBVGGiNCAR Þrír væntanlegir
nágrannar Kára Stefánssonar í
Skerjafirðinum hafa krafist þess
að nýhafnar framkvæmdir við
fyrirhugað einbýlishús Kára við
Skeljatanga verði stöðvaðar og að
byggingarleyfi vegna hússins
verði fellt úr gildi. Fjöldi annarra
húseigenda gerði athugasemdir
við húsið þegar það var kynnt í
vor vegna hæðar og umfangs
þess.
Nágrannarnir kærðu upphaf-
lega húsbygginguna til úrskurð-
arnefndar bygginga- og skipu-
lagsmála í lok maí því þeim þykir
húsið vera alltof stórt fyrir lóð-
ina. Við meðferð málsins hjá
skipulagsyfirvöldum hefur upp-
haflegur byggingarreitur lóðar-
innar verið stækkaður verulega
og deiliskipulaginu verið breytt
fyrir þessa einu lóð til að koma til
móts við óskir Kára.
Þau sem kæra er Guðmundur
Jónsson húsasmiður, sem býr ská-
hallt ofan við Kára að Fáfnisnesi
4, og hjónin Herdís Hallvarðs-
dóttir og Gísli Helgason sem búa
við hlið lóðar Kára, vestan megin,
en hús þeirra stendur að Skild-
inganesi 6.
Ekki náðist í Guðmund en Gísli
sagði í samtali við Fréttablaðið í
gær að þau Herdís vildu ekkert
láta hafa eftir sér um kæruna.
Hann tók þó fram að þau ættu
ekki í ófriði við Kára þó þau vildu
að kæra þeirra fengi eðlileg með-
ferð.
Búast við að áðurnefnd úr-
skurðarnefnd taki afstöðu til
kröfunnar um stöðvun fram-
kvæmda í næstu viku. Nefndin
þarf að meta hvort líklegt sé að
húsbygging Kára falli ekki að ný-
gerðu skipulagi og hvort það sé
málefnaleg málsferð sem upp-
fyllir jafnræðisreglu að borgin
breytti deiluskipulagi þessarar
einu lóðar. Reglur segja að jafnan
eigi ekki að breyta deiliskipulagi
fyrir smærri svæði enn eina
götu.
Herdís og Gísli segja í kæru
sinni frá því í lok maí að þau furði
sig á að samykkt hafi verið að
stækka byggingarreitinn á lóð
Kára og leyfa þar tvílyft hús því
að borgaryfirvöld hefðu nokkrum
vikum fyrr neitað eigendum
hússins austan við Kára í Skelja-
tanganum um að lengja bygging-
areitinn og reisa tvílyfta viðbygg-
ingu.
Gísli og Herdís segja síðan í
kæru sinni að þau telji freklega
að sér vegið því að einbýlishús
þeirra, sem mun vera um 200 fer-
metrar, verði eins og „smákofi"
við hlið húss Kára, sem þau
reyndar segja vera „á stærð við
lítið félagsheimili".
gar@frettabladid.is
Frægasta kona Indlands myrt í gær:
Ræningjadrottning féll
fyrir hendi morðingja
RÆNINGJADROTTNINCIN SYRGÐ
nýja pelhl AP. Phoolan Devi, betur
þekkt sem ræningjadrottningin
(Bandit Queen), var myrt fyrir
utan heimili sitt í Nýju Delhi á Ind-
landi í gærmorgun. Morðingjarnir
þrír flúðu af vettvangi. Gert var
hlé á störfum þingsins eftir að inn-
anríkisráðherra Indlands, L.K.
Adani hafði greint þingmönnum
frá morðinu á Devi sem síðustu
æviár sín var þingmaður Sama-
jwadi-flokksins.
Ótalmargar goðsögur hafa
skapast um skrautlega ævi Devi
og ýmislegt er, að sögn BBC og
The Guardian, á huldu um ævi
hennar, ekki síst vegna hennar eig-
in missagna um ýmis æviatriði.
Víst er þó talið að hún fæddist
fyrir 43 árum í fátæka fjölskyldu
sem tilheyrði lágstétt í hinu stran-
ga stéttarkerfi hindúismans. Ell-
efu ára gömul var hún gift manni,
sem var þrisvar sinnum eldri en
hún. Hjónabandið leystist upp ári
síðar og Devi slóst í lið með stiga-
mönnum og leiddi síðar hóp þeirra.
Árið 1981 varð Devi fræg um ger-
vallt Indland eftir að flokkur henn-
ar var bendlaður við fjöldamorð á
22 mönnum, flestum úr æðri stétt-
um hindúa, sem áttu sér stað í
bænum Behmai á norður Indlandi.
A LEIÐ 1 PINGIÐ
Phootan Devi á leið til vinnu sl. mánudag.
Sagt er að Devi hafi borið kennsl á
tvo rnenn í þorpinu sem hafi áður
nauðgað henni og myrt elskhuga
hennar og hún því fyrirskipað
fjöldamorðin.
Devi var eftirlýst um allt Ind-
land í kjölfar morðanna en slapp
ávallt úr greipum lögreglunnar. Á
þessum tíma var hún orðin mjög
vinsæl meðal lágstétta á Indlandi
vegna orðstýrs síns en sögur her-
mdu að flokkur hennar rændi þá
ríku og gæfi þeim fátæku. Ind-
versk yfirvöld segja það hins veg-
ar goðsögn eina. Hún gaf sig fram
við lögreglu árið 1983 en þá voru
flestir liðsmenn hennar fallnir í
valin og hún sjálf veikburða.
Eiginmaður Devi, Umedh Singh, (t.h. í gulri
skyrtu) og ættingjar í kringum lík hennar á
spítalanum í gær.
Devi sat í fangelsi í ellefu ár,
saklaus af fjöldamorðunum að eig-
in sögn. Sama ár og hún var leyst
úr haldi var frumsýnd mynd
byggð á ævi hennar sem sló í gegn
um heim allan. Hún var gerð án
samráðs við Devi sem var ósátt við
myndina. Devi sat á þingi í fimm
ár, sem út af fyrir sig er talið ein-
stakt afrek fyrir ómenntaða konu
úr lágstétt. Sjálf sagðist hún full-
trúi þeirra sem hefðu verið mis-
notaðir af þeim sem hærra eru
settir í samfélaginu. ■