Fréttablaðið - 26.07.2001, Page 6
SPURNING DAGSINS
Hvað finnst þér um
vatnsfæðingar?
Mér finnst þær heillandi kostur. Konur eiga
að fá að ráða því sjálfar, þær taka slíkar
ákvarðanir aldrei að vanhugsuðu máli. Það
er hinsvegar slæmt þegar menn eins og fltli
Dagbjartsson koma fram með sleggjudóma
sem eru til þess eins að leggja skoðanir
upp i hendur þeirra kvenna sem geta ekki
myndað sér sínar eigin.
Sigrún Birna Norðfjörð er fiugfreyja og husmóðir
Bandarísk yfirvöld:
Neita að styð-
ja bann við
efnavopnum
HERNflÐUR. Bandarísk yfirvöld
hafa neitað að skrifa undir alþjóð-
legt samkomulag um að koma á
fót banni við notkum efnavopna í
heiminum. Að sögn Donald Ma-
hely, fulltrúa Bandaríkjanna sem
sat fund á vegum Sameinuðu þjóð-
anna í Genf, eru Bandaríkjamenn
ekki í aðstöðu til að undirrita sam-
komulagið. „Að okkar mati myndi
samkomulag þetta stefna þjóðar-
öryggi og leynilegum upplýsing-
um um viðskipti okkar í hættu,“
sagði Mahley í viðtali á fréttavef
BBC. Ekki er talið að þessi stefna
Bandaríkjanna verði til þess að
mýkja Evrópubúa í afstöðu sinni
gegn landinu, en Bandaríkjamenn
eru þegar litnir hornauga fyrir að
hafa hunsað Kyoto-bókunina og
neitað að styðja nýja tillögu um
sölu handvopna. ■
LEGGJA BÖLVUN
Stúdentar í Tævan bíða í langri biðröð eftir
því að fá að leggja bölvun á óprúttna fíkni-
efnasala landsins.
Almenningur í Tævan:
Bölvun á
fíkniefnasala
suphanburi. TÆVflN, ap. íbúar borg-
arinnar Suphanburi í Tævan tóku
í gær þátt í athöfn þar sem lögð
var bölvun á fíknefnasala. Lög-
reglumenn söfnuðust saman og
báðu bænir auk þess sem stúdent-
ar köstuðu chillí og salti í opinn
eld sem hluta af athöfninni, sem á
uppruna sinn að rekja til búd-
dískra trúarbragða. Með athöfn-
inni er ætlunin sú að hræða líftór-
una úr þeim sem eru viðrinir
fíkniefni á einhvern hátt auk þess
sem reynt er að upplýsa tælensk-
an almenning um hættur fíkni-
efna. ■
FRETTABLAÐIÐ
26. júli 2001 FUVUVITUPAGUR
Borgarfulltrúar sjálfstæðismanna:
Borgarstarfsmenn
til aðstoðar lögreglu
miðborgin I tillögum sjálfstæðis-
manna um úrbætur á meintum
miðborgarvanda er m.a. lagt til að
8 - 10 borgarstarfsmenn verði til
aðstoðar og til eftirlits með lög-
reglunni um kvöld og nætur um
helgar og á hátíðisdögum í sér-
stakri Miðbæjardeild. í þessum
efnum er horft til þeirrar reynslu
sem fékkst á sínum með starfsemi
Útideildarinnar. Árlegur kostnað-
ur við rekstur þessarar nýju deild-
ar er talin geta numið 10 -15 millj-
ónum króna á ári.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarfulltrúi segir að þessi hópur
gæti einnig haft með höndum
ákveðið eftirlit með umhverfi vín-
veitingarstaða, án þess að þó að
þessir einstaklingar hefðu form-
legt vald. Það verði jafnframt hlut-
verk þessarar deildar að leiðbeina
einstaklingum sem eru hjálpar
þurfi í samvinnu við Rauða kross;
inn, kirkjuna og Foreldrahúsið. í
tillögum sjálfstæðismanna er ein-
nig lagt til að ölvun verði bönnuð á
Austurvelli frá morgni til mið-
nættis og opnað verði fyrir umferð
um Hafnarstræti til austurs. ■
NÆTURLÍF miðborgar
Sjálfstæðismenn segjast vilja athafnir í stað orða til lausnar á meintum miðborgarvanda
FRÉTTASKÝRING
11
Bændur skríði
á fjórum fótum
Dalabyggð lætur rannsaka sameiningu Goða og Norðvesturbandalagsins. Landbúnaðarráð-
herra segir Goða samsettan fyrirtækjum sem ekki standa undir skuldum. Engir peningar fást
frá ríkinu segir ráðherra.
landbúnaður Sveitarfélagið Dala-
byggð hefur falið lögfræðingi sín-
A um og endurskoð-
anda að athuga hvort
staðið hafi verið að
sameiningu Goða og
Norðvesturbanda-
lagsins með lögform-
legum hætti. Þetta
sagði Sigurður Rúnar
Friðjónsson, oddviti
Dalabyggðar í viðtali
við Fréttablaðið í
gær. Þetta staðfestir
Haraldur L. Haralds-
son, sveitarstjóri
Dalabyggðar.
„Ég held að mis-
tökin sem eiga sér
stað við Goða séu að
það er verið að sam-
eina fyrirtæki sem
eru í þokkalegum
rekstri við fyrirtæki
sem eru í raun og
veru gjaldþrota. Það
sem virðist vera að
koma upp úr þessu er
að þegar menn sam-
einuðu fyrirtækin voru þeir ekkert
með reikningana á borðinu þannig
að þeir vissu ekkert hvaða skuldir
þeir voru að færa saman,“ sagði
,,Þetta er hins
vegar áfellis-
dómur yfir
þeim sem
standa að
sláturiðnaðin-
um. Hingað til
hafa menn
ekki hugsað
um þetta sem
atvinnuveg
sem stendur
yfir í lengri
tíma og at-
vinnuveg sem
þarf að fara
fram í færri
sláturhúsum
en verið hef-
ur," sagði
Guðni Ágústs
—
Haraldur og bætti því við að menn -
bæði í Dölunum og á Hvammstanga
- hafi „dregið mjög í efa þennan
gjörning sem átti sér stað á milli
Norðvesturbandalagsins og Goða.“
Styrr hefur staðið um rekstur
Goða nánast frá stofnun hans í nú-
verandi mynd í ágúst 2000. Fyrir-
tækið varð til við sameiningu Borg-
arness-kjötvara í Borgarnesi, Norð-
vesturbandalagsins á Hvamms-
tanga, Sláturhússins Þríhyrnings á
Höfn, sláturhúss og kjötvinnslu
Kaupfélags Iléraðsbúa á Egilsstöð-
um og Kjötumboðsins í Reykjavík.
Eftir töluverða rekstrarerfiðleika
fór fyrirtækið fram á greiðslustöðv-
un í Héraðsdómi Reykjavíkur þann
23. júlí sl.
Guðni Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra, segir að hans mat sé að
Goði „sé samansettur af skuldugum
fyrirtækjum sem núna standa ekki
undir þeim skuldum sem til var
stofnað og útkoma síðasta árs er
hrikaleg hvað tap varðar." Ráðherr-
ann segir að í síðustu sauðfjársamn-
ingum hafi það verið mat bænda og
ríkis að ekki ætti að leggja til opin-
bert fé til hagræðingar í sláturhús-
um, heldur yrði markaðurinn að
bera ábyrgð á slátrun og afurðar-
sölu sjálfur. Ráðherrann bætti því
GUÐNI ÁGÚSTSSON
Hann segir Goða ekki standa undir skuld-
um og afkoma síðasta árs var hrikaleg.
við að hann harmi það ef Goði ráði
ekki við að borga viðmiðunarverð
fyrir afurðir bænda í haust.
„Það er mikilvægast núna fyrir
bændurnar að nota tímann til þess
að koma að málunum og reyna að
endurmeta sláturiðnaðinn í landinu,
með það að markmiði að reyna að
tryggja að hver fá greitt það verð
SIGURÐUR RÚNAR FRIÐJÓNSSON
Hann segir þokkalega stæð fyrirtæki
hafi verið sameinuð fyrirtæki sem í
raun var gjaldþrota.
fyrir sína vöru sem þeim ber, og að
þeir geti, með skaplegum hætti og
með sem lægstu verði, komið afurð-
um sínum til neytenda," sagði ráð-
herrann. Aðspurður um hvernig
hægt væri að gera þetta sagði
Guðni að við svona aðstæður þyrfti
að koma til endurskipulagningar og
IlögreglufréttirF
Sautján létust og 3.000 manns
urðu veðurtepptir í miklum
snjóstormi sem gekk yfir suð-
vesturhluta Argentínu í gær.
Mjög tók að kólna í landinu síð-
ustu helgi og var um 20 stiga
frost í landinu og mikil snjó-
koma með þeim afleiðingum að
loka varð vegum og matarskort-
ur gerði vart við sig í fimm hér-
uðum.
Útsala
Mikil verðlæl<l<un
Ríta
Eddufelli 2
s. 557 1730
Bæjarlind 6
s. 554 7030
TISKUVERSLUN
Opiö mán.-fös. frá kl. 10-18,
laugardaga 10-14
Umhverfis- og heilbrigðisstofa:
„Draumur R-lista
að búa til fullt af litl-
um borgarstjórum“
borgin Skiptar skoðanir eru inn-
an heilbrigðis- og umhverfis-
nefndar um þau áform borgaryf-
irvalda að setja á fót Umhverfis-
og heilbrigðisstofu. Hrannar B.
Arnarsson formaður nefndarinn-
ar segir að með þessari nýju
stjórnkerfisbreytingu verði til
mjög öflug umhverfisstofnun
með vel á annan milljarð króna í
árlegri veltu, enda muni heyra
undir stofnunina heilbrigðiseftir-
lit, hreinsunardeild og garð-
yrkjudeildin. Guðlaugur Þór
Þórðarson fulltrúi sjálfstæðis-
manna í nefndinni segir að þetta
sé enn ein leiðin til að auka á
báknið, enda sé það „draumur R-
listans að búa til fullt að litlum
borgarstjórum." Hann segir að
málið hafi ekki verið rætt innan
nefndarinnar.
Formaður nefndarinnar segist
ekki eiga von á öðru en að mikil
sátt og ánægja verði með þessa
skipulagsbreytingu í umhverfis-
málum. Hann segir að þetta sé
jafnframt eðlilegt framhald af
aukinni áherslu borgarinnar í
þessum málaflokki og líklegt að
þetta muni styrkja það svið enn
frekar. ■
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSSON
BORGARFULLTRÚI
Enn eitt báknið hjá R-lista
HRANNAR B. ARNARSSON
BORGARFULLTRÚI
Verið að búa til kraftmikla stofnun