Fréttablaðið - 26.07.2001, Qupperneq 7
FRÉTTABLAÐIÐ
FIMMTUDACUR 26. júlí 2001
Lífeyrissjóður ríkisstarfsmanna um stóriðju á Austur-
landi:
Meiri áhættufjárfesting
en lagt var upp með
STÓRiDifl „Margt hefur komið í ljós að
undanförnu sem bendir til þess að um
meiri áhættufjárfestingu sé að ræða
en lagt var upp með,“ segir Ögmund-
ur Jónasson, stjórnarformaður Líf-
eyrissjóðs starfsmanna ríkisins, og á
þar meðal annars við yfirlýsingu
Friðriks Sophussonar, forstjóra
Landsvirkjunar, um að til álita komi
að orkan verði seld um streng til út-
landa. Ekki séu því forsendur fyrir
lífeyrissjóðinn til að taka þátt í sam-
starfshóp sem ætlað er að kynna ál-
versframkvæmdir á Austurlandi sem
fjárfestingarkost fyrir sex lífeyris-
sjóði.
Ögmundur segir sjóðinn með
þessu ekki vera að bakka út úr sam-
komulagi þar sem engin formleg til-
laga hafi komið upp innan stjórnar
um þátttöku í samstarfshópnum.
Hann staðfestir að ákvörðunin sé
þvert á vilja launagreiðanda, það er
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, en
fram hefur komið skýr vilji þaðan um
að LSR taki þátt.
„í fyrsta lagi bendum við á að ekki
er enn vitað hvort framkvæmdirnar
„Coðamenn eru ósvífnir og þeir neita að ræða við hluteigandi aðila. Okkar eina vörn er
að sækja þetta mál með fullri hörku," sagði Sigurður Rúnar Friðjónsson, oddviti Dala-
byggðar. Forsvarsmenn Coða segja að þegar hafi verið rætt við Dalamenn en ekkert
samkomulag hafi náðst.
að bændurnir í landinu yrðu að
bera ábyrgð á sláturhúsum sínum -
„ekki síst með tilliti til sjúk-
dómsvarna."
Oddvitinn í Dalabyggð segir að
þetta hafi verið reynt; að óskað hafi
verið eftir „friðsamlegum samn-
ingum“ við Goða um að fá hús Af-
urðarstöðvarinnar á Búðardal -
sem rann inn í Norðvesturbanda-
lagið og síðan Goða - til afnota og
síðan myndi sveitarstjórnin semja
við aðra sláturleyfishafa um slátr-
un í húsinu.
„Þetta neituðu þeir að ræða við
okkur og það er vegna þess að þeir
ætla sér að bændur skríði til þeirra
á fjórum fótum á síðustu stundu,"
sagði Sigurður.
Úlfar Reynisson, aðstoðarfram-
kvæmdarstjóri Goða, segir það
ósatt að ekki hafi verið rætt við
Dalamenn. Hann staðfestir hins
vegar að ekki sé í boði að kaupa eða
leigja einstaka sláturhús - öll húsin
eru til sölu eða leigu saman. Orð J
Úlfars njóta stuðnings landbúnað- j
arráðherra sem telur að á íslandi ;
séu of mörg sláturhús að slátra fyr- j
ir „allt of lítinn markað."
„Þess vegna verður markaður-
inn að þróa þessa atvinnugrein og
bændurnir verða að gera sér grein f
fyrir því að þeir bera ábyrgð á sín- ;
um sláturhúsum," sagði ráðherr-
ann og bætti því við að hann teldi í
ekki að ógöngur Goða væri áfellis-
dómur yfir sauðfjárrækt á íslandi.
„Þetta er hins vegar áfellisdóm- j
ur yfir þeim sem standa að slátur-
iðnaðinum. Hingað til hafa menn
ekki hugsað um þetta sem atvinnu- :
veg sem stendur yfir í lengri tíma i
og atvinnuveg sem þarf að fara \
fram í færri sláturhúsum en verið \
hefur,“ sagði Guðni.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
náðist ekki í Kristinn Þór Geirsson, •
framkvæmdastjóra Goða, í gær.
omarr@frettabladid.is
MANNSHEILI
Skyldi eigandi þessa heila hafa stamað?
Stam:
Öðruvísi heili orsök?
vísindi Ný rannsókn bendir til þess að
óreglulegur heili geti valdið stami.
Það hefur löngum verið talið að stam
eigi rætur sínar að rekja til tilfinn-
ingalegra þátta eins og streitu. í nýrri
rannsókn sem greint er frá á frétta-
vef BBC komust vísindamenn hins
vegar að þeirri niðurstöðu að heili
fullorðins fólks sem stamar er
óreglulegur á því svæði heilans sem
stýrir tungumálum. Vísindamennirn-
ir komust að þessu eftir að hafa mælt
heila sextán manns sem stama og
borið saman við heila sextán manns
sem stama ekki. Anne Foundas, vís-
indamaður viö'Iúlane háskóla í New
Orleans, sem stýrði rannsókninni
sagði í samtali við BBC að ef í ljós
kæmi að vandamálið væri líffræði-
legs eðlis væri hægt að þróa aðferðir
sem beindust þeirri hlið vandans.
Carolyn Cheasman, talmeinafræðing-
ur í London, sagði hins vegar vanda-
málið flókið, rannsóknin bætti við
þær upplýsingar sem til væru fyrir
en úreltu þær ekki. ■
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Það þjónar illa hagsmunum félaga I lífeyr-
issjóðnum að fara út I viðræðum um fjár-
festingu sem er jafn óviss og raun ber
vitni, segir stjórnarformaðurinn.
verði yfir höfuð leyfðar. Umhverfis-
mat vegna virkjunar er enn hjá
Skipulagsstofnun. í annan stað er
ekki víst að verði af fjármögnuninni,"
segir Ögmundur. Þannig þyki meiri-
hluta stjórnarmanna of mikil óvissa í
málinu til að vænlegt sé að fara út í
alvarlegar viðræður. ■
FLUTT í BURTU
Makedónsíkt par ber föggur sínar fyrir framan
þinghúsið I Makedóníu fyrradag, þar sem hund-
ruð fólks hafði uppi mótmæli. Parið, ásamt fjöl-
mörgum öðrum íbúum bæjarins Lesok, norð-
vestur af Skjope, þurfti að yfirgefa heimili sitt
vegna árása albanskra skæruliða.
Atökin í Makedóníu:
Uppreisnar-
mönnum
settir afar-
kostir
tetovo. makedóniu. flp. Þúsundir skelf-
dra Makedóníubúa yfirgáfu borgina
Tetovo í gær eftir að stjórnvöld í
landinu settu albönskum uppreisnar-
mönnum þá afarkosti að draga sig til
baka frá borginni ellegar muni nýir
hópar hermanna ráðast til atlögu
gegn þeim. Að minnsta kosti 500 bílar
og tugir rúta, yfirfullar af fólki sem
pakkað hafði saman föggum sínum í
miklum flýti, yfirgáfu Tetovo og
stefndu í átt að Skopje, höfuðborg
landsins.
Miklir bardagar hafa átt sér stað
undanfarna daga í Tetovo á milli upp-
reisnarmanna og makedónískra her-
manna og eru þetta mestu átök í land-
inu í marga mánuði. í kjölfar átak-
anna og um leið brots á vopnahléi
sem samið hafði verið um, dró úr von-
um manna um að friðarviðræður, sem
mistókust í síðustu viku, gætu hafist
að nýju. Robertson lávarður, aðalrit-
ari NATO sagði í gær ástandið í land-
inu vera „tvísýnt." Hann ætlar að
fljúga í dag til Makedóníu ásamt
Javier Solana, fulltrúa utanríkismála
hjá Evrópusambandinu til nýrra
samningaviðræðna til þess að koma í
veg fyrir að borgarastríð brjótist út í
landinu. NATO er nú með 3000 manna
herlið í biðstöðu tilbúið að hjálpa til
við að afvopna uppreisnarmenn í
landinu, en segir þó að það muni ekk-
ert aðhafst fyrr en pólitískt sam-
komulag hefur náðst. ■
—*—
Atvinnuhorfur:
39.000 verður
sagt upp
new york. ap. í bígerð er að segja alls
um 39.000 manns upp hjá stórfyrir-
tækjum á næstunni. Tilkynnt var um
uppsagnirnar í fyrradag og eru frétt-
irnar ekki til þess fallnar að auka á
bjartsýni um efnahagsástandið.
Lucent Technologies Inc. sagði að 15-
20.000 manns yrði sagt upp. Það þýð-
ir að fjarskiptafyrirtækið hefur alls
fækkað starfsfólki um 32% á árinu.
ABB, tækni- og verkfræðifyrirtæki
tilkynnti að 12.000 manns yrði sagt
upp á næstu 18 mánuðum. Reuters
sagði að 1100 manns, eða 6% starfs-
krafta, fyrirtækisins yrði sagt upp
fyrir árslok 2002. Breska fyrirtækið
Invensys sagði að starfsfólki yrði
fækkað um 6.000. ■
FRÉTTABLAÐIÐ
tilkynnir:
Fyrir langa löngu sameinaðist þjóðin
við útvarpstækin til að hlusta á fréttir.
Þá voru tilkynningar í útvarpi
besta tækið til að ná athygli fólks.
En nú eru breyttir tímar. Samkvæmt
fjölmiðlakönnun PriceWaterhouseCoopers
frá síðustu mánaðamótum hlusta aðeins
27 prósent höfuðborgarbúa á kvöldfréttir
Ríkisútvarpsins að meðaltali á virkum dögum.
Hlustunin er meiri meðal eldra fólks;
rúmlega 48 prósent hjá fólki á aldrinum
50 til 67 ára. Hjá fólki á aldrinum 40 til 49
ára er meðalhlustun tæp 33 prósent,
tæp 23 prósent hjá fólki á aldrinum 30
til 39 ára og tæp 13 prósent hjá fólki
á aldrinum 25 til 29 ára.
Því er hætt við að sá tími komi aldrei aftur
að þjóðin öll hlusti á það sem tilkynnt
er í Ríkisútvarpinu.
í sömu könnun kom fram að 72,5 prósent
höfuðborgarbúa á aldrinum 25 til 67 ára les
hvert tölublað Fréttablaðsins að meðaltali
- álíka af öllum aldurshópum. Það er hærra
hlutfall en Ríkisútvarpið gat nokkru sinni
státað af á velmektardögum sínum.
Textinn hér að ofan er 161 orð.
Samkvæmt gjaldskrá Ríkisútvarpsins
myndi kosta 67.781,- kr. að iesa hann upp
fyrir þessi 27 prósent íbúa á höfuðborgar-
svæðinu sem hlusta á kvöldfréttir sam-
tengdra rása Ríkisútvarpsins.
Samkvæmt verðskrá auglýsinga
í Fréttablaðinu kostar hálfsíðu auglýsing
á þessari síðu 66.000,- kr.
Þessi auglýsing sem þú ert að lesa kostar
52.800,- kr. Og hún ber fyrir augu rúmlega
70 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu.
Ekki sætta
þig við athygli
fárra
-þegarþú
getur fangað
athygli
margra
FRÉTTABLAÐIÐ
Auglýsingadeild: Sími 515 7500