Fréttablaðið - 26.07.2001, Page 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
26. júlí 2001 FiMMTUDAGUR
Hjúkrunarfræðingar:
Þreiflngar
hjá Sátta
kjaramái Samninganefnd hjúkr-
unarfræðinga hefur tvívegs fund-
að með saminganefnd ríkisins hjá
ríkissáttasemjara í Karphúsinu
eftir að félagsmenn felldu ný-
gerðan kjarasaming í atkvæða-
greiðslu. Herdís Sveinsdóttir for-
maður Félags íslenska hjúkrunar-
fræðinga segir að menn séu að
þreifa fyrir sér í von um að saman
gangi. Hún bjóst við því í gær að
fleiri samningafundir yrðu haldn-
ir í vikunni. Hún segir að ef ekki
semst fyrir byrjun næstu viku
muni stjórn og samninganefnd fé-
lagsins endurmeta stöðuna. ■
Stærsta olíumengunar-
slys Danmerkur:
Bilun í stýri-
búnaði olli
árekstri
KAUPMANNAHÖFN. DANMÖRKU. AP.
Bilun í stýrisbúnaði varð til þess
að þýskt olíuflutningaskip beygði
óvænt til hliðar og rakst á sykur-
flutningaskip á fjölfarinni skipa-
leið í Eystrasalti í marsmánuði
með þeim afleiðingum að 2,9
milljónir lítra af olíu láku í hafið
og ráku á strendur Danmerkur í
stærsta olíumengunarslysi sem
orðið hefur undan ströndum
landsins. Þetta kemur fram í
skýrslu dönsku haffræðistofnun-
arinnar um slysið sem gerð hefur
verið opinber. í skýrslunni er ein-
nig sett út á það hversu skipin
voru nálægt hvort öðru áður en ol-
íuskipið beygði til hliðar og olli
slysinu. Allt að 3000 endur, svanir
og mávar dóu eftir að hafa verið
þaktir olíu, sem síðan var skafin
burt af ströndum Danmerkur á
sex vikna tímabili. Dönsk yfirvöld
íhuga nú hvort hefja skuli mál-
sókn gegn þýska fyrirtækinu. ■
■4-
Geimskutlan Atlantis ekur eftir flugbraut-
inni við Kennedy geimferðarstöðina sköm-
mu eftir lendingu.
Bandarísk geimferja:
Atlantis komin
heim eftir vel
heppnaða för
CANAVERALHÖFÐI. FLÓRÍDA. AP. Geim-
ferjan Atlantis lenti í gær mjúklega
á jörðinni eftir að hafa lokið upp-
setningu lofthlera sem auðveldar
mönnum geimgöngu í alþjóðlegu
geimstöðinni. Geimferjan, með
fimm geimfara innanborðs, lenti á
flóðlýstri flugbrautinni við Kenn-
edy geimferðastöðina eftir að eins
dags töf hafði orðið á lendingunni
vegna rigningar. Alls tók það geim-
farana 13 daga að ferðast út í geim-
inn og setja upp hlerann, sem kost-
aði 164 milljónir dala. Næsta
geimskutla til að fara út í geim er
Discovery, sem áætlað er að fari á
loft þann 9. ágúst. Hún mun flytja
nýja áhöfn í alþjóðlegu geimstöðina
og flytja síðan til baka þá tvo
Bandaríkjamenn og einn Rússa
sem hafa verið þar að störfum síð-
an í mars. ■
Starfshópur um fjármögnun Reyðaráls:
Engin viðskiptcdeg
rök hjá LSR
stóriðja „Ég hef ekki séð nokkur
rök hjá Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins fyrir því að hafna
þátttöku í starfshópi lífeyrissjóð-
anna um Reyðarálsverkefnið,"
segir Halldór Björnsson, vara-
forseti ASÍ, og bendir á að starfs-
hópnum sé einmitt ætlað að gera
aðilum kleift að átta sig á eðli
mögulegrar fjárfestingar. Af-
staða stjórnar LSR sé undarleg
þar sem þátttaka í hópnum feli
ekki í sér skuldbindingu. Fjár-
málaráðherra, f.h. launagreið-
enda, kynnti þá afstöðu sína á ný-
legum stjórnarfundi í LSR að rétt
væri fyrir sjóðinn að taka þátt í
starfshópnum.
„Ég lít þannig á málið að hjá
LSR sé að koma fram pólitísk
andstaða við framkvæmdina. Það
hefur t.a.m. komið fram hjá ein-
um stjórnarmanni þeirra, Ög-
mundi Jónassyni, að hann er al-
gerlega á móti framkvæmdinni,"
segir Halldór. Andstaðan byggist
þannig ekki á viðskiptalegum
rökum. „Það er verið að setja
hæfa menn í að fjalla um málið
og þegar það liggur fyrir þá er
það í valdi stjórnar hvers lífeyr-
issjóð fyrir sig að meta kostinn,"
segir Halldór og bendir á að
ákvörðun LSR muni hugsanlega
þyngja byrðina hjá þeim fimm
sjóðum sem eftir eru. ■
HALLDÓR BJÖRNSSON
LSR er einn stærsti sjóðurinn þannig að
ákvörðun þeirra gæti komið sér illa fyrir þá
sem eftir eru, segir varaformaður ASÍ.
Við væntum mikils
af Islcindssíma
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, bendir á að samið hafi verið frá upphafi um
lán til Islandssíma með breytirétti i hlutafé við skráningu.
LANDSBANKINN
Vill með aðild að (slandssíma tryggja að Landsbankinn verði í forystu við að auðvelda viðskiptavinum aðgang að fjármálaþjónustu, m.a.
með sjálfvirkum greiðslum og annarri þjónustu í samstarfi við framsækið fjarskiptafélag,
hlutabréf ;,Við viljum með aðild
okkar að Íslandssíma tryggja að
Landsbankinn verði í forystu við
að auðvelda viðskiptavinum að-
gang að fjármálaþjónustu, m.a.
með sjálfvirkum greiðslum og
annarri þjónustu í samstarfi við
framsækið fjarskiptafélag," sagði
Halldór J. Kristjánsson banka-
stjóri í samtali við blaðið í gær.
Forsendur Landsbankans fyrir
aðkomu að fjármögnun íslands-
síma eru óbreyttar og koma skýrt
fram í úboðslýsingu, að sögn Hall-
dórs, það er að bankinn telur að
tækniþróun í fjarskiptum verði
hröð og að mikilvægir samstarfs-
fletir séu milli
fjármálafyrir-
tækja og fjar-
f skiptafyrir-
tækja. „Þetta
sjónarmið er
óbreytt og við
væntum mikils
í samstarfinu
til hagsbóta
[ fyrir viðskipta-
vini beggja fyr-
irtækja."
H a I 1 d ó r
sagði að frétt á
forsíðu blaðs-
ins í gær um
skipulagsbreyt-
ingar hjá Íslandssíma hefði komið
sér spánskt fyrir sjónir. Hann
hefði í fyrsta lagi tekið skýrt fram
að það væri vinnuregla Lands-
bankams að fjalla ekki opinber-
lega um samskipti við einstaka
viðskiptavini. Fullkomin banka-
leynd ríkti um öll slík samskipti.
í öðru lagi hefði frá upphafi ver-
ið samið um lán bankans til fé-
lagsins á þann veg að það væri
með breytirétti í hlutafé við
skráningu. Eins og skýrt kæmi
fram í útboðslýsingu hefði bank-
inn nýtt þann rétt eins og til stóð
síóastliðið vor í fullu samræmi
við stefnumið sín. í fréttinni hafi
síðan verið vikið að starfi Viðars
Þorkelssonar, fjármálstjóra ís-
landssíma. „I því sambandi vil
ég taka fram að Viðar, sem er
fyrrverandi svæðisstjóri Lands-
bankans, tók við starfi hjá ís-
landssímasamstæðunni fyrir
tæpu ári og breyting á starfs-
sviði hans hjá Íslandssíma nú í
byrjun júlí éf alfarið ákvörðun
félagsins.“ ■'
Arkitektafélag Islands:
Ekki fyrir fram á móti
breytingum
VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON
BORGARFULLTRÚI
Segir mjög sérkennilegt ef arkitektar ætla
að þegja þunnu hljóði
SKIPULAG Stefán Örn Stefánsson
formaður Arkitektafélags íslands
segir að félagið hafi ekkert f jallað
um áformaða sameiningu Borgar-
skipulags og embættis byggingar-
fulltrúa. Hann segir að félagið sé
hins vegar ekki fyrir fram á móti
breytingum innan þessa stjórn-
kerfis, auk þess sem ekkert sé
heilagt í þeim efnum. Hann telur
jafnframt að það sé margt í þess-
um hugmyndum sem gæti horft
til mikilla bóta og styrkt þessar
stofnanir.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarfulltrúi sjálfstæðismanna
segir að það sæti furðu og sé mjög
sérkennilegt ef Arkitektafélag ís-
lands ætlar að þegja þunnu hljóði
yfir þessum áformuðum breyting-
um. Hann telur með þeim sé verið
að gera mikil mistök og það hefði
einhvern tíma þótt saga til næsta
bæjar þegar verið sé að svipta
Borgarskipulagi sjálfstæði sínu
með þessari sameiningu. í því
sambandi bendir hann á að á sín-
um tíma hefði það verið mikið
baráttumál arkitekta að efla sjálf-
stæði Borgarskipulagsins. ■