Fréttablaðið - 26.07.2001, Side 11
FIMMTUPAGUR 26. júlí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Skuldir heimilanna:
Jukust um 50 til
88 milljarða í fyrra
heimilin Skuldir heimila jukust um 50
milljarða og námu 415 milljörðum í
árslok 2000 ef miðað er við uppgefnar
tölur á skattframtölum landsmanna.
Þetta kemur fram í Hagvísum Þjóð-
hagsstofnunar. Samkvæmt tölum
Seðlabankans jukust skuldir heimila
við lánastofnanir um 88 milljarða á síð-
asta ári og voru í árslok 599 milljarðar.
Skýringin á þessum mismun liggur í
mismunandi flokkun skulda milli fyrir-
tækja og heimila, svo og að yfirdráttar-
lán einstaklinga í bönkum kunna að
vera vantalin á skattframtölum.
Skuldir heimila sem hlutfall af
eignum hafa staðið nokkurn veginn í
stað á undanförnum árum, en heim-
ilin skulda að meðaltali um 40% af
eignum sínum. Hafa verður í huga
að mat eigna á skattframtali er um
margt ábótavant, til að mynda eru
hlutabréf skráð á nafnvirði en ekki á
markaðsvirði. Ef skuldirnar eru
skoðaðar sem hlutfall af tekjum fyr-
ir skatta, skulda heimilin um það bil
13 mánaðartekjur. Ef miðað er við
ráðstöfunartekjur er sú tala mun
hærri. ■
SKATTFRAMTALI SKILAÐ
Skuldir heimilanna hafa stóraukist sam-
kvæmt því sem fram kemur í skattframtöl-
um landsmanna.
Stríðsglæpadómstóll SÞ:
Króati gef-
ur sig fram
haac. ap. Rahim Ademi, hershöfðingi í
krótaíska hernum, gaf sig í gær fram
við stríðsglæpadómsstólinn í Haag.
Hann er fyrsti Króatinn sem kemur
fyrir dómsstólinn en Ademi er sakað-
ur um að hafa myrt serbneska borg-
ara í stríðinu milli Serba og Króata
1991-1995. Ademi, sem er Kosovo-al-
bani að uppruna, er álitinn stríðshetja
í Króatíu. Hann segir ekkert hafa á
samviskunni. í ákærunni á hendur
honum er þó að finna hroðalegar lýs-
ingar á morðum og pyntingum á
Serbum sem hermenn undir hans
stjórn frömdu. ■
ÓTTAST EKKI ÚRSKURÐINN.
Ademi sagðist í gær búast við sanngjörn-
um réttarhöldum og ekki óttast að verða
sakfelldur fyrir stríðsglæpi.
Ráðuneyti situr á gögn-
um í skjóli saksóknara
Osk um opinber gögn tengd byggingarnefnd Þjóðleikhússins synjað af menntamálaráðu-
neyti vegna yfirvofandi rannsóknar. Kært til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTI
Gögn um samskipti ráðuneytisins við byggingarnefnd Þjóðleikhússins fást ekki afhent
vegna yfirlýsinga ríkissaksóknara i fjölmiðlum.
spillinc Menntamálaráðuneytið lítur
svo á að hugsanleg rannsókn ríkissak-
sóknara á málum Arna Johnsen leiði til
þess að því beri ekki að afhenda Frétta-
blaðinu umbeðin gögn, sem geyma
upplýsingar um samskipti ráðuneytis-
ins við byggingarnefnd Þjóðleikhúss-
ins. Fréttablaðið hefur kært synjun
ráðuneytisins til úrskurðarnefndar um
upplýsingamál. Ragnar Aðalsteinsson
hæstaréttarlögmaður, segist telja að
ákvörðun ráðuneytisins standist ekki.
„Þau gögn, sem hafa verið tiltæk al-
menningi, samkvæmt upplýsingalög-
um, verða það áfram þrátt fyrir að haf-
in sé opinber rannsókn," segir Ragnar.
Hann segir að þótt vera kunni að gögn-
in muni með einhverjum hætti verða
notuð við rannsóknina breytist ekki
eðli þeirra við það eitt að þau kunni að
koma að notum við opinbera rannsókn.
Fréttablaðið hefur þegar skotið til
úrskurðarnefndarinnar synjun þjóð-
leikhússtjóra við því að láta af hendi
fundargerðir byggingarnefndarinnar
en þær er ekki að finna í skjalasafni
ráðuneytisins. Synjun sína byggði
þjóðleikhússtjóri á þeim tilmælum
Ríkisendurskoðunar að láta ekki af
hendi gögn vegna rannsóknar þeirrar
stofnunar á málinu.
Þá bíður blaðið svars ráðuneytisins
við ósk um frekari gögn um það sem
snýr að samskiptum þess og Fram-
kvaemdasýslu ríkisins vegna málsins.
í bréfi menntamálaráðuneytisins til
Fréttablaðsins frá í gær er vísað til
þess að í fjölmiðlum hafi verið haft eft-
ir ríkissaksóknara að einungis væri
tímaspursmál hvenær opinber rann-
sókn hæfist vegna mála sem tengjast
byggingarnefnd Þjóðleikhússins og
telji ráðuneytið því ljóst að ákvörðun
um að slík rannsókn fari fram hafi ver-
ið tekin. Allar líkur séu á að óskað
verði eftir þeim gögnum sem til eru í
skjalasafni ráðuneytisins í þágu rann-
sóknarinnar. Mat á því hvaða gögn
tengist málinu sé í höndum lögreglu og
ákæruvalds en ekki ráðuneytisins.
Því hafnar ráðuneytið erindinu og
vísar til þess ákvæðis upplýsingalaga
að lögin gildi ekki um rannsókn eða
saksókn í opinberu máli en að ákvörðn-
in verði endurskoðuð þegar niðurstaða
Ríkisendurskoðunar liggur fyrir eða
þegar ákvörðun stjórnanda rannsókn-
ar um gagnaöflun liggur fyrir.
Eins og fyrr segir hefur Fréttablað-
ið kært synjunina til úrskurðarnendar
um upplýsingamál. ■
I s I c ti d í nýjm í j í % i
Bókaóu feróina be»nt ó netinw
Simi - 595-7977
LevtJBvts;! 26 - 101 Rtykjovík
SORG
Kista Giulianis var vafin í fána uppáhaldsliðs hans í fótbolta , AS Roma.
Ítalía:
Þúsundir fylgj a
mótmælanda
cenúa. ap, Þúsundir fylgdu Carlo
Giuliani til grafar í Genúaborg í gær.
Hinn 23 ára Giuliani var skotinn til
bana af lögreglunni í óeirðunum sem
urðu á meðan fundur leiðtoga iðnríkj-
anna átta stóð yfir í borginni um síð-
ustu helgi. Giuliani er sá fyrsti sem
fellur í mótmælum andstæðinga al-
þjóðavæðingar síðan þau hófust fyrir
tveimur árum og fyrsti sem deyr í
mótmælum á Ítalíu í 25 ár. Lát hans
hefur vakið mikla reiði á Ítalíu. ■