Fréttablaðið - 26.07.2001, Page 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
26. júlí 2001 FIMMTUPACUR
Lewis og Rahman:
Berjast í nóvember
Eddie óánægður:
Jordan rekur
Frentzen
formÚla i „Samningurinn fer
samstundis úr gildi,“ sagði tals-
maður Jordan liðsins í gær.
Heinz-Harald Frentzen hefur ekki
staðið sig sem skyldi í ár, hefur
aðeins fengið sex stig og níu sinn-
um orðið á eftir liðsmanni sínum í
tíu kappökstrum. Eftir kappakst-
urinn í Silverstone ræddu þeir
Eddie Jordan saman og útkoman
var þessi. „Ég mótmæli ástæðun-
um sem mér hafa verið gefnar
fyrir uppsögninni. Málið er hjá
lögfræðingum," sagði Frentzen í
fréttatilkynningu. Varaökumaður-
inn Ricardo Zonta keppir fyrir
hann í Þýskalandi. ■
hnefaleikar Þjálfari Lennox Lewis,
Emanuel Steward, staðfesti í
fyrrakvöld dagsetningu þess þeg-
ar Lennox Lewis og Hasim Ra-
hman mætast á ný. „Eg var að tala
við Lennox áðan og þetta er neglt á
10. nóvember," sagði Steward.
Þó svo að búið sé að samþykkja
dagsetninguna af hálfu beggja að-
ila viðurkenndi Steward að samn-
ingurinn væri ekki í höfn. Það á
enn eftir að hafa uppi á Rahman til
að skrifa undir. „Við erum að reyna
að ná í hann, finna hann. Þá er
hægt að loka samningnum.“
Eins og margir muna sigraði
Rahman Lewis óvænt í bardaga í
Suður-Afríku í apríl sl. Fljótlega
eftir það fór Lewis í mál við Ra-
hman þar sem hann krafðist þess
að berjast aftur við hann fyrstur
manna. Rahman hafði áður sagt að
hann ætlaði að berjast við aðra,
jafnvel Mike lýson, áður en hann
hleypti Lewis að.
Don King gerðist umboðsmaður
hans og ætlaði að láta hann berjast
við Danann Brian Nielsen, sem
ákveðið var að Mike Tyson mætir.
Dómstólar í Bandaríkjunum kváðu
síðan upp þann úrskurð að Ra-
hman yrði að berjast fyrst við
Lewis, ellegar að leggja hanskann
á hilluna í 18 mánuði. ■
HASIM RAHMAN
Heimsmeistarinn í þungavikt lætur ekki ná í sig til að skrifa undir samninginn.
1 IVIOLAR ~|
Breskur banki hyggst kaupa
meirihluta í ítalska knatt-
spyrnufélaginu SS Napóli, sem
Diego Armando
Maradona spilaði
eitt sin með. Liðið
er sem stendur í
annarri deild.
Giorgio Corbelli,
annar aðaleigandi
liðsins, sagði að
bankinn og einn
ónefndur aðili
hefðu sýnt liðinu mikinn áhuga og
að fjárfestarnir hefður gert gott
boð í liðið. „Við erum tilbúnir að
selja og yfirgefa liðið,“ sagði Cor-
belli. Tæp fimmtán ár eru liðin frá
blómatíma liðsins þegar Maradona
og Careca léku með því. Það sigr-
aði ítölsku deildina 1987 og 1990 og
vann UEFA bikarinn árið 1989.
Fyrr í vikunni skoraði Ronaldo
tvö mörk í vináttuleik Inter
Milan og liðsins Bormio, sem er úr
nágrenni Mílanó.
Lokatölur voru 17-
0. Ronaldo spilaði
aðeins í tuttugu
mínútur. Þegar
hann kom inn á
fögnuðu áhorfend-
ur ákaft. „Mér líð-
ur aftur eins og
leikmanni," sagði
Ronaldo, sem var langt frá sínu
besta. Christian Vieri skoraði ein-
nig tvö mörk, Tyrkinn Hakan Suk-
ur þrjú og nýliðinn Mohammed
Kallon fimm.
Næsti bardagi, Nasheem Hamed
verður að öllum líkindum gegn
Johnny Tapia. Þeir eiga þó enn eft-
ir að semja um
greiðslur. Tapia
lýsti því yfir að
hann vildi mæta
prinsinum eftir að
hann rotaði fyrr-
um WBC heims-
meistarann Cesar
Soto í síðasta mán-
uði. Umboðsmenn
Tapia og Hamed voru byrjaðir að
ræða hugsanlegan bardaga en þær
umræður fóru út um þúfur þar
sem Tapia fannst Prinsinn ekki
sýna sér næga virðingu. „Prinsinn
er góður hnefaleikakappi en bróðir
hans á að sjá um kynningu á bar-
daganum. Hvað fæ ég þá fyrir
minn snúð? Ég á eftir að reka lest-
ina og ég þarf ekki á Prinsinum að
halda,“ sagði Taipa.
VESPUR
Seljum síðustu
vespurnar á
þessu sumri,
verð frá
kr. 130 þúsund.
Lyftarar ehf.
Sími: 585 2500
Schumacher í sögubækurnar?
Tólfti kappakstur ársins fer fram í Hockenheim á sunnudaginn. Schumacher segist vera búinn
að ná sér fullkomlega eftir óhappið í Monza í síðustu viku. Með sigri kemst hann upp að hlið
Alain Prost, sem sigursælasti kappakstursmaður allra tíma.
kappakstur Michael Schumacher,
ökumaður Ferrari, vonast til að
vinna sinn 51. sigur í Formúlu 1 í
Hockenheim í Þýskalandi á sunnu-
daginn og jafna þar með met Alain
Prost, sem lauk einmitt ferlinum
árið 1993 á Hockenheim-braut-
inni. Schumacher segist hafa náð
sér fullkomlega eftir óhappið á
æfingunni í Monza í síðustu viku,
en þá ók hann á tæplega 200
km/klst á grindverk með þeim af-
leiðingum að Ferrari bíllinn skem-
mdist mikið.
Schumacher, sem var heppinn
að sleppa lítið meiddur frá slys-
inu, segist vera til í slaginn á
sunnudaginn. Hann hyggst taka
þátt í góðgerðarleik í knattspyrnu
í dag, en æfingar á Hockenheim-
brautinni hefjast á morgun.
„Ég fór í líkamsrækt um helg-
ina eins og venjulega og er í fínu
formi,“ sagði Schumacher.
„Óhappið mun ekki valda mér
neinum vandræðum á Hocken-
heim-brautinni, vegna þess að ég
veit hvað olli því. Allt er því eins
og það á að vera. Ég hlakka mikið
til að keppa á heimavelli. Ég þekki
brautina vel og hef ágætis reynslu
í að keppa á henni. Bíllinn okkar
hefur verið á meðal þeirra bestu í
öllum keppnum ársins svo ég held
að við getum vel verið bjartsýnir
fyrir þessa keppni. Það væri frá-
bært að fagna 51. sigrinum hérna
í Hockenheim."
Schumacher hefur 37 stiga for-
skot á David Coulthard, hjá McL-
aren, í keppni ökumanna og talið
er að sigur í Hockenheim muni
svo gott sem tryggja honum
fjórða meistaratitilinn. Þýskir
fjölmiðlar búast hins vegar við
því að Ralf, yngri bróðir
Schumacher sem ekur fyrir BMW
Williams, muni veita Ferrari
meiri keppni en McLaren.
Hockenheim-brautin, sem er
um 6,8 km á lengd er ein sú hrað-
asta í Formúlu 1. Bílarnir ná allt
að 330 km/klst og meðalhraðinn er
um 250 km/klst. Brautin er því
þekkt fyrir að reyna mikið á vélar
kappakstursbílanna og hafa fram-
leiðendur brautina iðulega til hlið-
sjónar við hönnun véla. Ef vélarn-
ar þola álagið á Hockenheim þola
þær álagið á öllum öðrum braut-
um.
Nýlega gerðu eigendur Hoc-
kenheim-brautarinnar nýjan sjö
ára samning við skipuleggjendur
Formúlu 1 og verður því keppt á
henni allt þar til árið 2007. Sam-
kvæmt samningnum á að leggja 4
milljarða í endurbætur á braut-
inni á næstunni og miða þær helst
að því að stytta brautina niður í
4,5 km, en styttri bautir henta bet;
ur fyrir sjónvarpsútsendingar. í
samningnum er einnig ákvæði um
mögulega 5 ára framlengingu á
samningnum frá 2008 til 2012.
Keppnin í Hockenheim er sú 12
á árinu og að henni lokinni verða 5
eftir. Þann 19. ágúst verður keppt
í Ungverjalandi, síðan taka við
keppnir í Belgíu, á Ítalíu og í
Bandaríkjunum, en síðasta keppn-
in verður í Japan þann 14. októ-
ber.
trausti@frettabladid.is
Arsenal losar tökin:
Silvinho
fer suður
knattspyrna Brasilíski varnar-
maðurinn Silvinho hefur fengið
leyfi til að fara frá Arsenal. Hann
er búinn að iða í skinninu í langan
tíma þar sem hann missti stöðu
sína að miklu leyti til hins tvítuga
Ashley Cole seinni hluta síðasta
tímabils, sem er að tryggja sér
sæti í enska landsliðinu.
Talið er að bæði Barcelona og
Inter Milan séu á höttunum eftir
Silvinho. Barcelona ætlaði að
næla í Cole fyrir 20 milljónir
punda en fyrst hann er ekki falur
snýr það sér að Silvinho. Arsenal
vill tólf milljónir punda fyrir
hann.
Silvinho, sem er 27 ára, segist
vilja fá að spila almennilegan
bolta þetta tímabilið þar sem hann
sækist eftir því að komast í brasil-
íska landsliðið í Heimsmeistara-
SILVINHO
Keppir um stöðu vinstri bakvarðar í brasil-
íska landsliðinu við Roberto Carlos
keppninni í Japan og Suður-Kóreu
að ári. Hann þarf að keppa við Ro-
berto Carlos um stöðu vinstri bak-
varðar. „Færsla Silvinho er á byrj-
unarstigi og við viljum ekki segja
neitt sem gæti haft slæm áhrif á
samningaviðræöur," sagði stjórn-
arformaður Arsenal, David Dein.
Silvinho gekk til liðs við Arsenal
frá Corinthians árið 1999. ■
Leikmannakaup:
Weah til Liverpool?
KNATTSPYRNA Geor-
ge Weah sagði í við-
tali við bandaríska
fjölmiðla á þriðju-
daginn að hann
hefði fengið tilboð
frá Liverpool sem
hann væri að meta.
Hann myndi
ákveða innan tveg-
gja vikna hvort
hann myndi leika
með enska liðinu á
komandi leiktíma-
bili eða AS Mónakó.
Samkvæmt BBC
grennslaðist Liver-
pool fyrir um Weah
í lok síðasta tímabils, en
A NÓC EFTIR
Ceorge Weah er ekki að fara leggja
skóna á hilluna og vonast til að vera
með I lokakeppni Heimsmeistarakeppn-
innar í knattspyrnu á næsta ári.
þó er
talið ólíklegt að liðið kaupi hann.
Weah, sem var kjörinn besti
knattspyrnumaður í heimi árið
1995, verður 35 ára í október.
Hann sagðist þó enn eiga nóg eft-
ir og að hann
myndi ekki leg-
gja skóna á hill-
una fyrr en eftir
þrjú ár. Svo
gæti farið að
Weah yrði með í
næstu Heims-
meistarakeppni,
sem haldin
verður í Japan
og Kóreu á
næsta ári. Hann
leikur með
landsliði Líber-
íu, sem er í efsta
sæti síns riðils í
undankeppn-
liðsins ráðast á
inni, en örlög
sunnudaginn þegar Nígería mætir
Ghana á heimavelli. Ef Nígería
tapar eða gerir jafntefli kemst Lí-
bería í úrslitakeppnina í fyrsta
skiptið í sögunni. ■