Fréttablaðið - 26.07.2001, Side 15
FIIVIIVITUPflCUR 26. júlí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
Ánægðir andstæðingar:
Ferrari ánægðir með
Mika Hakkinen
Þjálfaramál Leeds United:
O'Leary
verður kyrr
knattspyrna Peter Ridsdale,
stjórnarformaður Leeds, neitar
því að hann hafi gefið David O’Le-
ary þjálfara leyfi til að fara til
Manchester United. Fjölmiðlar
sögðu fyrir stuttu að stjórn Leeds
væri sátt við að O’Leary gerðist
arftaki Alex Fergusonar hjá
ensku meisturunum en Skotinn
hyggst hætta þjálfun eftir næsta
tímabil. Ridsdale hefur hinsvegar
dregið fréttirnar til baka. „Leyfið
mér að koma einu máli á hreint,”
sagði Ridsdale. „O’Leary verður
kyrr og þetta er ákvörðun okkar
beggja.” ■
kappakstur Michael Sehumacher,
þýski ökuþórinn í Formúlu 1,
segist vera ánægður með að
Mika Hakkinen skildi fara með
sigur af hólmi í Silverstone
kappakstrinum, þótt hann hafi
verið hans helsti keppinautur
síðus.tu ár. Sömu sögu er að segja
af Ross Brawn, tæ'knistjóra hjá
Ferrari en Mika hefur gengið af-
leitlega það sem af er keppnis-
tímabilinu. Mika á ekki mögu-
leika á heimsmeistaratitlinum í
ár og er því engin ógn við
Schumacher en hann varð heims-
meistari fyrir tveimur árum. Að
sögn Brawn sýndi Finninn það
með sigrinum að hann þráir að
keppa í Formúlu 1.
„Hann hefur átt ömurlegt
keppnistímabil. Áður en hann
keppti í Silverstone hafði hann
bara fengið níu stig og það eru
vond hlutskipti fyrir fyrrum
heimsmeistara,” sagði Brawn.
„Fólk sér hvaða áhrif það hefur á
hann. Hann keyrði illa í nokkrum
keppnum en sýndi síðan á Silver-
stone hversu megnugur hann er.
Ég held að hann sé sá eini sem
LOKSINS SIGUR
Mika Hakkinen fagnar hér sigri í Silversto-
ne kappakstrinum. Þetta var langþráður
sigur hjá Finnanum fljúgandi.
Schumacher líti á sem jafningja
sinn í Formúlu 1 keppninni sem
stendur.” ■
BESTUR?
Allan Houston segist vera besti skotbak-
vörður deildarinnar.
NBA:
Allan Houston
fær milljarð
körfuknattleikur Allan Houston,
leikmaður New York Knicks, hef-
ur framlengt samning sinn við lið-
ið um sex ár. Samningurinn er
metinn á einn milljarð króna og er
Houston þar með orðinn launa-
hæsti skotbakvörður deildarinn-
ar. Hann er m.a. með betri samn-
ing en Allen Iverson, Kobe
Bryant, Ti-acy McGrady, Jerry
Stackhouse og Vince Carter.
Eftir undirritun samningsins
sagði Houston að hann væri besti
skotmaður deildarinnar og betri
leikmaður en allir hinir ofan-
greindu.
Stoke City:
Ekkert tilboð borist
í Bjarna Guðjónsson
knattspyrna Bjarni Guðjónsson
hefur verið á sölulista hjá Stoke í
mánuð en ekkert tilboð hefur enn
borist í hann og ekkert lið spurst
fyrir um hann. Guðjón Þórðarson,
sem setti son sinn á sölulista þar
sem honum þótt hann fá mun
óvægari gagnrýni en aðrir leik-
menn liðsins, telur þó enn líklegt
að Bjarni verði seldur.
„Það kemur mér nokkuð á
óvart að enginn hafi spurst fyrir
um hann,“ sagði Guðjón í samtali
við dagbíaðið Sentinel í gær. „En
ég veit að einhverjir ætla að fylgj-
ast með honum í æfingaleikjunum
gegn Leicester og Derby. Hann
leikur stórt hlutverk hjá okkur á
hægri kantinum, en ef hann fer
mun ég þurfa að meta aðra val-
kosti og prufa Dean Crowe í stöð-
unni.“
Stoke er nú í æfingaferð í Aust-
urríki og í gær lék liðið tvo 45
mínútna æfingaleiki við austur-
ríska liðið Gratkorn og tyrkneska
liðið Genclereirligi Ankara. Stoke
gerði 0-0 jafntefli við Gratkorn en
tapaði 1-0 fyrir tyrkneska liðinu.
„Við vorum óheppnir að skora
ekki í leikjunum," sagði Guðjón.
„Þrátt fyrir að leikmennirnir
væru þreyttir eftir stífar æfingar
undanfarið lögðu þeir sig alla
fram og reyndu að gera það sem
fyrir þá var lagt.“
Framherjarnir Andy Cooke og
Ríkharður Daðason voru ekki
með í leikjunum vegna smávægi-
legra meiðsla, en þeir ættu að
verða tilbúnir í slaginn á morgun
þegar Stoke mætir Gmunden.
ÓSELDUR
Þó ekkert lið hafi spurst fyrir um Bjarna
Guðjónsson telur Guðjón Þórðarson enn
líklegt að hann verði seldur.
Stoke hefur gengið frá kaupum á
Niel Cutler frá Aston Villa. Stoke
þurfti ekkert að greiða fyrir
Cutler, sem er 24 ára markvörður
og er hann með liðinu í Austur-
ríki. ■
Heimsmeistaramótið í
Fukuoka:
Islandsmet
hjá Jakobi
sunp Jakob Jóhann Sveinsson náði
góðum árangri í 200 metra
bringusundi á heimsmeistaramót-
inu í Fukuoka í Japan í gær. Hann
lenti í 13. sæti og bætti íslands-
metið, sem hann setti í Sidney í
fyrra um 1,2 sekúndur.
Jakob Jóhann tvíbætti íslands-
met sitt í greininni gær. Fyrst í
undanrásum þegar hann synti á
2.17,09 mínútum og síðan í milli-
riðli þejgar hann synti á 2.16,61.
Gamla Islandsmetið var 2.17,86. ■
Heimsmeistaramótið í Fukuoka:
Enn eitt heimsmet hjá Thorpe
enda búist við einvígi á milli
Thorpe og Pieter van den Hoogen-
band Ólympíumeistara. Thorpe
hafði mikla yfirburði í sundinu og
kom í mark um 2 metrum á undan
Hoogenband, sem synti á 1.45,81
mínútu. Með sigrinum hefndi
Thorpe fyrir tapið í Sidney í fyrra.
Ástralinn bætti sinn eigin árangur
um 0,82 sekúndur í sundinu. ■
lÁUv' - LÁTTU FERSKA VINDA LEIKA UM ÞIG.
Taktu flugiö á alvöru sportbíl. MR2 uppfyllir allar þínar óskir um kraft og
ferska vinda. Þú færð MR2, með SMT gírskiptingu, frá aðeins 2.390.000 kr.
www.toyota.is
SUND Hinn 18 ára gamli
Ástrali, Ian Thorpe, setti
nýtt heimsmet í 200 metra
skriðsundi í gær, þegar
hann synti vegalengdina á
1.44,06 mínútum. Thorpe
hefur þar með sett þrjú
heimsmet á heimsmeist-
aramótinu í Fukuoka í Jap-
an, en fyrr hafði hann bætt
metin í 400 og 800 metra
skriðsundi.
Beðið var eftir 200
metra skriðsundinu með
nokkurri eftirvæntingu
ÓSTÖÐVANDI
lan Thorpe bætti heimsmetið í
200 metra skriðsundi um 0,82
sekúndur I gær.
Kynntu þér klúbbinn
• Bildshöfða 20
•110 Reykjavík 9 €>
• simi 510 8020 *"
• www.intersport.is
MCKINLE'r THAIL
SALOMON X-ADV 7
MCKINLEY ENGINA
MCKINLEY SHORE