Fréttablaðið - 26.07.2001, Qupperneq 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
26. júlí 2001 FIMIVITUPAGUR
íyrir alvöruferðalanga
SOKKAR
Bridgedale
frá 990
NANOQ+
lífið er áskonm!
ALFABAKKA 8, SIMI 587 8900
www.samfilm.is
HACATORCI, SIMI 530 1919
Þar sem allir salir eru stórir
HÁSKÓLABÍÓ
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15
Sýnd m/ensku tali kl. 4,6, 8 og 10
Sýnd m/íslensku tali kl. 4, 6 og 8
FILIVlUNDtiR
LUÐRASVEIT OG BRU
Sýnd kl. 4,6,8 og 10 vit 243
|SHREK (BLtal) KLAÁBoglílP'l Sýnd kl. 4,6,8 og 10 (enskt tal) vit ia4
jCROCODILE DUNDEE IN LA kL4og6Í|8B| IdRIVEN kl. 5.50,8 og 10.10 IH
lEVOLUTION kl. a.ioog 10.10IH ITHE MUMMY RETURNS kL 3.50 og 6|H
jPEARL HARBOR kLslH NÝIST1LUNN KHSARANS (ÉL taQ kl.3.45ÍH
Katrina Bayonas, talsmaður
Penelope Cruz, segir hana og
Tom Cruise vera par. Bayonas
sagði við dagblað-
ið E1 Mundo að
þau hefðu hist
reglulega síðan
Cruise fagnaði af-
mæli sínu fyrr í
þessum mánuði.
Pat Kingsley, tals-
maður Cruise,
staðfestir þetta
einnig en skötuhjúin reyndu að
leyna sambandinu með litlum ár-
angri. Cruise og Cruz hittust við
tökur á Vanilla Sky, sem frum-
sýnd verður á næsta ári.
Kryddstelpan Victoria Beck-
ham, Snobbkryddið, svaraði
spurningum frá æstum aðdáend-
um í beinni út-
sendingu á heima-
síðu sinni fyrir
stuttu. Til þess
notaði hún vef-
myndavél. Aðdá-
endurnir spurðu
m.a. hvernig væri
að vera móðir og
að eiga tvo
Rottweilerhunda. Himdarnir heita
Puffy og Snoop eftir rappstjörn-
unum Snoop Doggy Dog og Puff
Daddy, sem ber nú nafnið P.
Diddy. Hún sagðist vilja eignast
fleiri börn en ætla að bíða með
það í smá tíma. Hún sagðist vera
ánægð með gott gengi vinkvenna
sinna úr Spice Girls. „Það er frá-
bært að sjá hvað þær hafa náð
langt. Ég vona að þær hafi lært
eitthvað af mér,“ sagði Victoria.
Britney Spears hefur verið
gagnrýnd af dýraverndunar-
samtökunum RSPCA fyrir að láta
hundana sína fylg-
ja með húsinu í
Louisiana sem hún
er að selja. Húsið
| kostar eina og
hálfa milljón
| punda og fylgir
Terrier hundurinn
Baby og tveir
varðhundar með.
Faðir Britneyjar segir að hund-
arnir fylgi með því þau hyggist
flytja í nýtt húsnæði, marga kíló-
metra í burtu. Samtökin segja
hinsvegar að táningsstjarnan gefi
vont fordæmi með sölunni.
r\\
UNGFRÚ SKANDINAVfA?
Iris Björk Árnadóttir keppir I Ungfrú Skandinavla ásamt Svanhildi Björk Hermannsdóttur. Iris segist vera orðin spennt og er þegar
byrjuð að undirbúa sig fyrir keppnina.
Kominn tími á Island
íris Björk Árnadóttir keppir fyrir íslands hönd í Ungfrú Skandinavía
ásamt Svanhildi Björk Hermannsdóttur. Þær munu keppa í stað
Ragnheiðar Guðfinnu sem kjörin var Ungfrú Island.
fegurð Ragnheiður Guð-
finna Guðnadóttir sem sigr-
aði í Fegurðarsamkeppni Is-
lands mun ekki verða full-
trúi landsins í alþjóðlegum
fegurðasamkeppnum þar
sem hún er ólétt. Stúlkurnar
sem lentu í næstu sætum á
eftir munu hlaupa í skarðið í
hennar stað. „Hún þarf
hvorki að afsala sér titlinum
né verður svipt honum,“
sagði Elín Gestsdóttir,
skipuleggjandi Fegurðar-
samkeppni íslands, þegar
Fréttablaðið hafði samband
við hana í gær. „Stúlkurnar sem
lentu í sætunum fyrir neðan
munu keppa í hennar stað. Þær
hafa hingað til ekki staðið sig
verr heldur en þær sem hafa lent
í fyrsta sæti.“
„Þetta leggst bara mjög vel í
mig. Ég er orðin mjög spennt og
er þegar farin að undirbúa mig
fyrir hana,“ sagði íris Björk
Árnadóttir, sem tekur
þátt í keppninni Ungfrú
Skandinavía sem fram
fer í Finnlandi daganna
26. september til 5. októ-
ber ásamt Svanhildi
Björk Hermannsdóttur,
Ungfrú Suðurnes. „Við
munum ferðast um
Finnland en keppnin
sjálf fer fram á sveita-
setri."
íris Björk starfar í
móttökunni hjá Securit-
as og hyggur á rekstrar-
og bókhaldsnám í Við-
skipta- og tölvuskólanum. í und-
irbúningi fyrir svona keppni
þurfa stúlkurnar að stunda lík-
amsrækt, trimmform og fara í
förðun. „Svo þarf maður að lesa
svolítið um ísland til að geta
svarað ýmsum spurningum í
keppninni sjálfri. Viðtalið í þess-
ari keppni skiptir rosa miklu
máli.“
ÓLÉTT
Ragnheiður Guð-
finna Guðnadóttir
tekur ekki þátt í
Miss International
keppninni f Japan.
íris Björk segist ekki vita
hvað sigur í slíkri keppni þýðir.
„En ég veit að þrjú fyrstu sætin
þýða yfirleitt eitthvað. Þær sem
lenda í þeim sætum verða að
skuldbinda sig til að taka þátt í
sýningum og svona. En við eigum
eftir að ræða þetta betur við El-
ínu framkvæmdastjóra. Það er
nú kominn tími til að ísland fari
að taka þetta,“ sagði íris en Dag-
mar Ýr vann þess keppni síðust
íslendinga árið 1998.
Elín hefur komið að skipulagn-
ingu keppninnar í sex ár. Hún
segir keppendur geti ekki farið út
í stærri keppnir ef þær séu ólétt-
ar. „Það gefur náttulega augaleið.
En Ragnheiður missir af þeim
tækifærum sem hún hefði annars
fengið, að fara til útlanda og vera
fulltrúi okkar þar.“ íris Dögg
Oddsdóttir, sem lenti í þriðja sæti
í Fegurðarsamkeppni fslands, fer
í Miss International í Japan í stað
Ragnheiðar. ■